blaðið - 07.11.2006, Qupperneq 34
42 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006
blaöiö
Staðhættir Leiðin liggur i Laugar-
dalinn, framhjá Laugardalslauginni og til
vinstri. Þú stoppar hjá brunahananum.
Tinna Bessadóttir 28 ára
býr í Laugardal og gefur lesendum Blaðsins
vegvisi að ibúð sinni þessa vikuna. Hún er þekkt
fyrir að hafa sérstakt dáiæti á hnetusmjöri og rauðvini
og stundum hellir hún upp á kaffi og gleymir kaffinu.
Hún vinnur að því að skrifa handrit og texta i frítima
sínum og vistarverur hennar þykja eftirsóttur staður til
heimsókna vegna þeirrar visku sem þangað er hægt að
sækja. Eru það helst dragdrottningar, dramadrottning
ar og fjölskyldumeðlimir sem ferðast þangað. Allir
tímar ársins þykja hentugir til heimsókna.
Plötuspilarinn gamli og góði
Vínylplöturnar lifðu af geisladiskana og niðurhal á tónlist og nú er það inni að gefa sér góðan tíma til að koma
sér upp góðu og sérviskulegu plötusafni og spila plötur á plötuspilara. Plötuspilarar eru auðvitað ekki sérstak-
lega meðfærilegir en þessi USB-plötuspilari frá Numark er skemmtilegur að því leyti að hann býður líka upp á
þá möguleika að hægt er að tengja hann við tölvu og MP3-spilara. www.gadgets.dk á um 18.000 krónur
r——
Spólað til baka...
Kristjana Guðbrandsdóttir
\_____________________________J
Dýralíf Fiskurinn Lar-
íleiSigrúnDís ræður ríkjum
en stöku sinnum má sjá
nágrannakettinum Músa
bregða fyrirvið mikinn
fögnuð heimilisfólks.
Ég lagði leið mína í
Garðabæinn um helg-
ina í hina risavöxnu
húsgagnaverslun
islands, IKEA, til
að festa kaup á
handklæðum og
hnífaparaskúffu.
Ég keyrði að
sænska gímald-
inu sem virtist
ætla að gleypa
Garðabæ og um leið varð mér
Ijóst að hálf þjóðin virtist ætla að
heimsækja verslunina því lengi
sat ég í langri röð bíla og óskaði
mér þess að ég hefði tekið með
mér einhverjar vistir fyrir þessa
langferð.
Þegar inn var komið blasti við
mér þessi glæsilega verslun. Allt
svo heimsvant og fágað að ég og
aðrir nærstaddir íbúar fiskiþorps-
ins Islands tókum andköf af furðu.
Það runnu hins vegar á mig tvær
grímur þegar ég var búin að
ganga um verslunina í smástund;
verslunin er risastór. Þetta er ekki
verslun til að skjótast inn í til að
ná í hitt og þetta á mettíma. Nei,
það þyrfti helst að vera með kort
af versluninni eða fararstjórn
og ferðast í gegnum verslunina
í ratleikjastíl. Reglulega heyrð-
ust tilkynningar um týnd börn í
hátalarakerfinu og almennt voru
þeir sem sóttu verslunina eitthvað
skelfdir á sviþ þar sem þeir reik-
uðu um gangana og spurðu verði,
sem voru fjölmargir á víð og dreif
um svæðið, um leiðina út.
En þetta kunnum við að meta,
Smáralindir og Kringlurog Ikea-
bákn til að dvelja í um helgar. Því
meðan rigningin lemur landið er
það aðeins fyrir hina alla hörðustu
og hressustu að stunda útivist.
Jafnvel þótt útivistin takmarkist
við það að hlaupa úr bíl í hús.
Það lítur að minnsta kosti út fyrir
það að við séum orðin svo lin að
við hættum okkur ekki út úr húsi
nema til að keyra beint inn í upp-
hituð bílahús stórverslana.
Annars sótti ég líka menninguna
heim, hætti mér úr bílnum og fauk
úfin og blaut inn í bíóhús til að
horfa á Mýrina í leikstjórn Baltas-
ars Kormáks. Sú mynd minnti mig
á góðan Taggart-þátt. Þá er ekki
lítið sagt því ekkert gleður mig
meira en sá fúllyndi skarfur og
ég gat svo sannarlega glaðst yfir
því hvað Taggart... nei ég meina
Erlendur var í mikilli fýlu.
ume
y
s
£
Ti
tii
helst
erðast
f\
Hvað þarf að hafa með
f för Gott er að hafa með sér
nammi og gjafir til húsráðenda til
að fá góða inngongu
\\\\\\W
V
Hvenær er hentugt að ferðast Eftir
klukkan 7 á kvöldin er opið hús og þá er einkum
góður tími til að stoppa við í kvöldmat. Gott er að
hringja á undan sér svo tími gefist til að bæta disk
um við. Ekki er mælt með því að reyna inngöngu
snemma á laugardags- og sunnudagsmorgnum
sökum myglu og klæðaburðar heimilisfólks.
' Siðir og venjur Mikið er um dans,
þá einkum í eldhúslnu og stofunni,
'"//t nútímaballet er þar vinsælastur og
gaman er aö taka nokkur spor með
heimilisfólki. Já, eða skoða nokkrar
myndir úr gömlum albúmum og jafnvel
^ mála eina mynd sjálfur.
Matur og menning Fiskur er aðalfæða heim-
ilisfólks sem er ekki að furða enda rennur sjór um
æðar fjölskyldunnar.
Heiisa Ef ofnæmi eða
óþol er fyrir hendi gagn-
vart bleikum lit er ekki
mælt með inngöngu því
bleiki liturinn er ráðandi í
öllum vistarverum.
—
Hættur Sofinn er afar girmlegur og lokkandi
il hætta er á því að sofna ef lagst er í hann.
Mik
%
Samfélag & menning Hingað kemurfolk
úr öllum áttum. Algengt er að haldin séu prins-
essupartí og er þá strangt dresskód um að vera
í prinsessukjól með kórónu. Dragdrottningar og
fjölskyldumeðlimir eru líka tíðir gestir.
Vert að sjá Uppstoppaðir piranafiskar, spakula
og risastór mynd af Sollu stirðu prýða vistarverurn-
ar og vekja áhuga og furðu gestkomandi.
Smurþjónusta H
Alþríf
Rafgeymar W- v
Dekkjaþjónusta
www.bilko.is
www.hasso.is
Mundu eftir uð finno besta ÉBrði# dður en þú haupir dehh!
Car-rental / Bílaleiga
Vetrardekk - Heilsársdekk - nagladekk - loftbóludekk
ne|rg
Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110