blaðið - 19.10.2006, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006
blaöið
HAFNARFJÖRÐUR
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Stóra málið í þessu er að trúnaðar-
gögn voru afhent nefndinni og allir
möguleikar fyrir hendi að þau hafi
verið nýtt í undirbúningi málshöfð-
unar,” segir Grétar Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Félags fasteignasala.
Hann bendir á að eftirlitsnefnd Fé-
lags fasteignasala sé opinber nefnd
og hafi ríka skyldu varðandi trúnað
og hlutleysi.
I júlí 2003 seldi Sigrún Guð-
mundsdóttir eign sína án þess að
eignaskiptayfirlýsing lægi fyrir.
Síðar kom í ljós að fermetrafjöldi
eignarinnar er minni en kom fram
í sölugögnum og því leitaði kaup-
andi til lögmanns. Sigrún leitaði
hins vegar til Félags fasteignasala
og þaðan var málið sent áfram til
eftirlitsnefndarinnar fyrir tæpu
ári. Nýverið var Sigrúnu birt stefna
í málinu og lögmaður stefnanda er
Ólafur Svansson, starfsmaður eftir-
litsnefndarinnar. Ólafur segist ekki
þekkja til hvernig málið fór fram
hjá nefndinni.
„Alrangt er að halda því fram að
stefnan tengist mínum
&hafa verið notuð
Framkvæmdastjóri
Félags fasteignasala
störfum hjá eftirlitsnefndinni.
Þetta er bara misskilningur og ég
skil ekki að mönnum detti þetta í
hug,” segir Ólafur.
Farið eftir lögum
Þorsteinn Einarsson, formaður
eftirlitsnefndar Félags fasteigna-
sala, segir nefndina vera búna að af-
greiða málið og ekkert sé athugavert
við afgreiðslu þess. „Starfsmaður
nefndarinnar var búinn að taka að
sér umrætt mál sem lögmaður um
það bil tveimur árum áður en það
kom fyrir nefndina og ári áður en
nefndin tók til starfa. Þegar málið
barst lýsti hann sig vanhæfan til að
fjalla um málið,” segir Þorsteinn.
„Lögin gera ráð fyrir því að menn
geti talist vanhæfir og úrræðin eru
skýr. Eftir lögunum var farið í einu
og öllu í þessu tilviki. Starfsmaður
nefndarinnar kom ekki nærri af-
greiðslu málsins á neinn hátt.”
Viðkvæm gögn
Aðspurður segir Grétar málið
vera grafalvarlegt enda hafi
trúnaðargögn legið
á borðum nefnd-
Eftir lögunum
var farið í einu
og öllu íþessu
tilviki.
Þorsteinn Einarsson
Formaður eftirlitsnefndar
Félags fasteignasala
hafði trúnaðargögn hjá sér í tæpt ár
og er nú kominn hinum megin við
borðið sem lögmaður. Skýlaus réttur
konunnar er að henni sér gerð grein
fyrir vanhæfi starfsmanns, gögnum
sé skilað og hún látin vita um niður-
stöðu nefndarinnar. Ekkert af þessu
var gert,“ segir Grétar. „Það breytir
því ekki heldur að trúnaðargögnin
lágu ávallt á skrifstofu starfsmanns-
ins og því hafði hann alla mögu-
leika á að nálgast viðkvæm gögn í
málinu.”
Ólafur er hissa á vangaveltum um
að hann hafi nýtt sér gögn í málinu
sem lögmaður stefnanda.
„Gögn í þessu máli hafa aldrei
legið hjá mér og ég hef aldrei nokk-
urn tímann komið að þessu máli hjá
eftirlitsnefndinni. Ég var vanhæfur
frá upphafi og vék þvi sæti,” segir
Ólafur.
Afgreitt mál
Þorsteinn bendir á að búið sé að
vísa málinu frá eftirlitsnefndinni og
því sé málið afgreitt.
„Málið var afgreitt
af nefndinni
og því var
ffffiSfSÉ
arinnar um
nokkurt skeið.
„Starfsmaður
nefndarinnar
Vilja betra eftirlit
neð starf<shr»Amm
meo starfsbræðrum
!, -.........
ÖSSSS 1
SSfRS'irJaí idSrSS**'
n»4him. ■VflrGréUrMrueuM rram , ',,nnu' Þ»u Kfrk wni hón -
STJÓRNSÝSLULÖG
1993
3. gr. Vanhæfisástæður
Starfsmaöur eöa nefndarmaður er vanhæfur
til meðferðar máls:
Ef hann er aöili máls, fyrirsvarsmaður
eða umboðsmaður aðila.
4. gr. Áhrif vanhæfis.
Sá sem er vanhæfur til meðferðar máls má
ekki taka þátt í undirbúningi, meðferð eða
úrlausn þess. Honum er þó heimilt að gera
þær ráðstafanir sem eru nauðsynlegar til að
halda máli í réttu horfi á meðan staðgengill
er ekki til staðar.
nií!
ilfl
vísað frá sökum þess að málið varð-
aði viðskipti áður en lögin sem
nefndin starfar eftir tóku gildi. Mál
fyrir þá tíð varða ekki nefndina,”
segir Þorsteinn.
Grétar kannast ekki við þær mála-
lyktir enda hafi engin almennileg
svör fengist fránefndinni.
„Sigrún hefur aldrei fengið að vita
neitt um málið síðan það var sent til
nefndarinnar. Ekki fyrr en að allt í
einu birtist stefna frá starfsmanni
nefndarinnar,” segir Grétar. „Staða
hennar í fyrirhuguðu dómsmáli er
fyrir vikið orðin mjög tæp og hallar
á hana. Því miður bætist þetta
mál ofan á mörg önnur sem hafa
annað hvort fengið enga eða slælega
afgreiðslu.”
I gær óskaði Björn Bjarnason eftir
fundi með stjórn Félags fasteigna-
sala til þess að fara yfir málefni
eftirlitsnefndarinnar.
BRi
w jr£5«Síw
rl á t s 1 "
ur“*«l W
n 1
a n
r. ...
Umdeildir starfshættir
Starfsmaður eftirlitsnefndar Félags
fasteignasala er sakaður um að nýta trún-
aðarupplýsingar um fasteignakaup sem
afhentar voru nefndinni. Tæpu ári eftir að
þær voru afhentar birti hann þeim sem
gögnin átti stefnu og erþannig kominn
hinum megin við borðið.
I Blaðið, 3. október sl.
MEÐLAGSGREIÐENDUR
HÉRAÐSDÓMUR
INNLENT
c-1000
Extra sterkt,
náttúrulegt C-vlUmfn
meö rósaborjum, rútíni
og bkbflavóníöum
60 töflur
Sólargeislinn í skammdeginu
| heilsa
______| -hafóu þaó gott
Táningur dæmdur
Átján ára piltur hefur verið dæmdur fyrir tvö innbrot. Piltur-
inn braust inn í íbúð í Reykjavík og stal þaðan tveimur staf-
rænum myndavélum og þremur úrum. (mars á þessu ári fór
hann inn í bíl og tók þaðan MP3-spilara. Pilturinn er dæmdur
í þriggja mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.
Gagnrýni á störf eftirlitsnefndar Félags fasteignasala:
Sagður misnota trúnaðargögn
■ Nefndin vísaði málinu frá ■ Dómsmálaráðherra skoðar málið
Meðlagsgreiðendur, vinsam-
legast gerið skil hið fyrsta og
forðist vexti og kostnað
Ekkert lát á óöldinni:
Blóðugur október í írak
Að sögn bandaríska hersins í Irak
féllu tíu hermenn í árásum á þriðju-
dag og hafa því sextíu og níu Banda-
ríkjamenn fallið í þessum mánuði
og allt stefnir í að hann verði sá
blóðugasti síðan í janúar á síðasta ári.
Aukið mannfall má rekja til þeirrar
ákvörðunar að fjölga bandarískum
hermönnum í Bagdad, höfuðborg
landsins. Borgin er einn blóðugasti
vígvöllurinn í skálmöldinni sem
ríkir í landinu og ekkert lát virðist
vera á ofbeldi milli trúarhópa og
árásum í henni.
Forsætisráðherra og klerkur
Nouri al-Maliki og Moqtada al-Sadr
á fundi með biaðamönnum.
Nouri al-Maliki forsætisráð-
herra gerði tilraun til þess að
slökkva ófriðarbálið þegar hann
fundaði með Ajatollah Ali al-
Sistani, andlegum leiðtoga sjíta
í landinu, og Moqtada al-Sadr,
hinum róttæka klerki og leiðtoga
Mahdi-herdeildanna, í Najaf í gær.
Tilgangur fundarins var meðal
annars að fá klerkana til þess að
beita áhrifum sínum og valdi til
þess að knýja fram samstöðu og
koma í veg fyrir vaxandi ofbeldi
milli trúarhópa.
Nýbúaútvarp í næsta mánuði
Búist er við að útsendingar nýbúaútvarps hefjist í næsta mánuði
en bæjaryfirvöld í Hafnarfirði í samstarfi við Flensborg og Alþjóða-
hús standa að því. Samkvæmt Víkurfréttum verður bylgjulengdin
FM 96,2 og les Paul F. Nikolov fréttir á ensku. Nikolov haslar sér
nú völl í stjórnmálum en var þar áður blaðamaður á Grapevine.
■ Farið eftir lögum, segir formaður nefndarinnar
Er HREINT hjá þínu fyrirtæki?
Hreínt býður upp á ókeypis ráðgjöf
Hreint ehf. var stofnað áriö 1983 og er eitt elsta
og stærsta ræstingarfyrirtæki landsins.
Hreint
Auðbrekku 8, 200 Kópavogi, simi 554 6088, hreint@hreint.is, www.hreint.is
Stigahúsateppi
Suöurlandsbraut 10
Sími 533 5800
VSTRÖND
' EHF.
www.simnet.ls/strond