blaðið - 19.10.2006, Síða 26
blaðið
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006
Á morgun klukkan 12:05 flytur Eyja Margrét Brynjarsdóttir erindi
á hádegisfundi Heimspekistofnunar í stofu 111 í Aðalbyggingu.
Erindi hennar ber heitið: Er veröldin tófú? Hugleiðingar um eigin-
leikahyggju. Eru allir velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir.
i'.M'ir.llTT.
Eitt virtasta og útbreiddasta málgagn heims í útgáfumálum, Publisher’s Weekly, birti nýlega
lofsamlegan ritdóm um prósaverkið Vera & Linus eftir Þórdisi Björnsdóttur og Jessie Ball
sem kom út á dögunum hjá Nýhil. í dóminum segir meðal annars að persónur verksins séu
heillandi og skelfilegar í senn og að veröld þeirra hreyfi á eftirminnilegan háttvið lesendum.
LHUGHRDHLSHÚLL 21. 22. QHTÚBER 20Q6
TAKTU ÞESSA
HELGI FRÁ FYRIR ÞIG!
WWW.ISLANDSMOT.IS
S: 534 7010 ■ INFO@ISLANDSMOT.IS
HEILSA
Tristmn og ísold
Einmana sveinninn hryggi
var horfinn úr dalnum djúpa
og ástarstjarnan hulin gráum skýjum
vatnið kann söguna
en segirfátt um eigin sýnir
Hraundrangi sveifeins og hjarta
í lausu lofti
■ hvort hafi það verið
rétt spegilmynd
P er undir deginum komið
m hvort hafi það verið
Al/tvl'inr'rtí’ /lA/i /l mr\ v*
Narkissos eða Amor
og hvors lokka hann greiddi
við Galtará.
Arngrímur Vídalín
Leiðin frá fegurð
til spillingar
Haustið er ekki síst skemmtileg-
ur árstími fyrir þær sakir að bóka-
búðir landsins fyllast af nýjum og
spennandi titlum. Eitt þeirra verka
sem koma munu fyrir sjónir les-
enda áður en langt um líður er ljóða-
bókin Endurómun upphafsins eftir
Arngrím Vídalín en þetta er hans
fyrsta útgefna verk.
„Ég hef dundað mér við ljóðagerð
síðan ég var barn en það eru ekki
nema tvö ár síðan ég fór að leggja
stund á þetta af einhverri alvöru,“
útskýrir Arngímur sem stundar
um þessar mundir nám í íslensku
við Háskóla íslands. Hann verður
eilítið hugsi þegar hann er inntur
eftir því um hvað bókin fjalli en
segir að í henni sé ákveðinn þráður.
„Þema verksins er flókið og marg-
rætt en í stuttu máli sagt þá fjallar
hún um upphaf heimsins og tilurð
mannsins. Eftir þvi sem maður-
inn fjarlægist uppruna sinn lokast
hann smám saman inni í fangelsi
eigin firringar og þá fer að halla
undan fæti. Það má segja að þetta
lýsi leiðinni sem liggur frá fegurð
til spillingar," segir Arngrímur og
upplýsir að bókinni sé þó ekki ætl-
að að vera bein ádeila á samtímann,
þó svo auðvitað megi túlka ljóðin
á ýmsa vegu. „Boðskapurinn er
kannski sá að fólk eigi að líta sér
nær eftir lausnum á þeim vanda-
málum sem blasa við, hvort sem
þau eru stór eða smá.“
Skáldið segir ljóðabókina hafa
verið í stöðugri þróun frá því í
desember á síðasta ári og að hún
hafi tekið miklum breytingum á
þessum tíma. „Ég reyni- að skrifa
eitthvað á hverjum degi. Stundum
finnst mér ég skulda sjálfum mér
það að reyna að koma einhverju
niður á blað og sest niður og skrifa
þar til ég rata á eitthvað sem ég er
ánægður með.“
Fífa Finnsdóttir lagði til mynd-
skrey tingar í verkið og hannaði einn-
ig kápuna en bókin kemur út hjá
ljóðabókaforlaginu Nykri sem nú er
að rísa úr öskustónni eftir nokkurra
ára dvala. „Forlagið hefur verið að
vakna til lífsins á síðustu mánuðum.
Það má reikna með því að það fari á
fullt eftir áramót og við steínum á út-
gáfu veglegs safnrits með ljóðum eft-
ir okkur öll sem stöndum að þessu
og einnig þá sem héldu uppi félaginu
á árum áður.“ íslenskuneminn Arn-
grímur þarf að lesa ýmislegt í nám-
inu og þegar hann er spurður um
áhrifavalda sína eru margir kallaðir
en fáir útvaldir. „Undanfarið hef ég
mikið verið að lesa þessar klassísku
íslensku bókmenntir frá fyrri hluta
tuttugustu aldar. Þórbergur Þórðar-
son er í miklu uppáhaldi hjá mér og
hefur verið lengi. Af erlendum höf-
undum er ég mjög hrifinn af Kazuo
Ishiguro. Allt sem maður les hefur
einhver áhrif og síast inn án þess að
maður geri sér fyllilega grein fyrir
þvísegir skáldið að lokum, stolt
af verkinu, en bókin mun renna úr
prentvélunum áður en langt um líð-
ur.
ÍS ÍSLANDSMÓT
.SVONA Á AÐ
SEGJA SÖGU."
,NNTA
EFTIR STEFAN ZWEIG
AÐEINS 4 SÝNINGAR!
I BERTELSSON
TILNEFNT TIL
GRlMUNNAR 2006
Miðasala 568 8000 www.borgarleikhusid.is
BORGARLEIKHUSIÐ
Tónleikar í
Listahátíðin Sequences er nú í full-
um gangi og þeir sem vilja fylgjast
með því nýjasta þurfa að hafa sig alla
við enda margt forvitnilegt á dagskrá.
í kvöld er ástæða fyrir unnendur ný-
stárlegrar tónlistar til að fjölmenna í
Tjarnarbíó en þar mun fjöldi tilrauna-
tónlistarmanna og Nýlókórinn halda
tónleika í kvöld klukkan 19. Einnig er
ástæða til að benda á vídeógjörning
Tjarnarbíó
Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur í Regn-
boganum klukkan 17:30.