blaðið - 19.09.2006, Qupperneq 20
32 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006
blaðið
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Nennið þið ekkert að vinna
þarna á RÚV?
„Ég ætti nú aö reikna saman timana sem ég hef unnið undanfarið,
en ég held að ég hafi ekki átt heilan frídag síðan íjúlí.
liigólfnr Bjarni Sigfússon, fréttamaður
"Róbert Marshall, forstöðumaður NFS, sagði í opnu bréfi til Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar að mun meira álag væri á starfsmönnum NFS en hjá kolleg-
um þeirra á RÚV. Þar vinni menn aöeins 12 daga í mánuði.
Fallegt handverk
og ljúfir tónar
HEYRST HEFUR...
Merkurtúnið á Akranesi
á sér merka sögu enda
uppeldisvöllur margra helstu fót-
boltakappa ÍA í gegnum tíðina,
þeirra á meðal má nefna menn
eins og Pétur Pétursson, Matt-
hías Hallgrímsson og Ríkharð
Jónsson. Nú á síðsumars- og
haustdögum
hefur hins vegar
litið út fyrir að
Merkurtúnið
heyrði sögunni
til og þar með
merkurhluti
knattspyrnusögunnar því bæj-
aryfirvöld könnuðu möguleika
á að kaupa upp hús í útjaðri
túnsins með það fyrir augum
að byggja stærri hús á túninu.
Forráðamenn bæjarins eru nú
hættir við þetta og væntanlega
léttir mörgum Skagamanninum,
ekki síst prestinum Eðvarð Ing-
ólfssyni sem hefur haft fyrir sið
í lok fermingarfræðslunnar að
efna til kappleiks á Merkurtúni
þar sem takast á lið fermingar-
barna annars vegar og kirkju-
starfsmanna hins vegar.
Stjörnublaðamaðurinn
Brynja Björk virðist ekki
vera sérlega mannglögg stúlka.
Á dögunum kom fram í Blaðinu
að Brynja hefði orðað Björk
Guðmundsdóttur við sumarbú-
stað á Þingvöllum en á daginn
kom að tengsl Bjarkar við húsið
fagra voru engin. I nýjasta tölu-
blaði Séðs og
heyrðs fjallar
Brynja um tón-
leika hljómsveit
arinnar Blood-
Hound Gang.
Brynju tókst
að fara rangt
með nöfn allra
hljómsveitar-
meðlima. Taldi
hún meðal annars að söngv-
arinn Jimmy Pop bæri nafn
gítarleikarans Liipiis Thiinder.
Mesta furðu vakti þó að undir
stórri mynd af bassaleikarnum
Evil Jared stóð að hér sæist gítar-
leikarinn Jimmy Pop.
„Allt sem varðar tónlist og hann-
yrðir geri ég af mikilli ástríðu og
gleði,“ segir Helga Soffía Konráðs-
dóttir, prestur í Háteigskirkju, þegar
hún er innt eftir því hvað blási
henni ástríðu í brjóst. Helga Soffía
hefur í nógu að snúast í erilsömu
preststarfinu en hún gefur sér þó
tíma til þess að sinna þessum áhuga-
málum sínum af nokkrum krafti.
Helga Soffía segist alla tíð hafa
heillast mjög af tónlist af ýmsu tagi
og skipi hún stóran þátt í lífi hennar.
,Ég hef sérstaklega mikinn áhuga á
söng, enda er söngur stór hluti af
mínu starfi sem prestur þó engin
sérstök krafa sé um að prestar séu
góðir söngvarar. Söngurinn er eins-
konar ósjálfráð tjáning hjá mér og
það má segja að ég syngi alveg eins
mikið og ég tala, og þó tala ég ansi
mikið,“ segir Helga Soffía hlæjandi.
,Ég hef alltaf verið svo heppin að geta
notið samvista við fólk sem syngur
mikið og þannig hefur söngurinn
orðið mér eiginlegur og sjálfsagður.
Um leið geri ég töluverðar kröfur
til söngs og ég held ég sé nokkuð
kröfuharður hlustandi," segir hún
hugsandi.
Helga Soffía hefur einnig haft
áhuga á hannyrðum frá unga aldri
eða allt frá því að hún lærði undir-
stöðuatriði þessara lista í barna-
skóla. „Ég hef mikla unun af því
að sauma út, sauma bútasaum og
prjóna flíkur á börnin mín og aðra.
Þetta hef ég gert síðan ég man eftir
mér og smám saman bætt við þessa
þekkingu mína með tímanum. Ég
hef verið dugleg að sækja ýmis
námskeið á þessu sviði og afla mér
þekkingar á tæknilegum hliðum
handverksins. En þetta er eins og
með allt annað, maður lærir mest á
því að prófa sig áfram og verja tíma
í þetta.“
Helga Soffía segist einnig hafa
mikinn áhuga á því að kynna sér
hvaða sigra aðrir vinni á sviði handa-
vinnunnar. „Ég hef mjög gaman af
þvi að skoða hannyrðir eftir aðra
og ég reyni að láta sýningar á hand-
verki ekki fram hjá mér fara. Ég
nota hvert tækifæri til þess að skoða
tækni, handverk og síðast en ekki
síst hina listrænu sköpun.“
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt (reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
3 9 2 5 1 4 6 8 7
7 4 6 2 3 8 9 1 5
5 8 1 6 7 9 2 3 4
4 1 9 7 2 3 8 5 6
6 2 3 4 8 5 1 7 9
8 5 7 9 6 1 3 4 2
9 3 5 8 4 2 7 6 1
1 6 4 3 9 7 5 2 8
2 7 8 1 5 6 4 9 3
Gáta dagsins:
3 9 7 5
5 1 8 9
9 6 8 1
7 4 5 8
8 7 9
6 2 1
8 3 2 6
2 7 6 1
4 3
Má bjóða þér að kaupa tannbursta?
Á förnum vegi
Bloggar þú?
Fannar Páll Aðalsteinsson
nemi „Nei, ég blogga ekki, ég
les bara önnur blogg.“
Hrönn Árnadóttir nemi
„Já, ég held úti bloggi. Ég skrifa
aðallega um lífið og tilveruna.“
Agnes Guðmundsdóttir nemi
„Nei, ég hef engan tíma fyrir
blogg. Enda hef ég ekkert merki-
legt að segja.“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
nemi „Já, ég blogga um allt og
ekkert. Annars er mikið af mynd-
um inni á blogginu."
Gunnar Helgason nemi
„Nei, ég hef allt annað við tímann
minn að gera.“