blaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 2

blaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 2
blaAift 2 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 KnviWMtmm Bjart Norðaustan fimm til þrettán, hvassast á Vest- og Austfjörðum. Rigning norðan- og austanlands en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Bætir í vind og úrkomu á Austfjörðum í kvöld. Hiti 4 til 10 stig að deginum. Á MORGUN Kalt Norðaustan átta til fimmtán metrar á sekúndu. Rigning með köflum norðan- og austanlands, en siydda til fjalla. Annars þurrt að kalla. Hiti 1 tii 8 stig, hlýjast suðvestantil. vIða um heim Algarve Amsterdam Barcelona Berlin Chicago Dublin Frankfurt 23 Glasgow 16 Hamborg 23 Helsinki 15 Kaupmannahöfn 6 London 14 Madrid 16 Montreal 13 New York 15 Orlando 13 Osló 15 Palma 16 Paris 23 Stokkhólmur 3 Þórshöfn 13 21 9 24 17 14 10 Hefur séð um áramótabrennur í rúm fimmtíu ár: Bóndi sakaður um að brenna bát í óleyfi ■ Brennubóndi í hálfa öld ■ Báturinn var handónýtur Bandaríkin: Óttast um stöðu vísinda Þrátt fyrir að þrenn Nóbels- verðlaun í vísindum hafi fallið Bandaríkjamönnum í skaut í þessari viku telja bandarískir vísindamenn að þeir haldi ekki yfirburðastöðu sinni til lengdar. Ríkið greiði ekki eins mikið fé til vísinda og áður. Bandarískir vísindamenn fengu Nóbelsverð- laun í eðlisfræði, læknisfræði og lyfjafræði í vikunni. Kjararáð: Topparnir fá launahækkun Kjararáð hefur ákveðið að hækka laun manna í æðstu embættum þjóðarinnar um þrjú prósent. Hækkunin er afturvirk tili.júlí. Þetta er í fyrsta skipti sem ráðið lætur til sín taka en kjara- ráð var sett á laggirnar þegar lög um Kjaradóm og kjaranefnd voru felld úr gildi í kjölfar um- deilds úrskurðar Kjaradóms í desember síðastliðnum. Hækk- unin kemur til viðbótar þeirri 2,5 prósenta hækkun sem sömu aðilar fengu í byrjun ársins. Eftir Val Grettisson vaiur@bladid.net ,Ég tók bát og spurði mann hvort ég mætti brenna hann og gaf hann mér leyfi," segir Sigðurður Sveinsson, bóndi á fsafirði. Hann var ákærður fyrir eignaspjöll vegna þess að hann tók trillu sem hafði legið óhreyfð og skemmd í ísafjarðarhöfn í talsverðan tíma og brenndi hana á áramóta- brennu á Hauganesi árið 2003. Málinu var vísað frá Héraðsdómi Vestfjarða í lok september og var því skotið til Hæstaréttar. Þar féll úr- skurður á miðvikudag um að málið yrði tekið aftur upp í héraðsdómi. „Báturinn var orðinn alveg ónýtur og það borgaði sig ekki að gera við hann,“ segir Sigurður en maðurinn sem hann fékk leyfi hjá hafði átt helmingshlut í bátnum en afsalað sér honum þegar Sigurður spurði leyfis. Samkvæmt dómsorði var báturinn ónothæfur með öllu og hálfsokkinn í höfninni. Hafnarstjórn ísafjarðar geymdi bátinn á eigin kostnað en hann var gjörsamlega ónýtur og mikið fúabrak samkvæmt dómsorði. Að sögn Ólafs Hallgrímssonar, full- trúa sýslumanns á Isafirði, áfrýjaði hann dómnum þegar honum var vísað frá héraðsdómi. Ástæðan var sú að dómari taldi meint brot Sig- urðar falla undir gripdeild en ekki eignaspjöll. Eftir Val Grettisson valur@bladid.net „Við tengjum saman kristið trúfélag og önnur trúarbrögð," segir Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur í Fríkirkj- unni í Reykjavík. Á föstudaginn síðasta var jarðarför búddista í kirkj- unni. Hjörtur Magni sá um athöfn- ina en það mun vera afar sjaldgæft á Islandi að prestur sjái um slíkar athafnir þó svo að einstaklingar af öðrum trúarbrögðum en kristni hafi nýtt sér kirkjurnar. „Trúarbrögðin eiga að brúa bil á milli ólíkra menningarheima endar Sigurður hefur séð íbúum á ísa- firði fyrir áramótabrennum í rúm 50 ár. Hann hefur glatt margan mann- inn á áramótum með þessari gömlu hefð og hefur notið aðstoðar svokall- aðra lærlinga. Sjálfur segir Sigurður að lærlingarnir séu bændur í sveit- inni sem rétti honum ómetanlega hjálparhönd enda sé hann orðinn 84 ára gamall. Spurður hvort Sigurður ætli að halda brennu í lok árs segist hann bú- ast við því. Hann er aftur á móti að selja fé sitt og hætta sem bóndi. „Ég veit nú ekki hvað ég fer að gera þegar ég hætti en er það ekki einmitt tilgangurinn," segir Sigurður hlæj- andi að lokum. er kjarninn ávallt kærleikur og rétt- læti,“ segir Hjörtur en jarðarfarir búddista eru um margt ólíkar þeim sem tíðkast á meðal kristinna. Þá eru færðar matarfórnir þar sem mat er raðað í kringum kistu þess sem er verið að jarðsetja. Það er gert til þess að sá látni hafi eitthvert veganesti á leið sinni í dauðanum. Einnig er mikið um reykelsi og segir Hjörtur að angan og reyk leggi um alla kirkj- una á mjög skemmtilegan hátt þegar reykelsin eru brennd. Aðspurður hvort hann nýti sér hefðir annarra trúarbragða við venju- legar messur svarar hann neitandi. Sjálfstæðu leikhúsin: Harma lækkun á fjárframlagi Stjórn Bandalags sjálfstæðra leikhúsa er ósátt við að fjárfram- lög til atvinnuleikhópa skuli lækkað í frumvarpi til fjárlaga 2007. Stjórnin gagnrýnir að á sama tíma og áhorfendum á sýningar fjölgi um 31 prósent á milli ára skuli yfirvöld skera niður fjár- stuðning við leikhópana. Kleip í kærustu annars: Sleginn og kjálkabrotinn Tvítugur piltur var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fang- elsi fyrir hrottalega líkamsárás og ítrekuð umferðarlagabrot sem áttu sér stað 2004. Fórnarlamb piltsins kjálkabrotnaði í annarri af tveimur árásum en það kærði eingöngu þá síðari. Forsaga málsins er sú að fórnar- lambið á að hafa klipið í rassinn á kærustu þess dæmda. Hún tilkynnti kærastanum gripið sem gerði sér ferð til að berja manninn og slógust þeir. Við átökin týnir hinn dæmdi gullúri og vildi að fórnarlambið borgaði sér það. Fórnarlambið neitaði. Svo fór að hinn dæmdi fann piltinn sló hann í götuna ásamt tveimur mönnum sem létu svo höggin dynja á honum með fyrrnefndum afleiðingum. Þingmenn: Vilja flagga í þingsal Þingmenn úr Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu og Framsóknar- flokki hafa lagt fram þingsálykt- unartillögu þar sem mælst er til þess að hægt verði að flagga þjóðfána íslendinga í fundarsal Álþingis. í tillögunni er spurt hvernig það megi vera að innan veggja Alþingis, „hvar rætt er um eflingu, vegsemd og gildi þingsins í íslensku þjóðlífi, skuli þjóðfáni vor ekki hafinn til vegs og virðingar?“ Búddisti jarðaður Trúarbrögöirt eiga að brúa bil á milli menningarbeima að mati Hjartar Magna Jóhannssonar, prests í Fríkirkju Reykjavikur. BlaSiH/FMl Vill aö kirkjan sé opin öllum trúfélögum: Fríkirkjuprestur jarðar búddista

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.