blaðið - 07.11.2006, Qupperneq 14
blaðið
14 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006
HVAÐ MANSTU?
1. Hver skipar fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi?
2. Hvað heitir hljómborðsleikari bresku rokksveitarinnar Pink Floyd?
3. Hver er nýkrýndur (slandsmeistari í málmsuðu?
4. Hver skrifaði bókina: Sumarljós og svo kemur nóttin?
5.1 hvað ríki Bandaríkjanna er borgin Las Vegas?
Svör:
GENGI GJALDMIÐLA
m Bandaríkjadalur KAUP 68,02 SALA 68,34
ii Sterlingspund 129,08 129,70
nca es ms Dönsk króna 11,58 11,65
U~- Norskkróna 10,47 10,53
ss Sænsk króna 9,44 9,49
m Evra 86,39 86,87
Evrópusambandið:
Mesti hag-
vöxturinn
Hagvöxtur á evrusvæðinu er
meiri nú en hann hefur verið
frá síðustu aldamótum sam-
kvæmt nýjustu hagtölum.
Sérfræðingar Evrópu-
sambandsins (ESB) telja að
meðalhagvöxtur í þeim ríkjum
sem deila evrunni verði 2.6% á
þessu ári en hann var einungis
1.4% í fyrra. Búist er við að með-
alhagvöxtur í öllum aðildar-
ríkjum sambandsins verði 2.8%
áþessu ári.
Ósætti eftir fjöldauppsagnir byggingafyrirtækis á Akranesi:
Reka íslenska og ráða
erlenda starfsmenn
■ Forstjórinn sveik loforð ■ Breyttar rekstrarforsendur, segir framkvæmdastjórinn
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Þetta segir sig sjálft, það á að ráða út-
lendinga í okkar störf,“ segir Stefán
Jónsson trésmiður sem hefur síðast-
liðið ár unnið hjá byggingafyrirtæk-
inu Sveinbirni Sigurðssyni á Akra-
nesi. Honum hefur verið sagt upp
störfum ásamt tuttugu samstarfs-
mönnum sínum.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, segir
þetta skelfilega þróun og telur að
þetta sé aðeins byrjunin á því sem
koma skal. „Ég sé enga aðra ástæðu
fyrir þessum brottrekstrum en þá
að fyrirtækið ætli að fá ódýrt vinnu-
afl til að sinna þessum störfum.
Eftir að hafa rætt við fjölda starfs-
manna, sem var sagt upp, komst ég
að því að þeir óttast hið sama,“ segir
Vilhjálmur. „Fyrirtæki hafa óheftan
aðgang að ódýru vinnuafli og fyrir-
tæki með íslenska starfsmenn eru
ekki lengur samkeppnisfær."
Breytt verkefnastaða
Aðalgeir Hólmsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Sveinbjörns Sigurðs-
sonar, vísar þessari umfjöllun á
bug og er ósáttur við að vera bendl-
aður við siðlaust athæfi. Hann segir
rekstrarforsendur fyrirtækisins á
Akranesi breyttar. „Þetta er ekki
svona í pottinn búið. Áætlanir um
verkefni hafa breyst og því voru
þessar uppsagnir óumflýjanlegar,"
segir Aðalgeir og bendir á að upp-
sagnirnar séu flestar með fyrirvara
um endurskoðun. „Undirstaða þess
að hafa mennina áfram á launum
er breytt. Verkefnin sem eru fram-
undan eru þess eðlis að við þurfum
að ráða verktaka og það er dýrt að
halda úti starfsstöð þegar ekki er
nóg að gera.“
Starfsmenn brjálaðir
Salvar Georgsson, einn þeirra
sem sagt var upp störfum hjá fyrir-
tækinu, segir starfsmenn ekki hafa
fengið neinar skýringar á uppsögn-
unum. Hann segir að illa hafi verið
brugðist við þegar eftir þeim var
leitað. „Allir starfsmennirnir eru
brjálaðir yfir þessu og hundfúlir.
Það er vont að fá enga skýringu
á uppsögninni og síðan grunar
okkur að þeir ætli að ráða útlend-
inga í staðinn,“ segir Salvar. „Ein-
hverjir á skrifstofunni voru með
dólgshátt og skæting þegar við
vildum fá svör. Við höfum ekkert
fengið að vita hvers vegna okkur er
sagt upp eða hvað fyrirtækið ætlar
að gera.“
Stefán er einnig hissa á fram-
komu yfirmanna fyrirtækisins og
segir forstjóra þess hafa svikið gefin
loforð. „Ég sagði upp mínu fyrra
starfi, eftir sautján ár þar, vegna
þess að forstjórinn lofaði nægum
verkefnum næstu árin. Þessi upp-
sögn kemur því eins og blaut tuska
framan í mann,“ segir Stefán.
Endurnærandi hvíld
ístólum sem hlúa
að bakinu
1,2ja eða 3ja saeta - margir litir
Leitaðu frekari upplýsinga hjá okkur
0
ontúra
Húsgögn
Ekki okkar stefna
Aðspurður segist Aðalgeir vel
skilja að mörgum sárni uppsagn-
irnar og útilokar að útlendingar
verði ráðnir í störfin. „Við höfum
reynt að standa eins heiðarlega að
þessum uppsögnum og frekast er
unnt. Okkar stefna er sú að mismuna
ekki fólki eftir þjóðerni og að borga
markaðslaun,“ segir Aðalgeir. „Við
höfum, eins og aðrir, þurft að leita út
fyrir landsteinana eftir starfsfólki en
þeirri þróun höfum við ekki fundið
upp á. Því miður eru til dæmi um að
menn hafi notfært sér þessa þróun
en slíkt á sér ekki stað hjá okkur.“
Vilhjálmur hefur miklar áhyggjur
af gangi mála og segir þetta skelfi-
lega þróun fyrir íslenska launþega.
„Ég skil ekki hvernig það fer saman
að í hverjum mánuði komi í kringum
þúsund erlendir starfsmenn hingað
til vinnu á meðan verið er að segja
upp íslenskum starfsmönnum. Það
er eitthvað bogið við þessa mynd.“
Fyrirtæki með
íslenska starfs-
menn eru ekki
samkeppnisfær
Vilhjálmur Birgisson
Formaöur Verkalýðs-
félags Akraness
Við staðið eins
heiðariega að
uppsögnum og
frekast er unnt
Aðalgeir Hólmsteinsson
FramkvæmdastjóriSvein-
björns Sigurðssonar ehf.
Allir starfsmenn-
irnir eru brjái-
aðir yfirþessu
og hundfúlir
Salvar Georgsson
Fyrrverandi starfsmaður
Landsvirkjun og Kárahnjúkavirkjun:
Borgin ábyrg til 2012
„Þetta er ekki raunhæfur kostur og
kemur því ekki til greina,“ segir
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg-
arstjóri um þá kröfu að ábyrgðum
borgarinnar fyrir virkjunarfram-
kvæmdum verði aflétt í kjölfar sölu
á hlut hennar í Landsvirkjun.
Kemur ekki til
greína að aflétta
ábyrgðunum
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Borgarstjóri
Ekki aflétt Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarstjóri segir ábyrgðum
borgarinnar fyrir virkjunarfram-
kvaemdum ekki verða aflétt.
Ólafur F. Magnússon, borgarfull-
trúi Frjálslynda flokksins, segir
borgina ekki hafa neina hagsmuni
lengur hjá Landsvirkjun og því sé
það skýlaus krafa að aflétta ábyrgð-
unum. Vilhjálmur er því ósammála.
,Reykjavíkurborg er með skuld-
bindingar gagnvart þessum fram-
kvæmdum og ábyrgðirnar standa
fram til ársins 2012“