blaðið - 27.09.2006, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006
bladiö
INNLENT
FELAG ISLENSKRA ORGANLEIKARA
Mótmæla uppsögn
Félag íslenskra organleikara mótmælir harðlega
ákvörðun stjórnar Skálholts um að segja Hilmari
Erni Agnarssyni upp störfum sem organista Skál-
holtskirkju. Félagið segir uppsögnina ekki gilda
þar sem ranglega sé að henni staðið.
Atli í Suðurkjördæmi
Atli Gíslason hefur ákveðið að gefa kost á sér í
fyrsta sæti á framboðslista Vinstri-grænna í Suður-
kjördæmi. Kjördæmisráð Vinstri-grænna hafði áður
hvatt hann til framboðs. Atli er í dag varaþing-
maður í Reykjavík.
VIÐSKIPTALIF
Laun lítt tengd árangri
Islensk fyrirtæki gera lítið af því að binda laun árangri. Þetta
er niðurstaða rannsóknar á vegum Háskólans í Reykjavík
sem verður kynnt í dag. Rannsóknin leiddi í Ijós að meiri-
hluti fyrirtækja leggur ekki mat á frammistöðu starfsfólks
og stjórnenda með formlegum hætti.
Falleg - sterk - náttúruleg
Suöurlandsbraut 10
Sími 533 5800
www.simnet.is/strond
VSTRÖND
Lögregla:
Fékk leyfi
hjá mömmu
14 ára piltur var tekinn á
mótókrosshjóli í Reykjavik á
^mánudag. Pilturinn
l reyndi að aka á
brott en náðist.
, Hann ók á miklum
> hraða í gegnum
barnahverfi.
Pilturinn sagðist hafa
fengið leyfi frá móður sinni til
að keyra hjólið en slíkt leyfi geta
foreldrar ekki gefið.
ÖMicmoII I--? MlCfOSOÍt
Outlook Lnr* PowerPoint
Miaosoft
Word
Microsoft
Excel
. Microsoft
Access
\ Microsoft
S____| FrontPage
AdobcfPhotoshop Lotus. HOtBS
WWW.TOLVUMAM.IS* SÍMI: SS2-2011 • TOLVUNAM TOIVUNAM.IS
Til bókaútgefenda:
BÓKATÍÐINDI 2006
Skilafrestur vegna kynningar og
auglýsinga í Bókatíðindum 2006
er til 12. október nk.
Ritinu verður sem fyrr dreift
á öll heimili á íslandi
Allar upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda,
Barónsstíg 5, sími 511 8020.
Netfang: baekur@simnet.is
--------------444-------------
Frestur til að lecjgja fram
bækur vegna Islensku
bókmenntaverðlaunanna 2006
er til 13. október nk.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
FÉLAG ÍSLENSKRA
BÓKAÚTGEFENDA
Veik samningastaða Islendinga Forsætisráðherra
viðurkennir að samninganefnd islenskra stjórnvalda
hafi verið i veikri samningastöðu og þvíhafi Bandarikja
menn náð að setja fram einhliða verðmat við brottför
varnarliðsins. Hann bendir á að Bandaríkjaher muni
með ýmsum hætti gera varnir iandsins sýnilegar.
Mynd/Kriítiim
Samkomulag um varnir og viðskilnaðinn við Bandaríkjaher:
Stillt upp við vegg
■ Slæm samningastaða íslendinga ■ Bandaríkjaher réð verðmati
■ Bandaríkjaher sinnir vörnum áfram
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
Jslenska samninganefndin var ekki
í góðri samningastöðu þar sem her-
inn var á leið úr landi og við höfðum
fátt að bjóða. Að því gefnu teljum
við niðurstöður viðræðnanna mjög
viðunandi,” segir Geir H. Haarde,
forsætisráðherra.
Sami aðili og tilkynnti símleiðis
15. mars síðastliðinn um endanlega
brottför varnarliðsins hringdi í gær
og staðfesti samkomulag um áfram-
haldandivarnarsamstarfíslendinga
og Bandaríkjamanna. Um klukkan
ellefu í gærmorgun hringdi Nicholas
Burns, aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, í Geir og tilkynnti
að samkomulag hafi náðst. Stefnt er
á að utanríkisráðherrar landanna
skrifi undir samkomulagið í Wash-
ington eftir tvær vikur.
Einhliða verðmat
Viðskilnaðnum eru gerð skil í sér-
stökum skilasamningi þar sem þess
er getið í megindráttum hvernig
honum verður háttað. Helstu nið-
urstöður hans eru að íslendingar
fá afhent, án endurgjalds, öll mann-
virki og búnað varnarliðsins á Suð-
urnesjum í skiptum fyrir að bera
kostnað af niðurrifi og hreinsun
mengaðs jarðvegs. Athygli vekur að
allt verðmat í viðræðunum byggist
BANDARÍKJAMENN
VERÐA ÁFRAM MEÐ:
■ Varnarsvæöi með hátíðnifjarskipta-
búnaði fyrir kafbáta og orrustuþotur
■ Árlegar heræfingar hér á landi
■ Aðgang að íslenskum landsvæðum
■ Aðstöðu til herflugvallar
á formúlum Bandaríkjahers og því
um einhliða útreikninga að ræða.
Jón Sigurðsson, starfandi utanrík-
isráðherra, leggur á það áherslu
að kostnaðurinn við hreinsun
mengaðra landsvæða væri þekkt í
meginatriðum.
„Við vitum í megindráttum hvaða
svæði þarf að hreinsa og hver kostn-
aðurinn í því er. Forgangsatriði er
að stofna hið nýja þróunarfélag um
uppbyggingu svæðisins og fara í
hreinsun stærstu svæðanna,” segir
Jón.
Dýr búnaður í skiptum
Til að standa straum að kostnaði
við hreinsum landsvæðanna fáum
við dýrmætan búnað frá varnarlið-
inu til áframhaldandi flugrekstrar
á svæðinu. Samið hefur verið til
fimm ára um leigu á þessum búnaði
og greidd málamyndaleiga upp á 1,5
milljón króna á mánuði. Heildar-
verðmæti búnaðarins, metið útfrá
formúlu Bandaríkjahers, er 3,5 millj-
arður og því ljóst að um mikinn
happafeng er hér að ræða.
Bandaríkjamenn munu sýna sig
Albert Jónsson, formaður ís-
lensku sendinefndarinnar, segir
að aldrei hafi staðið til að breyta
orði í upprunalegum varnarsamn-
ingi landanna frá 1951 enda engin
þörf á.
„Við brey ttum ekki staf í uppruna-
lega varnarsamningnum og það
stóð aldrei til. Gildandi samningur
var ekki háður fastri viðveru banda-
ríkjahers hér á landi,” segir Albert.
Geirítrekar að þrátt fyrir að Banda-
ríkjaher verði hér ekki með fasta við-
veru þá verði varnir landsins sýni-
legar. Hann segir samskiptaleiðir á
hættutímum og varnaráætlun ekki
verða kynntar fyrir almenningi.
„Bandaríkjaher verður hér með
reglulegar heræfingar sem leiða til
þess að loftvarnir landsins verða
sýnilegri. Einnig munu þeir sýna
sig hér með öðrum hætti, til dæmis
með herskipum,” segir Geir.
Jón tekur undir að ekki sé ástæða
til annars en að gera megi ráð fyrir
virkum vörnum landsins af hálfu
Bandaríkjamanna.
„Hér verður ekki tómarúm í örygg-
ismálum landsins þó svo að varn-
irnar séu ekki staðbundnar á Kefla-
víkurflugvelli. Áfram verða virkar
varnir tryggðar,” segir Jón.
Össur ósáttur við pukur ráðamanna:
Omögulegt ao meta varnirnar
„Það er með öllu óboðlegt í lýð-
ræðisþjóðfélagi að fulltrúar í utan-
ríkismálanefnd, sem hefur hefur
lögbundna trúnaðarskyldu og rík-
isstjórnin hefur lögum samkvæmt
skyldu til að hafa samráð við, fái
ekki nasasjón af varnaráætlunum
landsins," segir Össur Skarphéðins-
son, fulltrúi Samfylkingarinnar í
utanríkismálanefnd.
Össur er afar óánægður með þá
leynd sem ríkir um varnir lands-
ins. „Á meðan sú staða er uppi
er með engu móti hægt að meta
aóskaði eftir
upplýsingum um
varnaráætlun en
varneitað
Össur Skarphéðinsson
fulltrúi Samfylkingarinnar
(utanrikismálanefnd.
það hvort hér séu einhverjar eigin-
legar varnir eða ekki. Við verðum
einungis að treysta orðum forsæt-
isráðherra og utanríkisráðherra.
Varnir íslendinga virðast helst fel-
ast í því að Bandaríkjamenn lýsa
því yfir að þeir séu vinir okkar
áfram.“
Össur segir undarlegt að það sé
lagt í vald tveggja ráðherra, sem
hafi verið harðlega gagnrýndir
fyrir samningatækni, að meta
hvort varnaráætlunin sé trygg.
,Það er athyglisvert að þessi samn-
ingur gerir ekki ráð fyrir neinum
sérstökum öryggisviðbúnaði ef
það allra versta gerist, til dæmis
ef hryðjuverkamenn gripu til svip-
aðra bragða og þegar ráðist var á
tvíburaturnana í New York 2001.”