blaðið - 19.10.2006, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006
blaftið
Á MORGUN VÍÐA UM HEIM
VEÐRIÐ í DAG
Kalt
Norðaustan 8 til 15 metrar á sekúndu
og dálítil él norðaustan- og austan-
lands, en annars bjartviðri. Hiti 0
til 6 stig að deginum, mildast við
suðurströndina.
Áfram kalt
Ákveðin norðaustanátt með
dálitlum éljum norðan- og aust-
anlands, en annars úrkomulítið.
Hiti 0 til 7 stig, mildast við
suðurströndina.
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
20
w
21
1S
04
14
15
Glasgow
Hamborg
Helsinki
kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
12
16
07
14
15
13
10
New York
Orlando
Osló
Palma
Parls
Stokkhólmur
Þórshöfn
14
20
06
24
16
12
08
Fíkniefnamisferli:
Ellefu teknir í
fimm málum
Ellefu voru teknir í tengslum
við fimm aðskilin fíkniefnamál
á þriðjudag og aðfaranótt þriðju-
dags í Reykjavík.
Maður á fimmtugsaldri var
færður niður á lögreglustöð
eftir að ætluð fíkniefni fundust
á heimili hans á þriðjudags-
morgni. Eftir hádegi fundust
fíkniefni í fórum tveggja einstak-
linga sem sátu að drykkju ásamt
þremur félögum sínum. Fólkið
var allt á miðjum aldri.
Eftir miðnætti voru svo tveir
fertugir menn teknir með fíkni-
efni en báðir voru stöðvaðir við
akstur. Allir voru með smáræði
af fíkniefnum á sér.
Esso á Blönduósi
Tengivagn inn
á lager sjoppu
Tengivagn rann af bílaplani
Vörumiðlunar og inn í lager
Esso-skálans á Blönduósi um
tíuleytið í gærmorgun. Engin
slys urðu á fólki.
Anna Kristín Davíðsdóttir
sagði í samtali við Blaðið að
vissulega hafi starfsfólki verið
brugðið þegar áreksturinn varð
en bætir því við að þetta hafi
bara vakið það starfsfólk sem
var ekki almennilega vaknað.
Að svo stöddu er ekki búið að
meta hversu mikið tjón varð
á húsinu en ljóst er að það er
verulegt.
Veit ekki af hverju hann fær ekki
að hitta móðurbróður sinn Maður
frá Vatnsleysuströnd fær ekki að
hitta háaldraðan móðurbróður vegna
þess að Garðvangur hótar að kalla á
lögreglu komi hann þangað.
Elliheimili bannar manni að hitta móðurbróður sinn:
Meinað að hitta
dauðvona frænda
■ Engar skýringar gefnar ■ Lögregla kvödd til ef hann kemur
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Ég hef sent bréf til Garðvangs, heil-
brigðisráðuneytis og landlæknis
vegna málsins," segir Hilmar Ingi-
mundarson, lögmaður manns
á Vatnsleysuströndinni sem er
meinað að hitta aldraðan móður-
bróður sinn sem býr á elliheimil-
inu Garðvangi í Garði. I bréfinu er
krafist útskýringar á því að maður-
inn fái ekki að hitta móðurbróður
sinn.
Að sögn mannsins fékk sonur
hans þau skilaboð frá hjúkrunarfor-
stjóra að hann væri ekki velkominn
til að hitta skyldmenni sitt aftur á
elliheimilinu og mun það ekki hafa
verið útskýrt nánar.
„Við óskum bara eftir skýringum
á því að hann fái ekki að hitta móð-
urbróður sinn,“ segir Hilmar, en
hjúkrunarforstjórinn hefur ekki
gefið tilhlýðilegar skýringar áþessu
að sögn mannsins aðrar en þær sem
hún á að hafa sagt við son hans. Þá
á hún að hafa sagt að hann hefði
greinilega verið þangað kominn í
öðrum tilgangi en að heimsækja
gamla manninn. Einnig á hún að
hafa bætt við að ef hann kæmi þá
yrði lögregla kvödd á staðinn.
„Ég hef ekki gert neitt á þessari
stofnun sem gefur tilefni til þess að
ég fái ekki að koma þangað,“ segir
maðurinn sem vill ekki gefa upp
nafn sitt. Hann segir þessar ásak-
anir alvarlegar og vill hreinsa æru
sína með því að fá svör frá stjórn
Garðvangs um ástæður þess að
honum sé meinað að koma í heim-
sókn. Hann segist þar að auki
aldrei hafa komið í heimsókn til
móðurbróður síns einn síns liðs og
segir að þeir sem komi alltaf með
honum kannist ekki heldur við
ásakanir heimilisins. Aðspurður
segist hann ekki geta gert sér í hug-
arlund af hverju hjúkrunarforstjóri
bregst svona við.
„Móðurbróðir minn á ekki langt
eftir og ég þarf að fara til útlanda
í talsverðan tíma í desember, þess
vegna er það mér kappsmál að hitta
hann áður, því hver veit nema það
verði í síðasta skiptið,“ segir mað-
urinn sem er áhyggjufullur vegna
málsins.
Samkvæmt hjúkrunarforstjóra
Garðvangs hefur heimilið fengið
bréfið í sínar hendur. Stjórnin
mun taka það til efnislegrar athug-
unar. Hún segir að aldrei fyrr hafi
einstaklingi verið meinað að hitta
skyldmenni sitt á heimilinu en vill
ekki útskýra hvers vegna maður-
inn fái ekki að hitta móðurbróður
sinn.
Á skilorði:
Kýldi fyrir káf
á kærustunni
Maður á þrítugsaldri hefur
verið dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavíkur til þriggja mánaða
fangelsisvistar, skilorðsbundið.
Hann veitti öðrum manni þungt
hnefahögg sem varð til þess að
sá féll í götuna og hlaut alvar-
lega höfuðáverka. Fórnarlambið
hlaut alvarlega heilameiðsl og
var óttast um líf hans um tíma.
Fórnarlambið hafði verið í
annarlegu ástandi í miðbæ borg-
arinnar þar sem hann tók til við
að áreita vinkonu hins ákærða
með káfi og klúru tali og leitaði
sá seki hann þvi uppi og barði.
Forseti íslands:
Abramovich
i heimsokn
Roman Abramovich, rík-
isstjóri í Tsjúkotka-héraði í
Rússlandi og eigandi enska
knattspyrnuáiðsins Chelsea, er á
landinu í opinberri heimsókn.
Forseti Islands, Ólafur Ragnar
Grímsson, njun í dag og á
morgun kynna honum ásamt
Kamil Iskhakov, sérlegum
fulltrúa Vladimirs Pútíns, for-
seta Rússlands, málefni tengd
nýtingu jarðhita, fiskveiðum og
vinnslu sjávarafurða, félagslegri
þjónustu og ferðamálum á
Islandi.
Þeir munu meðal annars heim-
sækja höfuðstöðvar Orkuveitu
Reykjavíkur og orkuverið á Nesja-
völlum, verkfræðistofuna Hnit,
fiskvinnsluna Vísi, Saltfisksetrið,
fiskeldið Stað, skóla og íþrótta-
mannvirki í Grindavík og kynna
sér starfsemi Bláa lónsins.
II
ÍSLANDS
NAUT
25% iilxlá llur al IvlíiniUniiiilMröruin í iii'.rvliiniiin Kúniiv |ii*s\íi uilm
Lögreglan kölluð tvisvar út vegna ofsa unglinga:
Trylltist vegna tölvubanns
Unglingur lét öllum illum látum
á heimili sínu í Reykjavík á þriðju-
daginn þegar foreldrar hans settu
honum stólinn fyrir dyrnar vegna
tölvunotkunar.
Kalla þurfti á lögreglu vegna þess
að ungmennið trylltist vegna banns-
ins. Tjáskipti ungmenna fara mikið
í gegnum tölvunotkun og telur lög-
reglan það ástæðu þess að unglingur-
inn brást við eins og raun ber vitni.
Það var þó ekki eina tilvikið sem
lögreglan þurfti að hafa afskipti af
því hún var einnig kölluð í skóla í
Reykjavík þar sem unglingur gekk
berserksgang og skeytti skapi sínu á
húsmunum.
Ástæðan fyrir ofsanum var sú
að hann hafði verið ásakaður um
stríðni sem hann vildi ekki kannast
við með fyrrgreindum afleiðingum.
Samkvæmt lögreglu er sjaldgæft
að hún sé kölluð á staðinn til þess
að stilla til friðar vegna svo ungra
krakka. Unglingsárin geta svo sann-
arlega verið flókin og erfið.