blaðið - 07.11.2006, Page 22
HEYRST HEFUR...
Prófkjörin eru í hámarki
þessa dagana og helgin var
undirlögð af alls kyns SMS-
sendingum
og símtölum
frá hinum og
þessum fram-
bjóðendum.
Frambjóð-
endur leita
allra leiða til að koma sér á
framfæri á sem ódýrastan hátt
og þar kemur farsímatæknin
að góðum notum. Sú aðferð að
nota smáskilaboð til að koma
boðskap sínum á framfæri er
einungis nokkurra ára gömul
en er óspart notuð. Margir fram-
bjóðendur virðast hins vegar
ekki uppfæra símaskrána sem
notuð er þar sem heyrst hefur
að mörg börn séu að fá skilaboð
frá hinum og þessum frambjóð-
endum. Þannig segir Sigmar
Guðmundsson sjónvarpsmaður
á blogginu sínu frá því að n ára
gamall fóstursonur hans hafi
fengið á þriðja tug smáskilaboða
um helgina frá frambjóðendum.
Aforsíðu helgarblaðs DV var
mynd af glæsilegu pari,
Hildi Völu og Jóni Ólafssyni,
en þau eignuðust nýlega sitt
fyrsta barn
saman. Á
forsíðunni
kemur auk þess
fram að Jón
eigi líka tvö
börn með fyrr-
verandi eiginkonu sinni. Það
var mikill spenningur að lesa
blaðið þvi það er alltaf gaman
að lesa viðtöl
við Hildi Völu
þar sem hún
er ekki mikið
í sviðsljósinu.
Spenningurinn
vék þó fyrir
vonbrigðum þegar kom í ljós
að greinin um Hildi og Jón var
einungis unnin úr gömlum við-
tölum auk þess sem nokkrum
setningum frá móður Hildar
Völu var skeytt við. Já, það er
sko ekki nóg að neita því að
fara í viðtal vilji menn ekki vera
á forsíðunni.
Eyjólfur Magnússon og
Páll Eiríksson „Megin-
hugsunin er sú að byggja
fóik upp eftirýmis áföll og
leiðbeina því til sjálfshjálp-
ar. Þegar fólk hefur öðiast
styrk þá hefur það styrk
til að rétta öðrum hjálpar-
hönd,“ segir Eyjólfur
Mynd/Frlkkl
Jákvætt sjálfstraust
er lykill að velgengni
„Jákvætt sjálfstraust er í rauninni
að kunna að sigra og tapa en halda
samt áfram á sinni braut,“ segir
Eyjólfur Magnússon, kennari og
stjórnarformaður Handarinnar.
Samtökinstandaí kvöld að fræðslu-
fundi um jákvætt sjálfstraust, leið
til betra lífs. Magnús Scheving, for-
stjóri Latabæjar, og Svafa Grönfeldt,
aðstoðarforstjóri Actavis, verða
framsögumenn og Páll Eiríksson
geðlæknir er fundarstjóri.
„Við ákváðum að fá Magnús og
Svöfu á fræðslufund um sjálfs-
traust því þau eru toppfólk og hafa
komið sér vel fyrir í samfélaginu.
Það hefðu þau varla getað nema
með því að hafa haft jákvætt sjálfs-
traust að leiðarljósi þar sem sjálfs-
traust er lykill að velgengni,” segir
Eyjólfur.
Hann segir að Höndin sé fyrst
og fremst mannúðar- og mann-
ræktarsamtök sem eru til styrk-
ingar og samhjálpar fyrir fólk í
víðum skilningi.
„Meginhugsunin er sú að byggja
fólk upp eftir ýmis áföll og leið-
beina því til sjálfshjálpar. Þegar
fólk hefur öðlast styrk þá hefur
það styrk til að rétta öðrum hjálp-
arhönd. Við verðum öll fyrir ein-
hvers konar sorg eða missi og besta
lækningin er fólgin í því að hjálpa
öðrum. Sorg og missir getur verið
allt mögulegt, skilnaður eða jafn-
vel fall á prófi,“ segir Eyjólfur og
bætir við að Höndin sé rúmlega
ársgömul. „Við höldum fræðslu-
fundi mánaðarlega og höfum
tekið fyrir fjölmörg mál. Fyrsti
fundurinn var með Thelmu Ás-
dísardóttir um kynferðisofbeldi,
auk þess höfum við fjallað um át-
röskun og margt fleira. Síðast var
fræðslufundur um fíkniefni og
hann sóttu rúmlega áttatíu manns.
Við erum líka með sjálfsstyrkingu
tvisvar í viku sem er opin öllum
rétt eins og fræðslufundirnir."
Fræðslufundur Handarinnar
um jákvætt sjálfstraust er haldinn
í Áskirkju í kvöld og hefst klukkan
20.30. Frekari upplýsingar má
finna á www.hondin.is.
svanhvit@bladid.net
■
KULDAGALLARNIR KOMNIR
Á förnum vegi
ylgistu með íslenska
handboltanum?
Ingólfur Birgisson, vélamaður.
Nei, ekki neitt.
Jóna Rut Jónsdóttir,
heimavinnandi húsmóðir.
Nei, ég hef bara ekkert náð að
fylgjast með honum.
Thelma Rut Eðvarðsdóttir, aðstoð-
armaður tannlæknis.
Nei, ekki neitt.
Annel Helgi Finnbogason,
sölumaður.
Já, mikið og held með HK.
Tappinn losnaði af.