blaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 1
Tara er aftur flott
Partípían Tara Reid hefur tekið sig
saman í andlitinu eftir
nokkra útlitslega ^
dapra mánuði.
Eftir partístand
síðustu mánaða '
mætti skvísan
stórglæsileg á
rauða dreg-
ilinnum
helgina.
■ KOLLA OG KULTURINN
Var Pórbergur Póröarson með
Aspergerheilkenni? Halldór
Guðmundsson veltir því fyrir
sér í nýrri bók | síða36
■ HEIMILI
Marta María, ritstjóri Veggfóðurs,
er nýorðin mamma og farin að
huga að jólaskreytingum
þrátt fyrir annir |síða38
Guðmundur Halldórsson, varðstjóri í slökkviliðinu, er áhyggjufullur
Laugavegurinn mun brenna
■ Samtenging húsa er stórhættuleg ■ Vantar brunavarnir og útgönguleiðir
Fær vinnu hjá borginni
Óskar Bergsson, varaborgarfulltrúi
Framsóknarflokksins, hefur verið ráð-
inn sem verkefnastjóri við uppbyggingu
Mýrargötusvæðisins.
,Þetta er tímabundin verkefnastjórn
sem ég tek aö mér fyrir Framsóknar-
flokkinn. Ég tel að þetta hafi ekki áhrif
á störf mín sem varaborgarfulltrúi
hjá Reykjavíkurborg,” segir Óskar að-
spurður hvort hann hyggist segja af sér.
sprengingu. Slökkvistarf gekk ágætlega og tókst
að koma í veg fyrir að eldur læsti sig í þakið.
„Ef eldur hefði farið í þakið þá hefðum við
orðið vitni að öðrum Laugavegsbruna," segir Guð-
mundur og vitnar til brunans sem varð á Laugavegi
í október árið 2002. Þá brann Laugavegur 38-40 og
var tjónið metið á 154 milljónir. Vegna samtengdra
húsa og brunahættu segir Guðmundar tímaspurs-
mál hvenær stórbruni verður á Laugavegi.
„Slökkviliðið hefur einnig verulegar áhyggjur af
innflytjendum sem búa í ósamþykktu húsnæði
á Laugavegi,“ segir Guðmundur en Blaðið sagði
frá því í lok ágúst að á þriðja tug erlendra verka-
manna byggju í gömlum veitingastað við Lauga-
veg. Guðmundur segir þetta lífshættulegt þar sem
engar brunavarnir eru til staðar né útgönguleiðir.
Því séu allt of miklar líkur á að fólk brenni inni
verði eldsvoði. Einnig er vont fyrir slökkvilið áð
vita ekki um fólk í brennandi byggingu þegar að
er komið.
„Ég gæti ekki komist út úr íbúðinni minni með
góðu móti ef það kæmi upp eldur,“ segir íbúi sem
býr í næsta húsi við það sem brann á mánudag.
Annar íbúi sagðist hafa miklar áhyggjur af skúrum
á baklóðum húsa. Ekki er vitað um eldsupptök og
er málið í rannsókn.
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
,Hefði liðið lengri tími þar til við komum þá hefði
Laugavegurinn hreinlega getað brunnið,“ segir
Guðmundur Halldórsson, varðstjóri hjá slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins, en hann stýrði að-
gerðum þegar eldur kom uppi í risi húss við
Laugaveg.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út vegna elds
í húsi nærri horni Laugavegar og Barónsstígs,
skömmu fyrir sjö á mánudagskvöld. Eldur var
laus í eldhúsi sem er sameiginlegt ineð tveimur
íbúðum. Hiti var mikill og óttast var um eld-
Uthrópunum linni
,Mér blöskrar umræðan á Alþingi og
í fjölmiðlum, hvað hún er einhliða
gegn Israel," segir
Mikael Tal Grétarsson g
sölustjóri. Mikael
ólst upp að hluta til í *’ . .
Israel og á ísraelska
móður. „Að formaður
eins stærsta stjórn- £
málaflokks á Islandi skuli leggja til að
slíta stjórnmálasambandi við ísrael
finnst mér svo alvarlegt að þaö hálfa
væri nóg.“
Alþjóðiega
MYND/SVERRIR
Mótmæla blóðbaði fsraela f Beit Hanoun Tugir mótmæltu fyrir utan utanríkisráðuneytiö þegar sendiherra Israela, Miryam Shomrar, gekk á fund Valgerðar Sverrisdóttur
utanríkisráðherra. Stjórnmálamenn, félagar í samtökunum Island-Palestína og aðrir ætluðu að afhenda sendiherranum mótmælabréf. Hún fór hins vegar út um bakdyr ráðuneytisins.
Guðjón frekar en Ferguson
Hinn fimmtán ára Björn Bergmann
Sigurðarson hefur hafnað boði
I Manchester United og sex annarra
' liða sem vildu fá hann til skoðunar.
^ Hann ætlar að reyna að brjótast inn
I í aöallið ÍA.
Kalt en bjart
Norðlæg átt, 5 til 10
metrar á sekúndu. Létt-
skýjað syðra en él fyrir
norðan. Frost á bilinu
3 til 12 stig, kaldast í
innsveitum.
Glæsilegt 16
síðna jólablað
fylgir með
Blaðinu í dag
» síður 44-45
231. tölublaö 2. árgangur
miðvikudagur
15. nóvember 2006
FRJALST, OHAÐ & r 'PIS!
FRETTIR
FRETTIR
Alvöru
litalaserprentari frá HP
JOLABLAÐ
TILBOÐSVERÐ
SIÐUMULA 37 - SIMI 510 6000
EFTIRLÆTIS
Askalind 1. 201 Kópavogur Sími 568 9700 www.habitat.net