blaðið - 19.10.2006, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006
KO«il
blaöió
Eg get fullvissað þig u.m
3að að maðurinn er leið-'
ndaskepna.
Moliere
Afmælisbörn dagsins
JOHN LITHGOW LEIKARI, 1945
JOHN LE CARRÉ RITHÖFUNDUR, 1931
kolbrun@bladid.net
Gjörningur í
Safni
Gjörningur
bandaríska lista-
mannsinsTrong
G. Nguyen,
sem búsettur er
í New York, og
íslensku hljóm-
sveitarinnarSea-
bear fer fram í
Safni laugardag-
inn 21. október klukkan 8:34, við
sólarupprás.
Metsölulistinn - allar bækur
1.
2.
3.
Stutt ágrip af sögu traktorslns -
Marina Lewyca
Draumalandið
Andri SnærMagnason
Flugdrekahlauparinn - kilja
Khaled Hosseini
Stafsetningarorðabókin
Dóra Hafsteinsdóttir ritst.
Þú léttist ■ án þess að fara í megrun
Penman
6. Vísnabókin - ný útgáfa Ýmsir höfundar - Halldór Pétursson
7. Lost in lceland Sigurgeir Sigurjónsson
8. Kaupmannahöfn - ekki bara Strikið Guðlaugur Arason
9. Hjónabandið ogsambúð Þórhallur Heimisson
10. lceland, the Warm Country in the North IreneTrimbl
Listinn var gerður út frá sölu dagana 11.10- 17.10.06i
Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar.
Metsölulistinn - erlendar bækur
Eldest
Christopher Paolíni
Thudl
Terry Prachett
TheDante Club
Matthew Pearl
ÉfcX
! l.pi,S'1
The Cookie Book
Atkinson, Farrow & Barret
Ricochet
Sandra Brown
Vanish
Tess Gerritsen
Scandal in Spring
LisaKleypas
Wintersmith
Terry Prachett
The Black Book
OrhanPamuk
The Devil Wears Prada
Lauren Weisberger
Listinn var gerður út frá sölu dagana 11.10-17.10.06 í
Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar.
Rebekka í strætóskýlum
strætisvagnaskýlum borgar-
innar stendur þessa dagana yf-
ir óvenjuleg ljósmyndasýning
eftir Rebekku Guðleifsdóttur.
„Myndirnar eru í tengslum við
auglýsingaherferð sem ég hef verið
að vinna í samstarfi við Toyota í
tengslum við Prius sem er umhverf-
isvænn bíll. Ég fékk það verkefni að
gera myndaseríu sem væri súrreal-
ísk,“ segir Rebekka. „Ég tók mán-
uð í að útfæra hugmyndir. Hluti
af myndunum sýnir mig sem tvær
manneskjur og aðrar tengjast bíln-
um. Ég hef alltaf verið tvískiptur
persónuleiki, ein manneskja einn
daginn og önnur manneskja næsta
dag. Ég hef verið að vinna með
þessa tvískiptingu í ljósmyndum
mínum og er þar að takast á við
sjálfa mig eins og ég sé tvær mann-
eskjur. Myndirnar í strætóskýlun-
um eru mjög í þessum stíl. Þetta
hefur verið spennandi samstarf og
ég fékk mjög frálsar hendur.“
Ekki hægt að vinna úr engu
Margir listamenn eru tregir að
ganga til samstarfs við stórfyrir-
tæki og taka þátt í auglýsingum.
Þegar Rebekka er spurð álits um
þetta viðhorf segir hún: „Maður get-
ur ekki unnið úr engu. Mér finnst
rökrétt og eðlilegt að samtvinna
þau markmið að þróa sig sem lista-
mann og lifa af listinni. Eg hef tekið
að mér alls konar verkefni sem ljós-
myndari. Ég lít ekki svo á að ég sé
að selja mig Toyota. Ég hef sterka
skoðun á umhverfismálum og sé
ekkert nema gott við það að taka
þátt í að auglýsa umhverfisvænan
bíl. Sem ljósmyndari geri ég mikið
af því að mynda landslag. Ég ferð-
Ljósmynd eftir Rebekku.
Ein þeirra mynda sem sjá má í
strætóskýlum borgarinnar.
ast mikið um Island og er ástfangin
af landinu og vil vekja athygli á því
hvað náttúran er dýrmæt."
Ótrúlegar viðtökur
Rebekka hefur lokið einu ári í
myndlistardeild Listaháskóla ís-
lands. Hún hefur birt myndir sínar
á Netinu og þær hafa vakið gríðar-
lega athygli og erlendir fjölmiðlar
hafa hlaðið hana lofi. „Ferill minn
sem ljósmyndari hófst fyrir hálf-
gerða tilviljun, ég fór að henda
myndum á Netið, bara til að hafa
gaman af því,“ segir hún. „Viðbrögð-
in komu mér gríðarlega mikið á
óvart. Ég hafði ekki gert mér grein
fyrir því hversu mikil kynning felst
í því að verkin manns séu á Netinu.
Það er mjög gagnleg leið til að sýna
fólki hvað maður er að gera. Þannig
að það er nokkuð í takt við þetta að
vera nú með sýningu á víðavangi.11
Rebekka Guðleifsdóttir. „Ég hef
verið að vinna með þessa tvískipt-
ingu í Ijósmyndum mínum og er þar
að takast á við sjálfa mig eins og
ég sé tvær manneskjur. Myndirnar í
strætóskýlunum eru mjög íþessum
stfl."
„Þetta er svolítið óraunverulegt,"
segir hún um viðtökurnar. „Ég tel
mig vera jarðbundna og hógværa
manneskju og hef verið fremur
óframfærin. A einu ári upplifi ég
það að tvær milljónir eru búnar að
sjá myndirnar manns. Fólk er að
blogga um myndirnar og erlendir
fjölmiðlar hafa tekið viðtöl við mig.
Mér finnst þetta dálítið ógnvekj-
andi. Maður verður að passa sig á
því að láta þetta ekki trufla líf sitt
um of. Maður má ekki missa sjón-
ar á því hvað maður er að gera sem
listamaður.“
menningarmolinn
Napóleon hörfar
frá Moskvu
Á þessum degi ári 1812, mánuði
eftir innrás sína í Moskvu, neydd-
ist hinn franski her Napóleons til
að hörfa frá borginni. Napóleon
1. hafði ráðist inn í Rússland í júní-
mánuði. í her hans voru rúmlega
500.000 hermenn og var það stærsti
her sem safnað hafði verið saman
í Evrópu. Napóleon hélt með her
sinn inn í Moskvu 14. september
og bjóst við að finna þar vistir en
íbúar voru flúnir og kveikt hafði
verið í borginni. Rússneski herinn
var ekki sýnilegur. Napóleon beið í
mánuð eftir uppgjöf Rússa sem ekki
kom. Franski herinn var matarlaus
og rússneski veturinn beið handan
við hornið. Napóleon hörfaði frá
borginni og rússneski herinn lagði
til atlögu. Vetur skall á og hungr-
ið svarf að hermönnum. Frakkar
misstu rúmlega 400.000 manns í
herför sem átti að leiða til sigurs en
reyndist hið mesta feigðarflan.