blaðið - 29.08.2006, Síða 30
38
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 blaðiö
HVAÐ FINNST ÞER?
Verður stefnt að sxgri i þetta skipti?
„Égvitna bara t kjörorð okkar. Það sigra allir sent taka
\iátt í Glitnis-maraþoni
m
m.
w 1
rt
Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis.
Glitnir mun styrkja Óslóarmaraþonið næstu fjögur árin.
Bjarni Ármannsson hefur þegar lýst því yfir að hann
muni taka þátt i næsta Óslóarhlaupi. Hann endaði í 43.
sæti i Reykjavíkurmaraþoninu.
Smáborgarinn
Vanmetinn í fótboltanum Ómar Stefánsson segist vera
vanmetinn fót- og handboltamaður og það stafi öðrum
þræði af fordómum í garð örvfættra og örvhentra.
MAGNAÐUR
MAGNI
Smáborgarinn horfir ekki mikið
á sjónvarp og sjónarpsáhorf hans
hefur farið snarlega minnkandi
undanfarin ár. Hann komst þó
ekki hjá því að detta inn í raunveru-
leikaþáttinn Rockstar: Supernova,
eins og eflaust fjölmargir aðrir
íslendingar, enda Frónbúi á meðal
keppenda.
Smáborgarinn hefur aldrei gefið
mikið fyrir tónlist hljómsveitarinnar
Á móti sól sem Magni hefur verið
í fararbroddi fyrir undanfarin ár
og átti Smáborgarinn því kannski
ekki von á því að Austurlendingur-
inn myndi vinna stóra sigra vestan-
hafs. Annað hefur svo sannarlega
komið á daginn. Magni hefur
staðið sig með miklum ágætum
og verið meðal allra bestu kepp-
enda (vilja þó kannski einhverjir
meina að tjörnin sem hann syndir
í sé ekki ýkja stór).
Deila má hins vegar
um hvort sigurlaunin
séu eins fýsileg og
stjórnendur þáttarins
láta í veðri vaka.
Magni hefur verið landi og þjóð
til sóma og þrátt fyrir að hafa
sett sig í hinn meinta „rokkaragír“
hefur hann að mestu laus verið
við þá svakalegu uppgerð sem
hefur einkennt marga keppendur í
þættinum. Keppendur á borð við
Lukas Rossi vekja fátt annað en
klígju hjá Smáborgaranum. Magni
hefur valið góð lög, sungið þau
prýðilega og komið vel fram.
Deila má hins vegar um hvort
sigurlaunin séu eins fýsile^ og
stjórnendur þáttarins láta í veðri
vaka. Sigurvegarinn verður söngv-
ari hljómsveitarinnar Supernova
sem skipuð er Tommy Lee úr
Mötley Crue, Jason Newsted úr
Metallica og Gilby Clarke úr Guns
N’ Roses. Segja má að þessir
menn hafi allir
verið í aukahlutverki í „súp-
ergrúppum” sínum og þau tvö
frumsömdu lög sem Supernova
hefur flutt í þáttunum gáfu ekki
fögur fyrirheit.
Smáborgarinn vonar að Magni
haldi áfram að vinna glæsta sigra
vestanhafs. Sólin er hins vegar
löngu sest á ferli hljómsveitar-
meðlima Supernova og því er
glæstasti sigurinn tæpast að
verða meðlimur í hljómsveit þeirra.
Áfram Magni... eða hvað?
Ræktin í næsta húsi
Það er ekki síður mikilvægt fyrir
stjórnmálamenn að vera vel á sig
komnir líkamlega en andlega enda
þurfa þeir að þola margs konar áreiti
og álag í störfum sínum. Ómar Stef-
ánsson, oddviti Framsóknarflokks-
ins í bæjarstjórn Kópavogs, segist
vakna snemma á hverjum morgni
og skella sér í ræktina.
„Ef ég kemst ekki á morgnana er
mjög erfitt að finna annan tíma,“
segir Ómar sem þarf ekki að aka
bæjarhluta á milli til að hreyfa sig
eins og margir.
„Ég fer náttúrlega bara í sundlaug-
ina og ræktina Nautilus sem er við
hliðina á heimilinu. Ég get stokkið
í sundskýluna og hlaupið í gegnum
einn garð og þá er ég kominn í laug-
ina,“ segir Ómar og bætir við að
hann finni mikinn mun á sér og líði
miklu betur þegar hann stundar lík-
amsrækt.
„Ef maður dettur einhverra hluta
vegna úr rútínunni þá er svo rosal-
ega erfitt að koma sér í hana aftur
þannig að það er alveg nauðsynlegt
að vera með fasta tíma til að stunda
einhverja líkamsrækt.“
Tilqangslausar fjallgöngur
Ómar segist einnig reyna að
hreyfa sig dags daglega og fjölskyld-
an gangi mikið og skilji bílinn eftir
heima þegar því verði komið við.
Fram að þessu hefur hann þó lítið
stundað fjallgöngur eða aðra útivist
í faðmi náttúrunnar.
„Ég er búfræðingur og sveitakarl í
mér og er búinn að vera að hlaupa
eftir skepnum út um öll fjöll og
firnindi. Áður fannst mér algerlega
tilgangslaust að labba á fjöll og hafa
ekkert að gera á meðan, annað en
að líta í kringum mig. Kannski er ég
farinn að linast þar sem ég er alveg
SU DOKU talnaþraut
2 8 4 3 6 7 9 5 1
9 1 5 2 4 8 6 3 7
3 7 6 9 1 5 2 8 4
8 9 7 I 2 3 4 6 5
4 6 2 7 5 9 3 1 8
5 3 1 4 8 6 7 9 2
1 2 3 8 9 4 5 7 6
6 4 9 5 7 i 8 2 3
7 5 8 6 3 2 1 4 9
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
8 4 1
7 6 3 4
2 3 9 5 6
6
6 1 9
5 4 1 2
6 9 7 3
1 8 7
3 6
við það að fara að ganga á Esjuna án
þess að vera með einhver dýr á und-
an mér. Ég er orðinn 40 ára þannig
að það er kannski kominn tími til,“
segir Ómar.
Vanmetinn í boltaíþróttum
Síðast en ekki síst segist Ómar
vera mjög góður leikmaður bæði i
handbolta og fótbolta en hann hafi
því miður orðið fórnarlamb for-
dóma í boltaíþróttunum.
„Ég er mjög vanmetinn leikmað-
ur og það stafar náttúrlega bara af
fordómum í garð örvfættra og örv-
hentra. Hvað er það annað en for-
dómar þegar við erum settir í vörn?
Við erum náttúrlega fæddir sóknar-
menn og okkur á því að vera stillt
framarlega á völlinn," segir Ómar
að lokum.
hoskuldur@bladid.net
eftir Jim Unger
11-1
© Jim Unger/dist. by United Media, 2001
Ertu búinn að hugsa þetta með launahækkunina?
HEYRST HEFUR...
Eins og greint var frá á
þessum stað í gær fagna
samfylkingarmenn ákaflega
nýrri umræðu um greinargerð
Gríms Björnssonar jarðeðlis-
fræðings um Kárahnjúkasvæð-
ið og telja sig þar hafa fundið
afsökun fyrir stuðningi flokks-
ins við stóriðjuna
á undanförnum
árum. Ásta Ragn-
heiður Jóhannes-
dóttir, þingmaður
flokksins, fjallar
um málið á heimasíðu sinni
(althingi.is/arj) og minnir á
að hún hafi á sínum tíma ekki
stutt framkvæmdina. Hún
gleymir hins vegar að nefna
að hún var ekki heldur and-
snúnari henni en svo, að hún
var fjarverandi þegar þing-
heimur greiddi atkvæði um
Kárahnjúkavirkjun, en þar
samþykktu allir viðstaddir
samfylkingarmenn frumvarp-
ið nema tveir, þær Rannveig
Guðmundsdóttir og Þórunn
Sveinbjarnardóttir...
Ekki er síður athyglisvert
þegar ferill Kárahnjúka-
frumvarpsins (þingmál nr.
503 og samþykkt sem lög nr.
38/2002) er skoðaður á vef
Alþingis (althingi.is) að þar
tók Ásta Ragnheiður aldrei
til máls. Var málið þó æði fyr-
irferðarmikið í opinberri um-
ræðu og ekki síst í þingsölum.
En það er henni
ofarlega í minni,
því hún lýkur
máli sínu á vefn-
um með því að
krefjast afsagnar
Valgerðar Sverrisdóttur, sem
nú er utanríkisráðherra...
En það er sótt að framsókn-
armönnum úr fleiri áttum.
Skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins gefur til kynna að kjör
hins nýja formanns flokks-
ins, Jóns Sigurðssonar, hafi
nákvæmlega engu breytt um
stöðu flokksins. Nú á auðvitað
eftir að reyna betur á hann, en
tíminn til kosninga er naumur.
Hins vegar kætast samfylking-
armenn örugglega yfir því að
aftur virðist vera að draga í
sundur með þeim og vinstri-
grænum og tala þingmenn
um að loks hafi tekist að snúa
vörn í sókn eftir skipulagt und-
anhald í skoðanakönnunum. í
því samhengi er fróðlegt að sjá
skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins um stjórnarsamstarf. Þar
vilja tæp 54% sjá Sjálfstæðis-
flokkinn áfram á valdastóli,
48% vilja að Samfylkingin
spreyti sigístjórn...
Af framboðsvíg-
stöðvunum
er það nýjast að
frétta að Bergþór
Ólason, aðstoðar-
maður Sturlu Böðvarssonar,
samgönguráðherra, hyggst
reyna fyrir sér í Norðvestur-
kjördæmi, en hann mun þó
miða á neðra sæti en ráðherr-
ann. Bergþór á tryggt fylgi
í Borgarnesi og Akranesi og
ekki er ósennilegt að Sturla
geti lagt inn gott orð fyrir
hann á Snæfellsnesi, svo þar
er sjálfsagt framtíðarmaður á
ferð...
andres.magnusson@bladid.net