blaðið - 07.11.2006, Qupperneq 26
blaðið
Borg iþoku
Ut er komin hja Havallautgafunni Ijóðabokin Borg i þoku eftir
Hermann Stefánsson. Þetta erfyrsta Ijóðabók Hermanns en
hann hefur áður sent frá sér skáldsögurnar Níu þjófalykla og
Stefnuljós auk skáldfræðiritsins Sjónhverfinga.
NÓVEMBER 2006
Skaldaspsrakvöld
Skaldasþirukvöldin i Iðu hafa fyrir löngu unnið sér fastan sess í menningarlífi borgar-
innar. (kvöld klukkan 20 verður sjötugasta og fyrsta kvöldið haldið en þær Anna Dóra
Antonsdóttir og Kristrún Guðmundsdóttir lesa úr nýútkomnum skáldsögum sínum. Að
gangur er ókeypis og að venju er það Benedikt S. Lafleur sem annast skiþulagningu.
Annan dag
Friörik Ómar
Dæmið gengur
ekki upp
Annan dag með Friðriki Ómari
er pínlega týpísk íslensk
dægurlagaplata. Frágangur
og hljómur er til fyrirmyndar og
útsetningar eftir bókinni. Þá er
söngur Friðriks mjög góður en ég
spyr mig hvort platan hafi eitthvað
annað fram að færa en fagmann-
legt yfirbragð.
Mjög erfitt er að greina á milli laga
plötunnar. Þau renna saman í
poppgraut sem á endanum skilur
harla lítið eftir sig. Lögin fjalla flest
um ástina á einhvern hátt; Friðrik
Ómar segist þurfa að „feisa lífið"
og syngur sig svo í gegnum frum-
skóg af klisjum í íslenskri textagerð.
Hann „tendrar hjá þér bál“, vonar
að hann „komist á þinn fund“ en
er á endanum „til staðar ávallt fyrir
Þig“-
Friðrik Ómar er óskilgetið afkvæmi
idol-kynslóðarinnar. Hann tók ekki
þátt í keppninni, fór eðlilegu leiðina
enda góður söngvari. Platan ber
samt með sér þennan „idol-brag“
sem flestir ættu að vera búnir
að fá nóg af. Það er allt vel gert,
hljóðfæraleikur og hljóðblöndun
til fyrirmyndar. En eins Ekstra-
blaðið danska sagði um íslenska
fjármálaheiminn þá gengur dæmið
ekki ujop.
atli@bladid.net
Píanókeppnx t Salnum
Listamenn framtíðar-
innar spreyta sig
morgun hefst þriðja
Píanókeppni íslands-
. deildar Evrópusam-
bands píanókennara
í Salnum í Kópavogi.
Keppnin stendur fram á sunnu-
dag og eru rúmlega þrjátíu þátttak-
endur skráðir til leiks. Keppt er í
þremur flokkum, flokki miðnáms,
flokki framhaldsnáms og flokki
háskólanáms og fer forkeppni í öll-
um flokkum fram á morgun og á
fimmtudag.
Þær Arndís Björk Ásgeirsdótt-
ir, Brynhildur Ásgeirsdóttir og
Þóra Fríða Sæmundsdóttir sitja í
stjórn keppninnar og hafa annast
skipulagninguna. „Keppnin var
fyrst haldin árið 2000 en þá veittu
Reykjavíkurborg og menntamála-
ráðuneyti myndarlega styrki til
þess að hægt væri að gera þetta
að veruleika og ákveðið var að
halda keppnina á þriggja ára fresti
upp frá því,“ útskýrir Arndís Björk.
„Þátttakendur mega ekki vera eldri
en 25 ára á þeim degi sem keppnin
rennur upp. Þeir þurfa að fara eft-
ir ákveðnu prógrammi en þetta er
þó ívið frjálsara en gerist og geng-
ur víða erlendis. Þau velja verk frá
ólíkum tímabilum tónlistarsög-
unnar sem þau þurfa að túlka og
það reynir töluvert á hæfni þeirra
á ólíkum sviðum. Þeir sem kom-
ast í úrslit þurfa einnig að spila
íslenskt verk.“ Arndís Björk segir
Arndís Björk Ásgeirsdóttir „B/stu
krakkarnir spila mjög krefjandi verk
og öll efnisskráin er mikil áskorun
fyrirþá sem taka þátt."
prógrammið vera metnaðarfullt og
reyna töluvert á hæfni þeirra sem
takast á við það. „Elstu krakkarnir
spila mjög krefjandi verk og öll efn-
isskráin er miícil áskorun fyrir þá
sem taka þátt.“ Tónskáldið Snorri
Sigfús Birgisson hefur samið nýtt
verk fyrir keppnina sem hann nefn-
ir Eos og Selena og verður það flutt
í úrslitum í flokki framhaldsnáms
og verður veitt sérstök viðurkenn-
ing fyrir bestan flutning á því verki.
Menntamálaráðuneytið styður
dyggilega við bakið á keppninni og
er menntamálaráðherra, Þorgerð-
ur Katrín Gunnarsdóttir, verndari
keppninnar.
Til mikils er að vinna en auk
glæsilegs verðlaunagrips fá þeir
sem hreppa fyrsta sæti í hverjum
flokki stúdíóhljóðritun frá Rík-
isútvarpinu, en Tónastöðin, 12
tónar og JPV útgáfa leggja einnig
til glæsileg verðlaun. „Það er þó
auðvitað fyrst og fremst reynslan
og þroskinn sem krakkarnir upp-
skera sem er dýrmætast,“ segir
Arndís Björk.
Áhugasamir geta hlýtt á kepp-
endur á morgun, fimmtudag, og
laugardag gegn vægum aðgangs-
eyri og fengið að berja augum
píanóleikara framtíðarinnar.
Verðlaunaafhending fer svo fram
klukkan 14 næstkomandi sunnu-
dag.
**»»
1
c
a
f
I
i
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
Steppehf. | Ármúla32 | Sími 533 5060 | www.stepp.is | stepp@stepp.is
HLÝLEGT OG MJÚKT
Myndlist og
litríkt leikhús
„Ég hef því miður ekki haft mik- Stelpan frá Stokkseyri og kemur út
inn tíma til að sækja menningar- á næstu dögum.“
viðburði að undanförnu vegna próf-
kjörsanna,“ segir Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir alþingismaður. „Ég
náði þó rétt að kíkja á opnun á
myndlistarsýningu Þráins Bertels-
sonar í Galleríi Sævars Karls um
helgina og var ákaflega hrifin af
því sem hann hafði fram að færa.“
Ásta Ragnheiður segist hafa gam-
an af því að fara í leikhús en síðasta
sýningin sem hún sá var Skoppa og
Skrítla eftir Hrefnu Hallgrímsdótt-
ur og Lindu Ásgeirsdóttur sem
sýnd er á Leikhúslofti Þjóðleik-
hússins. „Það vill svo skemmti-
lega til að Linda er kosninga-
stjórinn minn og því dreif ég
mig að sjá þetta skemmtilega
verk. Þetta er stórkostleg sýn-
ing fyrir allra yngstu leikhús-
unnendurna og það eina sem
leikhúsin eru að bjóða upp á
fyrir þennan aldurshóp. Þær
Hrefna og Linda eru frábær-
ar í hlutverkum sínum og
ná vel til barnanna." Ásta
Ragnheiður segist aðallega
hafa verið að lesa pólitísk
rit að undanförnu en hlakk-
ar til að lesa sig í gegnum
yfirvofandi jólabókaflóð.
„Ég er sérstaklega spennt
fyrir ævisögu Margrétar
Frímannsdóttur sem
Þórunn Hrefna skrif-
ar. Bókin ber titilinn