blaðið - 27.09.2006, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006
blaðið
til Dublin
Fyrsta ferð 28. sept.
Well shirigim
duraham da
Wack fall the
daddy oh,
Wack fall og
ég fœ ó af
DUBLIN
aldrei nóg!
Verð frá kr.
ó mann í tvíbýli á Burlington
Hotel í 3 nœtur 28. september.
Dublinarferðir í haust: 5. og
19. október. 9. og 23. nóvember.
Aðeins 2ja tíma flug.
Dublin er sfaðurinn í dag -
heímsklassa menningarviðburðir
og kráarkúltúrinn, tónlistin og
mannlífið klikka aldrei.
lÍRVALIÍTSÝN
www.urvalutsyn.is
VISA
Sími 565 4000
www.urvalutsyn.is
Bin Laden á lífi
Sjónvarpsstöðin Al Arabiya hefur eftir liðsmanni talibana í Aíganistan að
Osama bin Laden, leiðtogi AI-Kaeda-hryðjuverkanetsins, sé á lífi og við hesta-
heilsu en sú saga komst á kreik um helgina að leyniþjónusta Sádi-Arabíu hefði
heimildir fyrir því að hann hafi látist úr taugaveiki fyrir nokkru. Talið er að bin
Laden hafist við í fjallahéruðum á landamærum Afganistans og Pakistans.
Svanasöngur Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, ávarp-
aði flokksþing Verkamanna-
flokksins isíðasta sinn sem
formaður flokksins i gær
Tony Blair hrósaði Gordon Brown í hástert:
Slíðraði sverðin
■ Varöi utanríkismálastefnuna ■ Cherie Brown stelur senunni
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hóf aðflugið að endalokum
síns pólitíska ferils þegar hann ávarp-
aði flokksþing Verkamannaflokks-
ins, sem fer fram í Manchester, í síð-
asta sinn sem formaður flokksins. í
ræðu sinni hvatti hann flokksmenn
til að láta af innanflokksátökum og
einbeita sér að stefnumálum sem
tryggi Verkamannaflokknum sigur
í næstu í kosningum.
Forsætisráðherrann reifaði feril
sinn í ræðunni og sagði að þau verk-
efni sem eftirmaður hans á stóli for-
sætisráðherra fengi séu risavaxin og
mun alþjóðlegri í vídd sinni miðað
við þau verkefni sem hann þurfti
að takast á við þegar hann komst til
valdaárið 1997. Blairvarðieinnigum-
deilda stefnu sína í utanríkismálum
og sagði að hryðjuverkaógnin væri
ekki afleiðing stefnunnar heldur at-
laga að vestrænu gildismati.
Þrátt fyrir að mikið hafi verið
gert úr því ósætti sem á að ríkja á
milli Blairs og Gordons Browns fjár-
málaráðherra að undanförnu bar
forsætisráðherrann klæði á vopnin.
Brown, sem þykir líklegasti arftaki
Blairs, hefur verið sakaður af stuðn-
ingsmönnum og bandamönnum Bla-
irs um að grafa undan stöðu forsætis-
ráðherrans til þess að greiða leið sína
í formannsstólinn og þar af leiðandi
auka á þá óeiningu sem hefur ríkt
innan flokksins. Þessi umræða mót-
aði áherslur í ræðum ráðherranna
tveggja á þinginu og hafa þeir kapp-
kostað að leggja áherslu á að eining
ríki meðal flokksforystunnar.
Hrósuðu hvor öðrum
Forsætisráðherrann hældi Brown
óspart í ræðu sinni og sagði Blair
meðal annars að Brown hefði leikið
lykilhlutverk í því að tryggja Verka-
mannaflokknum sigur í þrennum
síðustu kosningum. Á mánudag
hafði Brown haldið ræðu á flokks-
þinginu þar sem hann mærði Blair
mikið og sagði það forréttindi að
hafa unnið með slíkum manni.
Það vakti athygli sumra fjölmiðla-
manna að meðan Brown fór lofs-
orðum um Blair þá stóð eiginkona
forsætisráðherrans, Cheri, upp og
gekk úr salnum. Blaðamaður Blo-
omberg-fréttastofunnar hélt því
fram að hún hafi kallað Brown lyg-
ara þegar hún gekk úr salnum. Tals-
maður forsætisráðuneytisins sagði
á mánudag að fréttin væri uppspuni
frá upphafi til enda. Reyndar gerði
forsætisráðherrann þessa frétt að
umtalsefni í ræðu sinni í gær. Um
leið og hann þakkaði konu sinni
fyrir stuðninginn gegnum tíðina
sagði hann fundarmönnum að hann
hefði litlar áhyggjur af þvi að hún
myndi taka saman við manninn í
næsta húsi, en bústaður fjármála-
ráðherra er við hliðina á forsætisráð-
herrabústaðnum í Downing-stræti.
Senuþjófar
Ummæli Cherie Blair og tal
gamals samstarfsmenn Blair stálu
senunni frá vinarhótum Blair og
Brown. Eiginkonan og náinn sam-
verkamaður Blair hafa nefnilega
stolið senunni.
Peter Mandelson sem var náinn
samverkamaður Blairs og Browns
við endurmóta hinn nýja Verka-
mannaflokk, staðfesti í viðtali við
BBC það sem margir hafa haldið
fram, að það hafi aldrei gróið um
heilt á milli forsætisráðherrans og
fjármálaráðherrans eftir að afráðið
var að Blair myndi leiða flokkinn
árið 1994. Hann sagðist þó sann-
færður um að Brown gæti leitt flokk-
inn til sigurs í næstu kosningum.
Flugsamgöngur til Vestmannaeyja:
Grípa þarf til ríkisstyrkja
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Við höfum rætt við flugfélögin
og satt að segja hafa viðbrögðin
ekki verið jákvæð. Ég óttast að við
munum þurfa að grípa til ríkis-
styrkja til að tryggja þessa flugleið
til Eyja,” segir Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra um nýlega
ákvörðun Landsflugs um að hætta
áætlunarflugi til Vestmannaeyja.
Hann á von á niðurstöðum á allra
næstu dögum.
„Ég er að skoða flugsamgöngur til
Vestmannaeyja og hef fulla heimild
til þess að leita leiða til samninga
og útboðs á þessari flugleið. Við
munum reyna að ná samningum
fyrst,” segir Sturla. „Ég vona að ekki
komi til niðurgreiðslu af hálfu ríkis-
ins í stórum stíl en viðbrögð frá flug-
rekstraraðilum hafa ekki verið góð.”
Sturla hefur beitt sér fyrir því
að sjóflutningar verði hagkvæmari
fyrir flutningsaðila og ítrekar að á
Ekki mikil bjartsyni Sturla Böðvarsson samgönguraðherra hefur ekki fengið
jákvæð viðbrögð frá flugfélögum um áætlunarflug til Vestmannaeyja. Hann
óttast að grípa þurfi til rikisstyrkja til að tryggja flugleiðina. Biammki
endanum sé það markaðurinn sem
ráði ferðinni.
„Ég hef lagt áherslu á að allra leiða
verði leitað til þess að koma þunga-
flutningum út á sjó en hagsmuna-
aðilar eru ekki bjartsýnir á þá leið,”
segir Sturla. „Hvernig sem þessi mál
enda legg ég eftir sem áður mikla
áherslu á að fá fjármuni til upp-
byggingar á þjóðvegakerfinu. Þær
áherslur eru alveg óháðar því hvort
samingar náist um sjóflutningana.”