blaðið - 07.11.2006, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006
blaöiA
VÍÐA UM HEIM
Á MORGUN
VEÐRIÐ í DAG
Vitislogar a Husavik Maourinn
kveikti i húsi manns sem hann stakk
með hnífi og réðst á lögreglumenn
þegar þeir björguðu særðri konu út
úr logandi húsinu. Mynd/JóhanmSig
^LÖGREGLAN
'? LÖGREGLAN
LOGRE
Norðanátt
Norðanátt á mestöllu landinu,
5 til 10 vindstig. Hiti víðast við
eða undir frostmarki og frost
að 8 gráðum í byggð norðantil.
Algarve 17
Amsterdam 13
Barcelona 20
Berlín 13
Chicago 0
Dublin 12
Frankfurt 10
Glasgow 11
Hamborg 13
Helsinki -1
Kaupmannahöfn 13
London 13
Madrid 15
Montreal 5
New York 7
Orlando 19
Osló 10
Palma 21
Paris 6
Stokkhólmur 9
Þórshöfn 11
Úrkoma
Sunnan og suðvestan 5 til 10 metrar á
sekúndu. Úrkoma á vestanverðu landinu
en víða léttskýjað. Hiti á bilinu 0 til 5
gráður sunnan- og vestantil en annars í
kringum frostmark.
PROFKJOR 2006:
Fimm þátttakendur [ prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
svöruðu spurningum um kostnað við framboð þeirra. Enginn
hefur tekið saman endanlegan kostnað. Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra virðist lengst kominn í útreikningunum og
segir upphæðina nema nokkrum milljónum. Blaðið lagði þrjár spurningar
fyrir þá frambjóðendur sem náðist í.
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON
ALÞINGISMAÐUR 2. SÆTI
Hver var kostnaður þinn við prófkjörsbaráttuna?
Ég er ekki búinn að taka það saman.
Hverjir voru helstu styrktaraðilar þínir í baráttunni?
Þeir voru mjög dreifðir og enn verið að ganga frá þeim málum.
Hefur verið gerð grein fyrir launum starfsmanna á þínum
vegum?
Þessi mál eru alveg á hreinu.
BJÖRN BJARNASON
DÓMSMÁLARÁÐHERRA 3. SÆTI
Hver var kostnaður þinn við prófkjörsbaráttuna?
Kostnaðurvið baráítu mína nam nokkrum milljónum.
Hverjir voru helstu styrktaraðilar þínir i baráttunni?
Fjáröflun er í höndum sérstakra trúnaðarmanna án minnar
þátttöku.
Hefur verið gerð grein fyrir launum starfsmanna á þínum
vegum?
Ekkert svar.
ÁSTA MÖLLER
ALÞINGISMAÐUR 6. SÆTI
Hver var kostnaður þinn við prófkjörsbaráttuna?
Ég á eftir að taka þetta saman.
Hverjir voru helstu styrktaraðilar þinir í baráttunni?
Ég er auðmjúk yfir því hversu margir studdu mig, vinir og vanda-
menn. Síðan fellur ýmislegt á sjálfa mig.
Hefur verið gerð grein fyrir launum starfsmanna á þinum
vegum?
Við erum ekkert búin að ganga frá þeim málum.
SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON
ALÞINGISMAÐUR 8. SÆTl
Hver var kostnaður þinn við prófkjörsbaráttuna?
Hann liggur ekki endanlega fyrir. Kostnaðaráætlun gerði ráð
fyrir fjórum milljónum og mér sýnist þetta vera í kringum það.
Hverjir voru helstu styrktaraðilar þínir i baráttunni?
Einstaklingar, fyrirtæki, vinir, fjölskylda og ég sjálfur.
Hefur verið gerð grein fyrir launum starfsmanna á þinum
vegum?
Á mínum vegum störfuðu aðeins sjálfboðaliðar, fyrir utan kosn
ingastjórann sem fær sín laun.
BIRGIR ÁRMANNSSON
ALÞINGISMAÐUR 9. SÆTI
Hver var kostnaður þinn við prófkjörsbaráttuna?
Þær tölur liggja ekki endanlega fyrir.
Hverjir voru helstu styrktaraðilar þinir i baráttunni?
Þeir voru margir og dreifðir. Tugir aðila lögðu mér lið í
baráttunni.
Hefur verið gerð grein fyrir launum starfsmanna á þinum
vegum?
Það er ekki búið að gera þetta upp með neinum hætti.
Handtekinn eftir ofsafengna líkamsárás:
Stakk tvennt og
brenndi húsið
■ Stakk kærustuna í brjóstiö ■ Réöst á lögreglumenn viö björgunarstörf
■ Fórnarlamb á gjörgæslu
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
Eftir að hafa stungið konu og mann
með hnifi og kveikt eld í húsi særða
mannsins réðst árásarmaðurinn,
sem er á fimmtugsaldri, að lög-
reglu þegar unnið var að björgun
særðrar konunnar úr brennandi
húsinu. Búið er að úrskurða mann-
inn í gæsluvarðhald. Það var seint á
sunnudagskvöld sem lögreglunni á
Húsavík var tilkynnt um eldinn og
árásirnar.
Þegar að var komið logaði mikill
eldur í húsinu. Árásarmaðurinn og
húsráðandinn, sem var blóðugur
eftir árásina, höfðu komist út úr
logandi húsinu, en konan ekki. Hún
var mikið særð eftir að hafa verið
stungin í bakið. Húsráðandinn leit-
aði skjóls hjá nágranna.
Að sögn varðstjóra á Húsavík
kom lögreglan stuttu eftir að neyðar-
kallið barst. Þá stóð húsið í ljósum
logum og slökkvilið var kallað á
staðinn. Lögreglan á vettvangi sá
meðvitundarlausa konu liggja í
blóði sínu í anddyri hússins. Svo
virðist sem eldur hafi læst sig í kon-
una en hún hlaut alvarleg brunasár
á andliti og herðum. Lögreglunni
tókst að draga hana út úr brennandi
húsinu.
Á meðan lögreglumenn gerðu að
sárum hennar fyrir utan húsið kom
árásarmaðurinn aðvífandi. Hann
er fjörutíu og sex ára gamall og er
frá Kópaskeri. Talið er að hann hafi
komist út úr húsinu að aftanverðu.
Þegar hann nálgaðist lögregluna,
sem var að hlúa að konunni, lagði
hann til þeirra með hnífi.
Lögreglunni tókst að snúa mann-
inn niður án þess að meiðast. Hann
var handtekinn og færður í fanga-
geymslur lögreglunnar þar sem
hann var um nóttina.
Húsráðandinn var stunginn í síð-
una en slapp án alvarlegra áverka.
Árásarmaðurinn og konan eru
par. Húsráðandinn þekkti til þeirra
og sátu þau fyrr um kvöldið við
drykkju. Ekki er vitað hvað varð
til þess að maðurinn réðst á þau
en mögulega er um ástríðuglæp að
ræða.
íbúi í götunni sagði um mann-
legan harmleik að ræða. Hann
horfði á slökkviliðið berjast við eld-
inn um nóttina. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn, en húsið er eigi að
síður ónýtt.
Konan er á gjörgæsludeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri. Sam-
kvæmt vakthafandi lækni er hún
ekki talin vera í lífshættu. Hún var
stungin í brjósthol og mátti litlu
muna að hnífurinn hefði gengið í
hjartað. Hún mun verða á gjörgæslu
næstu daga og er líðan hennar stöðug.
Maðurinn hlaut stungusár i síðuna
en hann var útskrifaður í gær.
Árásarmaðurinn mun vera einn
af fáum góðkunningjum lögregl-
unnar á Húsavík. Málið er rann-
sakað sem manndrápstilraun af
lögreglunni á Húsavík en hún mun
njóta liðsinnis tæknimanna frá lög-
reglunni í Reykjavík. Málið er enn
í rannsókn.
2,8L CRD eyðsla 8,5 L á 100/km, 7 manna,
leður, tvær rafknúnar hliðarhurðir, bakkskynjari,
álfelgur, 6 diska CD í mælaborði, km mælir. ofl.
Tveggja ára ábyrgð. Þjónustaður af Ræsi.
Til sýnis á staðnum.
Ver5 4.490 þús.
www.sparibill.is
Chtysler Grand
Voyager Disel.
Dæmdur fyrir að taka myndir af barnungri frænku:
Tók ósiðlegar myndir
Var með Ijósmyndadellu Maður
sem tók ósiðlegar myndir af
frænku sinni neitaði sök og sagð-
ist haldinn Ijósmyndadellu.
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
Eldri maður var dæmdur til að
greiða tvö hundruð þúsund krónur
í sekt fyrir að mynda rassinn á barn-
ungri frænku sinni. Myndirnar
voru teknar árið 2002 og sýndu rass-
inn á stúlkunni þar sem hún lá sof-
andi heima hjá manninum.
Stúlkan fann myndirnar á meðal
klámmynda sem maðurinn hafði
á heimili sínu. 1 kjölfarið kærði
móðir stúlkunnar manninn fyrir
kynferðisbrot.
{ dómsorði neitar maðurinn sök.
Hann segist hafa verið með ljósmynd-
adellu og margoft tekið myndir af
stúlkunni við hverskyns tækifæri.
Ásamt þeim myndum sem kært var
fyrir var fjöldi annarra mynda af
barninu og þar á meðal þar sem hún
var klædd í fimleikabol.
Lögreglan gerði húsleit hjá mann-
inum og gerði tölvu hans upptæka.
I tölvunni fundust myndir sem
komu úr seríu þekktra barnakláms-
mynda. Maðurinn heldur því fram
að stúlkan hafi ekki verið sofandi
þegar myndirnar voru teknar en
Héraðsdómur Reykjaness kemst
að þeirri niðurstöðu að það leynist
engum að stúlkan hafi verið stein-
sofandi þegar á myndatöku stóð.
Fyrir utan sekt í ríkissjóð er
manninum gert að greiða stúlkunni
tvö hundruð þúsund krónur í skaða-
bætur og allan málskostnað.