blaðið - 07.11.2006, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006
blaðið
INNLENT
KYNFERÐISOFBELDI
Nauðgara enn ieitað
Lögreglan i Reykjavík leitar enn árásar-
manna sem réðust á tvær stúlkur í október
og nauðguðu þeim. Fyrra atvikið átti sér stað
við Menntaskólann í Reykjavík en það síðara
í grennd við Þjóðleikhúsið.
UTANRÍKISMÁL
Valgerður hitti Júsjenkó
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra fundaði í gær
með Viktor Júsjenkó, forseta Úkraínu, og Boris Tara-
sjúk utanríkisráðherra. Þau ræddu tvíhliða samskipti
landanna og áform Úkraínu um aðild að Atlantshafs-
bandalaginu og tengsl landsins við Evrópusambandið.
FERÐAÞJÓNUSTA
Gistinóttum fjöigar mikið
Gistinóttum fjölgaði um 22 prósent frá september í fyrra til sama
mánaðar í ár. Alls gistu gestir í 114.600 nætur á hótelum landsins
í september síðastliðnum. Samkvæmt tölum frá Hagstofunni fjölg-
aði gistinóttum í öllum landshlutum en aukningin var hlutfallslega
mest á Norðurlandi eða 43 prósent.
Hágæða LCD veggsjónvörp
KYNNINGARVERÐ
Takmarkað magn
20" 32" 37" 42"
Kr. 46.990,00 Kr. 89.990,00 Kr. 144.990,00 Kr.249.990,00
Öll verð miðast við.staðgreiðslu - Veggsfestingar innifaldar í verði - 2ja ára ábyrgð
Hafið samband í síma 561 9200
GRAFARVOGS
Gylfaflöt 3*112 Reykjavik • Simi 567 4468
dekk@gummisteypa.is • www.gummisteypa.is
GENERAL TIRE ©
Opið öllum stuöningsmönnum - kosið 11. nóvember í Þróttarheímilinu, Laugardal,
4.-6. sæti
www.mordur.is
Við eigum næsta leik
Reykvíkingar - munið prófkjör Samfylkingarinnar.
Veljum vel á S-listann!
Mörður Árnason
-
Rómantísk sýn á Mjóddina Ulrich
Falkner, gullsmiður í Mjóddinni, segir
menningarlífið yndislegt á vorin og vill
halda Gullnámunni frá.
Tvö þúsund manns gegn spilakössum í Mjóddinni:
Gullsmiður á móti
Gullnámunni
■ Vill fjölskylduvæna verslunarmiðstöö ■ Börn með listasýningar
■ Mjóddin góður staður til að vera á
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Um tvö þúsund hafa skrifað undir
mótmælaskjal gegn spilakössum í
Mjóddinni,“ segir Ulrich Falkner
gullsmiður. Hann hefur ásamt syni
sínum haldið úti friðsamlegum
mótmælum vegna fyrirhugaðra
spilakassa í verslunarmiðstöðinni.
Listinn hefur legið í verslun þeirra
og er fólki frjálst að skrifa undir
sé það sammála þeim feðgum. Svo
virðist sem þeir hafi fengið mikinn
meðbyr hjá samborgurum sínum
og að sögn Ulrichs hefur listanum
alls ekki verið haldið að fólki.
„Á vorin eru börnin með listasýn-
ingar og mikið og fallegt menningar-
líf blómstrar hér,“ segir Ulrich sem
dregur upp rómantíska mynd af
Mjóddinni enda góður staður til að
vera á að hans sögn. Hann segir að
um daginn hafi hann séð leikskóla-
börn i fylgd með leiðbeinendum
sínum. Hann bætir við í kaldhæðni
að verst sé að ekki hafi verið hægt
að leiða þau inn í spilavíti. Að mati
Ulrichs á slík starfsemi hreinlega
ekki heima i verslunarmiðstöðinni
í Mjódd.
„Eg veit ekki betur en fjárhættuspil
séu bönnuð með lögum á íslandi,"
segir hann ósáttur við tilveru kass-
anna á Islandi og bætir við að það sé
sorglegt þegar einstaklingar ánetj-
ast kössunum og þá sérstaklega fólk
af yngri kynslóðinni.
Hann segist hafa nokkrar
áhyggjur af leiðinlegri umgengni
og að slíkur staður muni laða að
sér fólk í misjöfnu ástandi. Honum
þykir þróunin sorgleg en sjálfur
lítur hann á miðstöðina sem hinn
deyjandi kaupmann á horninu.
Ulrich vonar að undirskriftirnar
verði til þess að sporna við köss-
unum og segir hann að tvö þúsund
slíkar séu ansi sannfærandi þegar
öllu sé á botninn hvolft. Hann þorir
þó ekki að spá hvernig fer og vill
meina að oftar en ekki séu þeir huns-
aðir sem mótmæla hvað mest.
„Ég vil bara að Mjóddin verði fjö-
slylduvæn áfram,“ segir Ulrich sem
ber hag Mjóddarinnar fyrir brjósti.
Ekki náðist í Ragnheiði Sigurðar-
dóttur, framkvæmdastjóra verslun-
armiðstöðvarinnar, þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir.
Leigubílastöð sökuð um svindl:
Leyfislausir bílstjórar
Leigubílstjórar segja að leigubíla-
stöðin BSR brjóti lög um leigubif-
reiðar með því að láta mönnum í té
atvinnuleyfi og bifreiðar annarra
bílstjóra sem eru jafnvel farnir að
starfa við annað en leigubílaakstur.
Þeir segja ennfremur að sumar
leigubílastöðvar hafi jafnvel 2-3 bíla
á sínum snærum sem þær leigi til
svokallaðra „harkara" sem eru leyf-
islausir bílstjórar.
Þetta kemur fram í kæru sem
hefur verið send samgönguráðu-
neytinu. I þessari kæru er kvartað
undan aðgerðaleysi Vegagerðar-
innar í málum sem þessum en Vega-
gerðin fer með framkvæmd mála
sem varða leigubifreiðar. Þar með
Takmarkað eftirlit með akstri
leigubíla Dæmi um menn sem gera
út á það að kaupa veikindadaga
annarra.
talin er útgáfa starfsleyfa, leyfa fyrir
forfallabílstjóra og rekstrarleyfa.
Leigubílastöðvar eru skyldaðar til
að veita Vegagerðinni upplýsingar
um einstaka atvinnuleyfishafa sem
og aðrar upplýsingar er varða um-
sýslu leigubílamála.
Vegagerðin á einnig að annast
eftirlit með akstri leigubifreiða en
Sævar Ingi Jónsson hjá Umferðareft-
irlitinu segir að eftirlitið sé frekar
takmarkað. „Við athugum hvort bíl-
arnir séu ekki rétt merktir og hvort
passarnirséuílagi. Meiragerumvið
ekki.“ Guðmundur Börkur hjá BSR
segir að hann hafi heyrt af þessum
ásökunum en þær eigi ekki við rök
að styðjast og séu varla svaraverðar.