blaðið - 23.09.2006, Qupperneq 16
KULDAGALLARNIR KOMNIR
Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
Auglýst eftir framboöum
til prófkjörs í Reykjavík
Ákveðiö hefur verið að prófkjörum val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins fyrir
alþingiskosningarnar næsta vor fari fram 27. og 28. október næstkomandi.
Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti.
a) Gerð er tillaga til yfirkjörstjórnar innan ákveðins framboðs-
frests sem yfirkjörstjórn setur. Tillagan er því aðeins gild að
hún sé bundin við einn flokksmann. Enginn flokksmaður getur
staðið að fleiri tillögum en hann má fæst kjósa í prófkjörinu.
Tillagan skal borin fram af 20 flokksmönnum búsettum í
kjördæminu.
b) Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til
viðbótar frambjóðendum skv. a-lið.
Hér með er auglýst eftir tillögum að framboðum til prófkjörs, sbr. a-lið hér að
ofan. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling enda liggi fyrir
skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til prófkjörs. Frambjóðendur
skulu vera kjörgengir í næstu alþíngiskosningum. 20 flokksbundnir sjálfstæðis-
menn, búsettir í Reykjavík, skulu standa að hverju framboöi og enginn flokks-
maður getur staðið að fleiri framboðum en 10.
Tillögum að framboðum ber að skila, ásamt mynd af viökomandi og stuttu æviágripi,
helst á tölvutæku formi, til yfirkjörstjórnar á skrifstofu Varðar - Fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík í Valhöll, Háaleltlsbraut 1, eigi sfðar en kl. 17.00, 6. oktðber
2006. Eyðublöð fyrir framboð og æviágrip er hægt að fá á skrifstofu Sjálfstæðísflokksins
eða á heimasíðu flokksins www.xd.is
Sjálfstæðisflokkurinn
Hádloitisbraut 1 105 Reykjavík
sími 515 1700 v/ww.xd.ls
mv#
1I
16
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006
blaöiö
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Ætlarðu núna m
á sjóinn? V f
t -
„Eg ætla að róa á ný mið."
RóbertMarshall
Þegar Róbert lagði árar í bát á fréttastofu
Stöðvar 2 hafði hann á orði, að hann færi
þá bara á sjóinn. I kjölfarið var hann óvænt
munstraður til þess að ýta NFS úr vör, en
í gær var hann látinn taka pokann
ÍKU sinn‘
Hreyfingin kær-
komin í þögninni
Sigríður Ólafsdóttir er tíðurgestur
í stofum landsmanna en hún hefur
undanfarna mánuði gegnt starfi
veðurfréttamanns á NFS. Starfið
er erilsamt enda getur tekið á taug-
arnar að standa í beinni útsendingu
og því eru frídagar kærkomnir.
Sigríður er þó ekki alltaf i fríi
um helgar enda þarf að upplýsa
okkur um veðrið sunnudaga jafnt
sem aðra daga. „Starfið er mjög
skemmtilegt og fjölbreytt,“ segir
Sigríður sem er menntaður land- og
jarðfræðingur. „Til að byrja með
leist mér ekkert á blikuna að vera í
sjónvarpi og fannst það ekki liggja
sérlega vel fyrir mér, en það hefur
allt orðið betra með æfingunni og
núna er ég bara orðin nokkuð afs-
löppuð,“ segir hún brosandi.
Sigríður segist finna fyrir miklum
áhuga landa sinna á veðurfarinu.
„Veðrið er auðvitað eitthvað sem allir
hafa skoðun á. Margir velta veðrinu
fyrir sér dag frá degi og fylgjast
náið með öllum breytingum sem
á því verða. Við fáum fjölmargar
hringingar þar sem fólk kemur
gjarnan með sínar eigin spár eða
bendir okkur á eitthvað óvenjulegt
sem gæti verið fyrirboði um veðra-
brey tingar. Hér áður fyrr þurfti fólk
auðvitað að treysta á eigið hyggjuvit
þegar kom að veðrinu, enda áttu
bændur og aðrir mikið undir veður-
guðunum og þetta er skemmtilegur
arfur frá þeim tíma.“ Sigríður segir
það ekki bara vera eldra fólk sem
velti veðrinu fyrir sér heldur fylg-
ist unga fólkið einnig með. „Yngri
kynslóðin veltir veðrinu gjarnan
fyrir sér í sambandi við afþreyingu,
hvort í dag verði mögulega veður
til þess að slaka á á Austurvelli og
sötra bjór eða fara út úr bænum.“
Á sumrin segist Sigríður reyna
að komast sem flestar helgar út á
land til þess að njóta náttúrunnar,
þannig slaki hún á og hreinsi hug-
ann. „Það eru ekki margar fríhelgar
yfir sumarið sem ég held mig innan
borgarmarkanna en á slíkum sunnu-
degi myndi ég líklega hefja daginn
á því að fara með son minn í sund
og síðan myndum við fá okkur ís í
hverfisbúðinni. Við förum mikið
í sund, á línuskauta og í stuttar
gönguferðir. Ég sit svo mikið í vinn-
unni og því er hreyfing kærkomin
í þögninni. Mér finnst gott að tala
ekki of mikið þegar vinnudegi
lýkur enda nærri búin með kvótann
á þeim vígstöðvum. Þannig finnst
mér gott að slaka á og finna friðinn,"
segir veðurfréttamaðurinn Sigríður
að lokum.
eftir Jim Unger
Hvor ykkar er hershöfðinginn?
11-16
© Jim Ungar/dist. by Unitod Modia, 20<
Hvað bar hæst
í vikunni?
Arnbjörg Sveinsdóttir, alþingismaður
Það er aðalfundur Sjálfstæð-
isfélags Akureyrar og mál-
fundarfélagsins Sleipnis. Þar
lýsti Halldór Blöndal því yfir
að hann myndi ekki bjóða sig
fram í komandi kosningum til
Alþingis. Það var mjög þrungin
stund, því hann er búinn að
vera lengi í stjórnmálum. Við
þökkuðum honum fyrir hvað
hann hefur lagt mikið á sig
fyrir flokkinn og ég notaði þá
jafnframt tækifærið og lýsti því
yfir að ég myndi sækjast eftir
því að leiða lista sjálfstæðis-
manna hér í kjördæminu.
Elín Gestsdóttir, framkvæmdastjóri
Fegurðarsamkeppni Islands
Það er bara eitt sem kemur
upp í hugann hjá mér og
það er að við íslendingar
náðum þriðja sæti í keppninni
sem ég var að dæma í. Sif
Aradóttir, fegurðardrottning
íslands, lenti í þriðja sæti í Miss
Scandinavia and the Baltic
Sea. Keppnin var haldin um
borð í skemmtiferðaskipi milli
Helsinki og Tallinn. Þetta var
sérstaklega ánægjulegt kvöld
og ég er enn í sæluvímu.
Friðrik Þór Friðriksson, leikstjóri
Það er frumsýningin á nýrri
kvikmynd Lars von Trier,
Direktoren for det hele. Hún
fjallar um kaup íslendinga á
fyrirtækjum í Danmörku og
sjálfur leik ég íslenskan kaup-
sýslumann, Finn Sigurðsson.
Mig grunar að maðurinn sem
ég leik sé lauslega byggður á
Jóhannesi í Bónus. Eg hafði
mjög gaman af því að leika á
móti öllum helstu leikurum
Danmerkur og var bara
nokkuð ánægður með eigin
frammistöðu.