blaðið - 07.11.2006, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006
blaðió
INNLENT
HEILBRIGÐISMAL
Davíð úr leik
Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, verður
ekki næsti forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar. Hann féll úr leik í gær þegar kosið
var milli ellefu frambjóðenda.
HEILBRIGÐISMAL
Rekstur Dvalar tryggður
Rauði krossinn, Kópavogsbær og Svæðisskrifstofa mál-
efna fatlaðra á Reykjanesi gerðu í gær samning sem
tryggir rekstur Dvalar næstu tvö árin. Dvöl er athvarf
geðfatlaðra í Kópavogi. Kópavogsdeild Rauða krossins
annast reksturinn.
Reyndi innbrot í banka
Maður var handtekinn í nýbyggingu KB banka í Borgartúni í
gærnótt en hann er grunaður um að hafa reynt að brjótast inn í
bankann. Maðurinn braut rúðu á hlið hússins og komst inn frá
nýbyggingunni en næturvörður varð mannsins var. Lögregla fann
manninn í kjallara en hann faldi sig í einangrunaruliarbing.
Notuðu miðil:
Fylgistap Samfylkingarinnar þrátt fyrir áberandi stjórnarandstöðu:
-
Tapar fylgi Samfylkingin tapar fylgi
samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi þrátt
fyrir áberandi stjórnarandstöðu og
skýrari stefnu íýmsum málum. Svo
virðist sem flokkurinn eigi i vandræð
um að ná til nýrra kjósenda. ,,
Ekki góð byrjun - - Auðvitað ætlum
á kosninga- við okkur meira i k
\ vetrinum. Rf •*- en þessi könnun I gefur til kynna. r 6,.
GunnarHelgi Ágúst Ólafur Ágústsson 1
Kristinsson rigW Æ Varaformaður
. Stjórnmálafræöingur Samfylkingarinnar 'Ímf ,
Samfylkíngin
nærekkiað
höfða til nýrra
kjósenda.
Baldur Þórhallsson
Stjórnmálafræðingur
Sjáandi vísaði
á Saddam
Uri Geller, hinn þekkti
ísraelski sjáandi, segist hafa upp-
lýsingar um
að bandaríski
herinn hafi
notfært sér
hæfileika
skyggns
manns til
þess að finna
felustað
Saddams
Husseins, fyrrverandi forseta
Iraks. Hussein fannst fyrir
þremur árum en hann hafði
falið sig í lítilli holu í kjölfar þess
að stjórn hans riðaði til falls.
Geller, sem segist sjálfur hafa
starfað fyrir bandarisku leyni-
þjónustuna á tímum kalda stríðs-
ins, segist hafa heimildir fyrir
þessu frá háttsettum aðUum
innan bandaríska stjórnkerfisins.
Kóróna hverrar byggingar
Sjálflímandi þakflísar
Auðvelt að leggja
Stigahúsateppi
Suðurland8braut 10
Slmi 533 5800
VSTRÖND
' EHF.
www.8lmnet.is/strond
Samfylkingin stígur
erfiðan línudans
■ Höföar ekki til nýrra kjósenda ■ Slæm byrjun á kosningavetri ■ Baráttan mun skila sér
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Þetta er ekki góð útkoma fyrir
Samfylkinguna og hlýtur að valda
forystusveit hennar vonbrigðum.
Þetta er stærsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn á þingi og að hann
standi ekki betur að vígi en þetta
er áhyggjuefni fyrir komandi kosn-
ingar,“ segir Baldur Þórhallsson
stjórnmálafræðingur.
Samfylkingin mælist með fjórð-
ungsfylgi í nýjasta þjóðarpúlsi Capa-
cents og nær ekki að auka fylgi sitt
þó svo flokkurinn hafi verið áber-
andi í veigamiklum málaflokkum
síðustu mánuði. Þetta er sex prósent-
ustigum undir því fylgi sem flokk-
urinn hefur mælst hæst á árinu og
miðað við síðustu kosningar. Mest
afhroð geldur flokkurinn á höfuð-
borgarsvæðinu þar sem hann missir
mikið fylgi frá síðustu kosningum.
Ágúst Ölafur Ágústsson, varafor-
maður Samfylkingarinnar, á erfitt
með að útskýra fall flokksins í höf-
uðborginni og telur að komandi
prófkjör eigi eftir að breyta þeim
tölum. „Ég er sannfærður um að við
eigum eftir að fá góðan stuðning á
höfuðborgarsvæðinu, líkt og ann-
ars staðar,“ segir Ágúst Ólafur.
Slæm byrjun á kosningavetri
Gunnar Helgi Kristinsson stjórn-
málafræðingur segir mikilvægt að
stjórnmálaflokkar missi ekki fylgi
í upphafi kosningavetrar miðað við
það sem verið hefur á árinu. Það hafi
Samfylkingin gert. „Ekki er þetta
góð byrjun á kosningavetrinum.
Fyrir stærsta stjórnarandstöðu-
flokkinn getur þetta ekki verið góð
niðurstaða,“ segir Gunnar Helgi.
Ágúst Ólafur segir nægan tíma
til kosninga en ljóst sé að flokks-
menn þurfi að spýta í lófana. „Við
teljum okkar hugmyndafræði, jafn-
aðarstefnu, eiga vel heima meðal
lslendinga,“ segir Ágúst Ólafur.
„Við höfum trú á okkar hugsjón og
förum ekki í nein yfirboð, hvorki til
hægri né vinstri. Líkt og hjá öðrum
jafnaðarmannaflokkum í Evrópu er
stefna okkar skýr.“
Helstu baráttumálin skila
ekki auknu fylgi
Baldur bendir á að miklar breyt-
ingar hafi átt sér stað hjá Samfylk-
ingunni, bæði mannabreytingar og
einnig sé skýrari stefna mörkuð í
ákveðnum málaflokkum. „Samfylk-
ingin hefur verið mjög áberandi und-
anfarna mánuði. Flokkurinn kynnti
nýja stefnu í umhverfismálum og
barðist fyrir lækkun matarverðs.
Hann hefur gagnrýnt ríkisstjórnina
harðlega fyrir efnahagsstjórnun og
öryggismál. Að Samfylkingin skuli
ekki hagnast á þessu er mjög athygl-
isvert," segir Baldur. „Spennandi
verður að fylgjast með nýju forystu-
fólki Samfylkingarinnar og hvort
það nái að hleypa lífi í flokkinn."
Erfiður línudans
Gunnar Helgi segir Samfylking-
unaklemmdaámilliVinstrigrænna
og Sjálfstæðisflokksins enda hafi
báðir þeir flokkar bætt við sig fylgi
á hennar kostnað. Hann telur að um-
hverfismál spili þar lykilhlutverk
enda hafi flokkurinn verið klofinn
í afstöðu sinni. „Sjálfstæðisflokkur-
inn sækir inn á miðjuna með mýkri
áherslum og þar tapar Samfylkingin
fylgi. Á vinstri vængnum missa þau
hins vegar fylgi til Vinstri grænna,"
segir Gunnar Helgi. „Líklegast er að
flokkurinn sé í klemmdri stöðu og
ekki útlit fyrir að hann sé búinn að
hugsa leiðir út úr því."
Baldur er sammála því að flokk-
urinn sé klemmdur þarna á milli.
„Samfylkingin nær ekki að höfða til
nýrra kjósenda þrátt fyrir breyttar
áherslur. Hún virðist eiga í erfið-
leikum með að stíga línudans milli
einarðrar afstöðu Vinstri grænna
og mýkri hliða Sjálfstæðisflokksins,"
segir Baldur.
Stóri dómur í vor
Ágúst Ólafur er bjartsýnn á að
SAMANBURÐUR Á FYLGI:
Október 2006 Kosningar 2003
■ Alls: 25% ■ Alls: 31%
■ NV: 25% ■ NV: 23%
■ NA: 24% ■ NA: 23%
■ S: 28% ■ S: 30%
■ SV: 25% ■ S V: 33%
■ RS: 23% ■ RS: 33%
■ RN: 25% ■ RN: 36%
fylgi flokksins muni taka kipp þegar
nær dregur kosningum og segir
flokkinn vel undirbúinn fyrir kosn-
ingaveturinn. Hann er ánægður
með hversu tæpt ríkisstjórnin
stendur og lítur á niðurstöðurnar
sem tækifæri. „Auðvitað ætlum við
okkur meira en þessi könnun gefur
til kynna. Við erum bjartsýn á að
það náist,“ segir Ágúst Ólafur. „Stóri
dómurinn kemur ekki fyrr en í vor
og ég er sannfærður um að barátta
okkar mun skila sér. Stjórnmál eru
langhlaup og upp til hópa eru íslend-
ingar frjálslyndir jafnaðarmenn."
Magnað tilboð á Hereford — all
Glæsilegur 3ja rétta matseðill á aðeins 5.200,
Borðapantanir
I iappy hour alla daga 1 7:00 -19:30 - tveir fyrir einn af fordrykkjum