blaðið - 19.10.2006, Side 1

blaðið - 19.10.2006, Side 1
Fimmtudagstilboð ■ MENNING Leiðin frá fegurð til spillingar er viðfangsefni mmc Arngríms Vídalíns ■ ORÐLAUS Ólafía Hrönn Jónsdóttir skemmti sér vel við að leika Elínborgu í Mýrinni. I SÍÐA 34 229. tölublaö 2. árgangur fimmtudagur 19. október 2006 FRJÁLST, ÓHJ Möguleg tengsl Svavars Gestssonar og STASI könnuð: Svavar hafði engan grun um njósnirnar ■ Tengsl Svavars og STASI könnuð ■ Jón Baldvin vildi rannsókn Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net „Ég hafði engan grun um þetta og datt ekki í hug að ég væri svo merkilegur að verið væri að fylgjast með mér á einhvern hátt,” segir Svavar Gestsson, sendiherra og fyrrverandi þingmaður, aðspurður hvers vegna hann hefði lagt fram fyr- irspurn á Alþingi 1995 um þau lagaákvæði sem giltu um símhleranir og hversu oft þeim hefði verið beitt á þessum tíma. Samkvæmt grein Þórs Whiteheads sagnfræð- ings í Fréttablaðinu í gær báðu ráðherrarnir Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Hermanns- son í desember 1999 Róbert Trausta Árnason, sem var varafastafulltrúi Islands hjá Atlantshafs- bandalaginu í lok kalda stríðsins, um að rann- Vissi ekki af rannsókninni Taidi sig ekki svo merkilegan aö fylgst væri með honum. saka hvort einhverjir Islendingar hefðu verið í þjónustu austurþýsku leyniþjónustunnar STASI. Þór vitnar í skriflega frásögn Róberts Trausta þar sem segir að Jón Baldvin hafi einkum haft áhuga á því að vita hvort Svavar Gestsson hafi verið einn erindreka STASI. Róbert kveðst hafa verið tregur til verksins þar sem hvorugur ráðherranna gat eða vildi gefa viðunandi svör um það hvernig hugsanlegar upp- lýsingar um mögulega íslenska erindreka STASI yrðu notaðar. Svörin sem Róbert Trausti fékk í Þýskalandi voru þau að STASI hefði ekkert orðið ágengt í að ráða til sín íslenska erindreka. Jón Baldvin Hannibalsson hefur vísað því á bug að hann hafi óskað sérstaklega eftir því að tengsl Svavars við STASI yrðu rannsökuð. Hins vegar hafi Róbert Trausti verið beðinn um að at- huga tengsl austurþýsku leyniþjónustunnar við íslenska þegna og ísland. Veldu 5 stjörnu öryggi lífsins vegna! Renault Laguna II Nýskr. 07.2005, 5 dyra, ssk., ekinn 19 þ. Verð kr. 2.490.000 Renault Megane II Nýskr. 07.2005, 3 dyra, bsk., ekinn 20 þ. Verð kr. 1.750.000 Renault Scenlc II Nýskr. 05.2005, 5 dyra, bsk., ekinn 17 þ. Verð kr. 2.050.000 Renault Megane II Nýskr. 06.2005, 5 dyra, bsk., ekinn 49 þ. Verð kr. 1.790.000 Grjóthálsi 1 b i I a I a n d. i s ,575 1230. Gert við troll á hafnarbakkanum Þaö er sjaldnast dauð stund þegar sjósókn og útgerö eru annars vegar og skiptir þá engu þó komið sé í höfn. Þessir litháísku netageröarmenn geröu við troll á hafnarbakkanum í Reykjavík í björtu en köldu veöri í gær. Vel aflaðist á (sland- smiðum í síðasta mánuöi og báru skip verðmætari afla aö landi en í sama mánuöi fyrir ári. Þaö er breyting frá fyrstu átta mánuöum ársins þegar verðmæti aflans var sex prósentum minna en fyrstu átta mánuði síðasta árs. mynd/frikki VEÐUR Bjart en kalt Norðaustanátt 8 til 15 metrar á sekúndu. Bjart og þurrt víðast en dálítil él austantil. Hiti frá frostmarki upp í 6 stig. ÍÞRÓTTIR » S/Á '’7 Suöurnesjaslagur Stórveldin af Suðurnesjunum, Keflavík og Njarðvík, slást um íslandsmeistaratitilinn í körfu- bolta. Deildln verður þó jafnarí en oftast áður. » síða 2

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.