blaðið - 07.11.2006, Page 32

blaðið - 07.11.2006, Page 32
40 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 blaðið íbróttir r s ithrottir@bladid.net _ r. • I___________ Beckham til LA Galaxy? Alexi Lalas, forseti og þjálfari bandaríska knattspyrnuliðsins LA Galaxy, hefur lýst þvi yfir að hann hafi áhuga á að fá David Beckham til liðs við félagið. Beckham sagði í vor þegar hann var enn byrjunarliðsmaður hjá Real Madrid og fyrirliði enska landsliðsins að hann gæti vel hugsað sér að spila með félaginu frá Los Angeles þar sem hann rekur knattspyrnuakademíu í eigin nafni. ertir ummæli sín um dómgæslu Grahams Poll í 2-1 tapi Chelsea fyrir Tottenham á White Hart Lane um helgina. Að mati Mourin- hos dæmdi Poll ranglega af skallamark Didiers Drogba, rak John Terry út af með tvö gul spjöld fyrir litlar sakir og refsaði ekki Hossam Ghaly, leikmanni Tottenham, fyrir að gefa Michael Essien olnboga- skot í andlitið. Enska knatt- spyrnusambandið rannsakar ummælin. Frank Rijka- ard, stjóri Barcelona, var sáttur við leik sinna manna eftir í-i jafntefli við Deportivo á sunnudag en kvartaði þó yfir lé- legri nýtingu fyrir framan markið. Barcelona missti með jafnteflinu fyrsta sæti deildar- innar til Sevilla Guðjón Þórðarson hyggst styrkja leikmannahópinn: Ódýrara að fá erlenda leikmenn | , 'ii Fimm leikmenn farnir frá IA Fær enska leikmenn lánaöa ■ LEIKMENN SEM ERU FARNIR FRA ÍA: ArnarGunnlaugsson FH Bjarki Gunnlaugsson FH 1, Hafþór Ægir Vilhjálmsson Valur Pálmi Haraldsson Hættur Hjörtur Hjartarson Óvist e- Igor Pesic Fram Miklar breytingar Fimm leikmenn hafa yfirgefið Skagaliðið frá þviGuðjón Þórðarson tók við liðinu í haust. Guðjón segist hafa fengið vilyrði frá tveimur knattspyrnustjórum í Englandi um að fá lánaða leikmenn fyrir næsta timabil. „Það er alveg ljóst að ég næ ekki að manna liðið einungis með mönnum sem eru hjá félaginu nú þegar. Ég hef fengið vilyrði frá tveimur knatt- spyrnustjórum á Bretlandseyjum um að fá lánaða hjá þeim leikmenn, í gegnum persónuleg tengsl sem ég hef þar. Það kemur fjárhagslega mun betur út fyrir félagið en að elt- ast við íslenska leikmenn,” sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, að- spurður um hvernig ÍA hygðist bregðast við brotthvarfi sex leik- manna úr Skagaliðinu frá í sumar.‘ „Miðað við vinnuframlag eru knatt- spyrnumenn á íslandi of hátt laun- aðir. Það er ódýrara eins og staðan er í dag að sækja leikmenn erlendis frá heldur en að taka þátt í verð- stríðinu hérna heima. Það eru ansi margir hundraðþúsundkallar sem fara til leikmanna á ársgrundvelli miðað við hversu stutt tímabilið er,” sagði Guðjón. Guðjón segist þó ætla að bíða með að fá til sín leikmenn þar til hann ur séð hvort ungir og efni- legir leikmenn hjá félaginu hafi öðl- ast nægilegan þroska til að manna þær stöður sem í vantar hjá liðinu. „Ég vil fyrst sjá hvað mínir leikmenn geta sem ég hef nú þegar áður en ég fer að sækja leikmenn annars staðar frá. Ég ætla ekki að fá menn til liðs- ins til að manna stöður sem ungir leikmenn hjá félaginu geta leyst og seinka þannig jafnvel þroska ungra Skagamanna,” sagði Guðjón að lokum. Skeytin inn Skilja þurfti að stjórana Arsene Wenger og Alan Pardew eftir að Marlon Harewood skoraði sigurmark West Ham gegn Arsenal á sunnudag. Pardewfagn-1 aði marki West Ham af miklum móð, sem fór mjög fyrir brjóstið á Wenger. Stjórarnir voru skildir að og tókust ekki í hendur að leik loknum eins og venja er. „Ef ég var of ákafur í fagnaðarlátunum, sem ég lík- lega var, bið ég Arsene Wenger og Arsenal afsökunar,” sagði Pardew eftir leikinn. Tveir leikmenn voru grýttir með smápeningum af áhorfendum í leikjum helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Smá- peningi var kastað í RobinVan Persie, leik- * x~*‘ mann Ar- senal og Claus Jensen, leikmaður Fulham, fékk einnig smápen- ing í höfuðið í leik Fulham og Everton. V l'l PIPEX i Knattspyrnuakademía íslands kynnir Fótboltanámskeið fyrir stráka og stelpur í 4. og 5. flokki. Námskeiðið ferfram í Fífunni í Kópavogi tímabilið 13. nóv. - 1. des. Kennt verður mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl. 6.30 - 7.30 á morgnana. Spennandi og skemmtilegt tækifæri fyrir þá sem vilja stórauka getu sína í fótbolta. Leiðbeinendur: Logi Ólafsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Þorlákur Árnason, yfirþjálfari yngri flokka Stjörnunnar Ingvi Sveinsson, þjálfari hjá yngri flokkum Þróttar Mist Rúnarsdótir, þjálfari hjá yngri flokkum Þróttar Viktor Bjarki Arnarsson, Ásthildur Helgadóttir og fleiri leikmenn úr Landsbankadeild karla og kvenna mæta á svæðið og liðsinna þátttakendum. Arnór Guðjohnsen, Ásgeir Sigurvinsson og Guðni Bergs koma í heimsókn. KNATTSPYRNU AKADEMÍA ÍSLANDS Sérstök markvarðaþjálfun verður á námskeiðinu. Leiðbeinandi: Guðmundur Hreiðarsson. Þátttökugjald: 12.900 kr. á VISA-sérkjörum með morgunhressingu. Skráning á knattspyrnuakademian.is Nánari upplýsingar veitir Þorlákur Árnason, yfirþjálfari, í síma 895 9068.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.