blaðið - 19.09.2006, Side 22

blaðið - 19.09.2006, Side 22
34 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 blaðið ímarit Máls og menning- ar, 3. hefti, er nýkomið út. Forsíðuna prýðir mynd af Grímseyjar- björgum, krökkum af lunda. „Grímsey er eins og leyni- gestur í þessu hefti,“ segir Silja Aðalsteinsdóttir, ritstjóri tímarits- ins. „f fyrravetur fékk ég tilboð um birtingu bréfs frá ástríðufullum íslandsvini frá 19. öld, Daniel Will- ard Fiske, sem fékk íslandsdellu 17 ára gamall og læknaðist aldrei af henni. Hann kom hingað til lands, keypti íslenskar bækur og kom upp frábæru bókasafni í Cornell-há- skólanum í Bandaríkjunum, Fiske- safninu. Þórunn Sigurðardóttir íslenskufræðingur komst í þetta bréf sem hann skrifaði Gísla Brynj- úlfssyni, þá 23 ára gamall, þar sem hann lýsir ást sinni á íslandi. Þegar ég fékk bréfið í hendur og ákvað að birta það þá vissi ég ekki hvað Grímsey myndi skipta miklu máli fyrir mig sjálfa á árinu. Fiske er fyrst og fremst minnst núna vegna tengsla hans við Gríms- eyinga. Hann kom þangað aldrei en frétti af skákáhuga eyjarbúa og gaf skákborð inn á hvert heimili og tvo glæsilega bókaskápa fulla af bókum sem enn eru í bókasafn- inu í Grímsey. Einnig ánafnaði hann Grímseyingum fjárupphæð í erfðaskrá sinni. Ég fór til Gríms- eyjar í sumar, sá bókaskápana og upplifði hvað Grímseyingar halda mikið upp á Fiske enn þann dag í dag. Þeir halda upp á afmæli hans árlega með stórveislu og þangað koma börn og gamalmenni og allir aldursflokkar þar á milli. Mér fannst gaman að lesa þetta skemmtilega bréf frá þessum unga manni frá því fyrir 150 árum og upplifa hvað hann er lifandi mann- eskja enn þann dag í dag á þessari fjarlægu eyju við heimskautsbaug. Þetta er kannski það efni sem er mér kærast í heftinu." Ljóðagerð, pólitík og tungan Af öðru efni nefnir Silja yfirlits- rein um ljóðagerð síðasta árs eftir stráð Eysteinsson: „Ástráður ger- ir manni stóran greiða með þessari grein því hann las allar ljóðabæk- urnar frá því í fyrra, 40 bækur, og veltir vöngum yfir því hvernig Is- lendingar yrkja nú til dags og hvort eitthvað nýtt sé á seyði eða hvort ljóðskáldin séu öll meira og minna Silja Aðalsteinsdóttir „Ég vil þvíhvetja ungt fólk sem hefur áhuga á íslenskri tungu, bókmenntum og listum til að athuga hvort tfmaritið sé ekki eitthvað fyrirþað." , v J I komin í sama farið. í heftinu er svo pólitísk grein um miðjuna hörðu og hina mjúku henti- stefnu eftir Stefán Snævarr. Þetta er góð greining á almennum stjórn- málum nú til dags og gífurlega lærð grein með mörgum tilvitnunum en líka mörgum skemmtilegum athug- unum hjá Stefáni. Gísli Sigurðsson, íslenskufræð- ingur og rannsóknaprófessor við Árnastofnun, íhugar þá umræðu sem geisaði síðastliðið vor um íslenska tungu, hvers konar mál- pólitík við höldum uppi og hvert hún muni leiða okkur. Þetta er fyrri hluti greinar hans en seinni hlutinn birtist í næsta hefti í nóv- ember.“ Nauðsynlegt að yngja upp í tímaritinu eru ljóð eftir ýmsa, saga eftir Steinar Braga og óvenju margir ritdómar. „Ég finn það á viðtökunum við þessu hefti að gagnrýni mörgum mánuðum eft- ir að bók kemur út er afskaplega þakklátt efni, bæði hjá lesendum og höfundum sem fá þarna iðu- lega svolítið hugsaðri umsagnir en í hasarnum fyrir jólin," segir Silja. „Þarna er skrifað um nokkrar skáld- menningarmolinn Afmælisborn dagsms WILUAM GOLDING RITHÖFUNDUR, 1911 JEREMY IRONS LEIKARI, 1948 EMILZÁTOPEK LANGHLAUPARI, 1922 y -[HlRAPy \ Til vonar og vara Vaseline - V\V Vaseline ; Vaselirie ) iMtcrslv^Care Leynigestur TMM Vasa línan Nú líka með ALOE VERA kolbrun@bladid.net Spenna og skemmtun Hjá Máli og menningu er komin út í kilju Berlínaraspirnar eftir Anne B. Ragde. Pétur Ástvalds- son þýddi. [ dimmum desemb- ermánuði liggur gömul kona fyrir dauðanum í Þrándheimi. Á meðan hún bíður örlaga sinna þurfa eiginmaður hennar, þrír synir og sonardóttir að takast á við atburði fortíðar til þess að geta hafið nýtt líf. En hvernig eiga gamall maður sem þvær sér ekki, hundaþjálfari, smámunasamur útfararstjóri, svínabóndi og samkynhneigður gluggaútstillingarmeistari að finna sameiginlegan takt í tilver- unni? Anne B. Ragde er nú vinsæl- asti höfundur Noregs. Berlínara- sþirnar varð margföld metsölu- bók í Noregi, skaut Da Vinci lyklinum aftur fyrir sig, enda er hún skrifuð af miklu næmi fyrir ólíkum hliðum tilverunnar og snýst um grundvallarspurn- ingar; hvernig hægt er að sætt- ast við tilveruna í stað þess að flýja hana y/t- Margföld verðlauna- og metsölubók Hjá Máli og menningu er komin út í kilju Stutt ágrip af sögu traktorsins á úkraínsku eftir Marinu Lewycka. Guðmundur Andri Thors- son þýddi. Þegar faðir systranna Veru og Nadezhu, nýlega orð- inn ekkill, tilkynnir þeim að hann hyggist giftast aftur, verður þeim Ijóst að þær verða að leggja til hliðar ævilangt hatur sitt hvor á annarri til þess að bjarga honum. Nýja ástin hans er nautnasjúk Ijóska með stór brjóst sem svífst einskis í þrá sinni eftir vestrænum lúxuslifn- aði sem hún sér í hillingum. En gamli maðurinn á sér líka sína drauma, auk þess sem hann þarf að halda áfram að skrifa sögu traktorsins í Úkraínu. Stutt ágrip af sögu traktors- irrs á úkraínsku sló rækilega í gegn í Bretlandi og fer nú mikla sigurför um Évrópu. Hún var tilnefnd til bæði Booker- og Or- ange-bókmenntaverðlauna og er ein mest selda bók síðustu ára í Bretlandi. Khrústsjov kemst ekki í Disneyland Á þessum degi árið 1959 reiddist sovéski leiðtoginn Nikita Khrúst- sjov þegar honum var tilkynnt að hann gæti ekki heimsótt Disney- land. Khrústsjov var i heimsókn í Bandaríkjum þar sem hann átti fund með Eisenhower forseta. Hann fór í skoðunarferð til Los HOU PET« °CKfT Angeles og heimsótti kvikmynda- ver í Hollywood. Hann vildi fara í Disneyland en var sagt að vegna öryggisráðstafana væri það ekki mögulegt. Khrústsjov reiddist illa og þrumaði: „Ég segi að mig langi mikið til að fara í Disneyland. Þá er mér sagt að ekki sé hægt að tryggja öryggi mitt. Hvað á ég þá að gera? Fremja sjálfsmorð? Hvað er að ger- ast? Ér kólerufaraldur í gangi þar eða hvað? Eða hafa bófaflokkar lagt undir sig staðinn og vilja skaða mig?“ Hann yfirgaf Los Angeles morguninn eftir. sögur og ævisögur sem komu út fyr- ir síðustu jól.“ Þegar Silja er spurð hvernig gangi að halda tímaritinu úti segir hún: „Það mætti alveg ganga betur. Það gengur ekki illa en fyrir svona rit er nauðsynlegt að yngja upp áskrif- endahópinn hjá sér. I þessu nýjasta hefti er fjallað um leikhúsbylting- una þar sem Þórhildur Ólafsdóttir tekur viðtal við leikara, leikstjóra og leikhússtjóra. Eitt af því sem þeir tala um er að það þurfi að yngja upp áhorfendur í leikhúsunum því annars muni leikhúsið deyja út. Það er alveg eins með svona tíma- rit. Áskrifendahópurinn má ekki eldast úr hófi. Ég vil því hvetja ungt fólk sem hefur áhuga á íslenskri tungu, bókmenntum og listum til að athuga hvort tímaritið sé ekki eitthvað fyrir það.“ Þeir sem vilja gerast áskrifend- ur að Tímariti Máls og menningar geta haft samband við Silju og póst- fangið er silja.adal@simnet.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.