blaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 6
boxið. Með því að nota gott álegg og breyta oft til
verður skólafólkið ekki leitt á nestiskostinum. SS áleggs-
skinkurnar eru frábært álegg sem gott er að hafa í
nesti. Prófaðu líka beikonskinku, brauðskinku eða
svínaskinku. Þú þekkirSS álegg á gulu umbúðunum.
Hunangsskinka
frá SS
gerir nestissomlokuno
fullkomno
6
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006
blaöió
GISTINÆTUR
Fjölgaði milli ára
Gistinóttum á hótelum í ágúst fjölgaði um tæp sex prósent milli ára. f
árvoru þær 162.900, en 154.100 í sama mánuði ífyrra. Gistinóttum
fjölgaði í öllum landshlutum og var aukningin hlutfallslega mest á Norð-
urlandi, 23 prósent. Fjölgunina má bæði rekja til (slendinga sem fjölgaði
um 23 prósent, og útlendinga sem fjölgaði um fjögur af hundraði.
rastæður mjög erfiðar til hjálparstarfs
ra milljóíT manna hefur þegið neyðaraðstoð
Líf eftir jarðskjálfta Stór
hluti lótks er ekki komið í
endantegt húsnæði ári eftir
jarðskjálftana ÍPakistan.
Áttatíu þúsund létu lifið.
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
„Enn er stór hluti fólks ekki kominn
í endanlegt húsnæði á skjálftasvæð-
unum í Pakistan og enn má sjá
afleiðingar skjálftans víða,“ segir
Sólveig Ólafsdóttir, sviðsstjóri út-
breiðslusviðs Rauða krossins.
Á sunnudaginn er eitt ár liðið frá
því að mikill jarðskjálfti skók Ka-
smír-hérað í Pakistan snemma dags
þann 8. október. Skjálftinn mældist
7,6 á Richter-kvarða, en talið er að
um áttatíu þúsund manns hafi látið
lífið af völdum skjálftans og 3,5 millj-
ónir manna misst heimili sín.
„Um sjötíu þúsund fjölskyldur, eða
um 350 þúsund manns, eru enn ekki
komnar í endanlegt húsnæði og nú
er vetur að ganga í garð á ný. Það
var lán í óláni í fyrra að veturinn
var mjög mildur og voraði snemma.
Menn höfðu óttast að holskefla yrði
af fólki sem myndi látast úr vosbúð,“
segir Sólveig.
Á skjálftasvæðunum eru einir
af hrikalegustu fjallgörðum jarð-
arinnar, sem gerðu flutning hjálp-
argagna á svæðin mjög erfiðan.
„Kostnaðarsamt er að flytja tjöld og
aðrar nauðsynjar á skjálftasvæðin,
en þau eru mjög fjöllótt og erfitt að
koma gögnum á áfangastað. Víða
Um 80 þúsund
létust af völdum
skjálftans
Sólveig Ólafsdóttir
sviösstjóri útbreiðslu-
sviðs Rauða krossins
reyndist eini möguleikinn að notast
við burðardýr til að koma nauðsyn-
legum varningi til heimilislausra
fjölskyldna í fjarlægum byggðum."
Áætlanir gera ráð fyrir að Rauði
krossinn og Rauði hálfmáninn hafi
aðstoðað á aðra milljón manna á
skjálftasvæðunum í Pakistan. „f
upphafi var tjöldum dreift og reynt
að koma fólki í skjól fyrir vetrartím-
ann, gert að sárum fólks og fengist
við hefðbundna hjálparstarfsemi.
Nokkrum vikum eftir skjálftann var
svo farið að dreifa verkfærakössum,
bárujárni og öðru til að fólk gæti
farið að lagfæra eigið húsnæði ef sá
möguleiki væri fyrir hendi. Fjöldi
fólks kaus það frekar en að vera í
tjaldbúðum allan veturinn,“ segir
Sólveig.
Að undanförnu hefur Rauði kross-
inn mest verið að aðstoða fólk á sviði
heilbrigðismála og almennra hrein-
lætismála. „Vatnshreinsitæki voru
sett upp og leiðslur lagðar í tjald-
búðirnar þar sem fólk leitaði skjóls.
Við höfum staðið fyrir hreinlætis-
kynningu til að fá fólk til að passa
að menga ekki vatnsbólin og koma
í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma. I
lok sumars kom upp kólerufaraldur,
en sem fer tókst að koma í veg fyrir
útbreiðslu hans. Markmiðið hefur
verið að efla fólk í þorpunum til að
geta bætt lífsskilyrðin sjálft, frekar
en að reiða sig á aðra hvað þetta
varðar."
Sólveig segir að Rauði krossinn
hafi orðið áþreifanlega var við það
stuttu eftir skjálftann, að konur á
skjálftasvæðunum hafi haft afskap-
lega lítil tækifæri til þess að koma
þörfum sínum á framfæri. „Hjálpin
var í fyrstu mjög karlmiðuð. Svæðið
er mjög hefðbundið þar sem karl-
menn eru algerlega í forsvari og
konur fara ekki út án þess að vera
í fylgd með karlmönnum," segir
Sólveig.
Fljótlega eftir skjálftann komu
fyrir tilfelli þar sem konum var
hreinlega neitað af karlmönnum að
láta gera að sárum sínum, þar sem
hjálparstarfsmennirnir voru lang-
flestir karlkyns í upphafi. „Því varð
fljótlega ljóst að kyngreina þyrfti að-
stoðina og heilbrigðisstöðvar voru
reistar að þörfum kvenna, þar sem
einungis voru kvenkys læknar og
hjúkrunarfræðingar."
Og Vodafone fær fyrst fyrirtækja að nota vörumerki Vodafone:
Breytist í Vodafone
Eftir Atla isleifsson
atlii@bladid.net
„Við vorum að undirrita samning
við Vodafone Group um nánara sam-
starf og munum framvegis heita
Vodafone," segir Árni Pétur Jóns-
son, forstjóri Vodafone á íslandi,
sem áður bar fornafnið Og á undan
Vodafone.
„Viðskiptavinir hafa nú aðgang að
vöru og þjónustu stærsta farsímafyr-
irtækis heims sem er með um 187
milljónir notenda."
Vodafone á íslandi er fyrsta sjálf-
stæða farsímafélagið í heiminum
sem fær að nota vörumerkið Vod-
afone. Vodafone kynnti í gær Vod-
afone Passport, þjónustu sem gerir
viðskiptavinum fyrirtækisins kleift
að hringja innan mestallrar Evr-
ópu á innanlandstaxta. „Samning-
urinn er við átján lönd, en áttatíu
prósent þeirra símtala sem berast
til íslands erlendis frá koma frá
þessum löndum. Ef þú ert staddur
í einhverju þessara landa þá hringir
þú heim á sama taxta eins og ef
þú værir staddur hérlendis. Verð á
fimm mínútna samtali frá Bretlandi
lækkar til að mynda um 76 prósent
svo þetta munar heilmiklu.“