blaðið - 06.10.2006, Qupperneq 47
blaðið
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2006 41
en lofar skemmtilegum
karsverðlaunum
Ellen DeGeneres hefur verið fengin
til að kynna næstu Óskarsverðlauna-
afhendingu og hefur lofað því að sýna
samkomunni tilhlýðilega virðingu og
vera skemmtileg, ólíkt grínistanum Chris
Rock sem kynnti á samkomunni fyrr á árinu við
misjafnar undirtektir. „Samkoman snýst um að heiðra
kvikmyndaiðnaðinn og þá sem að honum standa. Fólk tekur starfi
sínu alvarlega og ég er fengin til að láta þeim líða vel og gleyma sér
eina kvöldstund," sagði Ellen.
Leikarinn hláturmildi, Robin Williams, sagði að Ellen hentaði
frábærlega í hlutverkið, hún væri svo ekta. „Hún er með besta
hláturinn í bransanum. Það sést svo greinilega að henni finnst
raunverulega gaman þegar hún hlær,” sagði Williams.
■- ■ ■■■
Vivica Fox
Leikkonan þokkafulla, Vivica Fox, fékk
reisupassann í vikunni úr sjónvarpsþætt-
inum Dancing With The Stars sem sýndur
er vestra á sjónvarpsstöð-
inni ABC, en Vivica
þótti hafa staðið sig
með ágætum og
var talin einn sig-
urstranglegasti
keppandinn
þar til í gær.
Vivica hafði
fengið góða
dóma fyrir frammi-
stöðu sína af dómurum keppninnar fyrr í vik-
unni, en það dugði ekki til því hún var kosin
út af áhorfendum þáttarins sem hafa töluvert
vægi á við dómarana. Dómararnir höfðu
veðjað á að Jerry Springer og kántrísöng-
konan Sara Evans myndu detta út.
Stöð 2 10.20
Líf án vina?
The Comeback eru gaman-
þættir með Lisu Kudrow,
Phoebe úr Vinum, í aðalhlut-
verki. Segja mætti að þessir
þættir séu sumþart by.ggðir á
hennar eigin lífi því þún leikur
fyrrverandi gamanþáttastjörnu
sem gerir örvæntingarfulla og
hálf pínlega tilraun til að slá í
gegn á ný.
Skjár einn 21.50
Matur og dauði
Bandarískir þættírnir Law &
Order:Criminal Intent fjalla
um störf stórmálasveitar New
York-borgar og leit hennar að
glæpamönnum. Eftir að matar-
gagnrýnir er barinn til dauða
beinist grunur að kokkinum á
síðasta veitingastaðnum sem
hann heimsótti.
Stöð 2 Bíó 22:00
Ráðist á
lögguna
Spennutryllir sem er endur-
gerð samnefndrar myndar eftir
hrollvekjumeistarann John
Carpenter. Til stendur að loka
lögreglustöðinni í 13. umdæmi
og komið er að siðustu nótt-
inni áður en fangarnir sem þar
gista fangageymslur eru fluttir.
En þá er gert umsátur um stöð-
ina; harðsskeyttir glæpamenn
vilja einn af föngunum feigan.
outlet
VERÐ AÐUR 44.980
VERÐ AÐUR
BRAUT 54 BLÁU HÚSIN (VIÐ FAXAFE
streUson
gardeur
HUGO
\RMANl
collezione
Benvenuto
REDGREEN
BELLINI