blaðið - 07.11.2006, Síða 17
blaðið
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 17
Miklar tafir vegna fárviðris:
Fengu engar upplýsingar
Heimkomu á annað hundrað
farþega Icelandair frá Lundúnum
frestaðist um nær sólarhring vegna
veðurs og þess að ekki tókst að
útvega nýja áhöfn. Áhöfnin sem
var á vellinum mátti ekki fljúga þar
sem hún hefði þá brotið reglur um
hvíldartíma og ekki var hægt að
koma nýrri áhöfn út í staðinn.
Örtröð myndaðist við upplýsinga-
borð breska fyrirtækisins BMI, þjón-
ustuaðila Icelandair á Heathrow á
sunnudagskvöld, eftir að tilkynnt
var að búið væri að fella niður kvöld-
flug til íslands.
Farþegum gekk illa að fá upplýs-
ingar og vísuðu starfsmenn BMI
öllum fyrirspurnum frá sér og
sögðu að þetta kæmi þeim ekki við.
Enginn fulltrúi Icelandair var á
svæðinu og þurftu farþegar því að
bíða í fullkominni óvissu áður en
fyrstu upplýsingar bárust frá fyrir-
tækinu. Að lokum var öllum smalað
upp í rútu og þeim útveguð gisting á
hóteli nærri Heathrow-flugvelli. Þar
gistu farþegar um nóttina en flogið
var til Islands laust fyrir hádegi í
gær.
„Öllum flugum var frestað vegna
veðurs og það þurfti heilmikið
púsluspil til þess að koma því af
stað á ný,“ segir Guðjón Arngríms-
son, upplýsingafulltrúi Icelandair.
Hann segir að þegar veðrinu slotaði
hafi farið af stað flókið púsluspil til
þess að koma fólki til og frá. Þar á
meðal hafi spilað inn í að áhafnir
sem urðu veðurtepptar hafi þurft
að uppfylla ákveðinn hvíldartíma
og því hafi þurft að senda nýjar
áhafnir út.
Mikil ringulreið Farþegar sem
vonuðust til þess að komast heim
frá London á sunnudag festust í Eng-
landi vegna fárviðris á Islandi.
Danmörk:
Danir vilja
dauðarefsingu
Fimmti hver Dani vill að
dauðarefsingar verði teknar
upp í landinu á nýjan leik. Ef
einnig er litið til stuðnings við
stjórnmálaflokka sést að rétt
tæpur helmingur þeirra sem
styðja Danska þjóðarflokkinn
vill taka upp dauðarefsingar.
Þetta er niðurstaða könn-
unar IFKA í Danmörku.
Rene Dupont, amtstjórnar-
maður Danska þjóðarflokksins í
Suður-Jótlandi, fagnar því að svo
margir stuðningsmenn flokksins
vilji taka upp dauðarefsingar.„Ég
er fylgjandi dauðarefsingum og
þær mega gjarnan vera þyngsti
dómur hegningarlaga. Þetta snýst
ekki um að ná fram einhverjum
hefndum, heldur eru sumar
manneskjur einfaldlega svo
hættulegar að þær eiga ekki að fá
að vera hluti af samfélagi manna,“
segir Dupont, sem undirstrikar
að þetta sé persónuleg skoðun
hans, en ekki stefna flokksins.
Dauðarefsingar voru endanlega
lagðar af í Danmörku 1993.
Hertar reglur:
Litlar tafir á
fyrsta degi
Starfsmenn í öryggisgæslu
Keflavíkurflugvallar segja að
innleiðing nýrra reglna um
handfarangur hafi gengið vel
fyrir sig og hafa ekki orðið
teljandi tafir vegna þeirra.
I gær tóku gildi nýjar, strangari
reglur varðandi handfarangur
í millilandaflugi. Þessar hertu
reglur snúa einkum að vökvum
sem farþegar mega taka með sér í
flug. Allar umbúðir sem innihalda
vöka mega að hámarki rúma 100
millilítra af vökva og allar umbúð-
irnar sem hver farþegi tekur með
sér verða að rúmast í gegnsæjum
eins lítra plastpoka sem hægt er
að loka með rennilási. Þegar rætt
er um vökva er átt við vörur eins
og áfengi, ilmvötn, tannkrem og
sápur. Hver farþegi má einungis
hafa einn slíkan poka meðferðis.
Sjáðu hvernig raunveruleikinn
lítur út í sjónvarpi
Hugsaðu stórt og sjáðu skýrt með HITACHI 42PD9700
42" HD ready plasma sjónvarpi.
HITACHI
lnspire the TMext
• Upplausn 1024 x 1080 punktar. Yfir 1000 línur!
• 68,6 milljarðar lita. Nýr 1080 punkta myndkubbur
gerir myndina ótrúlega skarpa og góða.
• 2sHDMI / 3 x skart / component / USB / tengi fyrir
bassa og SD minniskortalesari.
• Uppfyllir öll skilyrði til að vera HD ready og gott betur.
• Rafdrifinn snúningsfótur. Glæsileg hönnun.
www.raunveruleikasjonvarp.is
it
Hátæknl
HITACHI fæst hjá söluaðilum um land allt
Armúli 26 / Sími 522 3000 / www.hataekni.is