blaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 22
38 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006
blaðiö
Upplýsingar um umferðarlagabrot
Tryggingaféiög eiga ekki að fá upplýsingar um umferðarlagabrot
einstaklinga að mati Neytendasamtakanna en slíkar hugmyndir
hafa heyrst í fjölmiðlum að undanförnu. Benda samtökin á að
hér sé um persónuupplýsingar að ræða og telja hæpið að slíkt
myndi að óbreyttu standast lög.
neytendur
neytendur@bladid.net
heimilið
Grjónapúðinn
Grjónapúðinn var hannaður af Piero Gatt, Franco Teodoro og Cesare Paolini
1968. Púðinn var fylltur frauðplastkúlum og lagar sig að hvaða líkamsstöðu
sem er. Púðinn sýnir vel þann afslappaða og frjálslynda lífsstíl sem var á 8.
áratugnum og varð mjög útbreiddur. Hann þótti hins vegar ekki alveg nógu
þægilegur.
heimilid@bladid.net
Bíómiðinn
hækkar í verði
Almennt verð á bíómiða hækkaði
nýlega úr 8oo krónum í 900 krón-
ur. Björn Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Senu, segir að með þessum
hækkunum sé fyrirtækið að bregð-
ast við hækkunum á rekstrarkostn-
aði.
„Þetta er mjög einfalt. Bíómiðinn
hefur ekki hækkað í fimm ár og
launahækkanir á sama tímabili
fyrir almenna starfsmenn í bíóun-
um hafa verið 54 prósent, almenn
launavísitala hefur hækkað um 35
prósent og byggingarvísitala hef-
ur hækkað um 35 prósent. Miðar i
Evrópu hafa hækkað um 40 til 80
prósent á sama tímabili og í Skand-
inavíu um 80 til 90 prósent," segir
Björn.
Ekki tengt Bandaríkjadal
Á sama tíma hefur gengi Banda-
ríkjadals lækkað en flestar myndir
sem sýndar eru í kvikmyndahús-
um hér á landi eru fluttar inn frá
Bandaríkjunum. Ætla mætti að
það myndi vega upp á móti hækk-
ununum. Björn segir aftur á móti
að þessi hækkun sé ekki tengd daln-
um að neinu leyti.
„Það hafa breyst svolítið forsend-
ur varðandi hvað bíómiðinn er doll-
Leiðbeininga-8í
kvörtunarþjónustan
er opin tvo claga
1 viku fyrir
almenning
en alla daga fyrir
félagsmenn.
Ertu félagsmaður?
sími: 5451200 netfang:
ns@ns.ís vefur: www.ns.is
NEYTENDASAMTÖKIN
m r-M
# 4
/' j m
-
aratengdur og við getum sagt að ef
dollari hefði ekki verið hagstæður
undanfarin ár þá hefði hann hækk-
að miklu fyrr.“
Björn segir að kvikmyndahúsin
hafi einnig hækkað aldurstakmörk
fyrir barnamiða sem kostar 550
krónur úr sex ára upp í tíu ára og
því ætti hækkunin síst að koma nið-
ur á barnafjölskyldum.
„Þegar þú tekur þessa týpísku
vísitölufjölskyldu sem ferðaskrif-
stofurnar leika sér svo oft að þá er
þetta í raun og veru engin hækkun
fyrir þann hóp,“ segir Björn.
HPI SAVAGE X SS 4,6, ÖFLUGASTI & STERKASTI
SAVAGE TRUKKURINN TIL ÞESSA!
Nethyl 2,
sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
Marta María, ritstjóri Veggfóðurs
Alltaf að spekúlera
Húsasmiðjan - Byko - Fjarðarkaup - Brimnes - Nesbakki - Skipavik -
Litabúðin ■ SR bygingavörur - Byggt og búið - Litaver - Rými • Núpur -
Áfangar Keflavik - Pottar og prik (Daggir) Akureyri - Takk hreinlæti
Heilsöludreifing: Ræstivörur ehf • Stangarhyl 4 -
110 Reykjavik - Simi 567 4142 - www.raestivorur.is
Marta María Jónas-
dóttir er ritstjóri
Veggfóðurs en þessa
dagana er hún í fæð-
ingarorlofi með ný-
fæddum syni sem verður fjögurra
vikna á föstudaginn.
Marta María segir að hún hafi
aðeins getað nýtt tímann í orlofinu
til að dúlla við heimilið, enda með
mikinn heimilisáhuga. „Ég hefði
nú haldið að ég hefði meiri tíma til
þess en það er merkilegt hvað dag-
arnir liða fljótt við brjóstagjöf og
bleiuskipti. En ég er alltaf að spá eitt-
hvað og spekúlera.”
Þegar Marta er beðin um að gefa
einhver ráð um hvernig hægt er að
hressa upp á heimilið á auðveldan
hátt fyrir jólin er hún fljót til svara.
„Það er alltaf mjög hressandi að
mála eins og einn vegg, það gerir
mikið og kostar ekki mikið og það
er um að gera að velja einhvern fal-
legan lit á vegginn.
Mér finnst að fólk eigi ekki að
vera hrætt við að nota liti og þá er
sniðugt að kynna til sögunnar með
fallegum smáhlutum í hlýjum og
fallegum litum. Einnig mæli ég ein-
dregið með að fólk veggfóðri einn
og einn vegg, það er mikið úrval af
fallegu veggfóðri til í dag.”
Fylgir oftast hjartanu
Marta María segir að hennar per-
sónulegi stíll sé módern en um leið
hlýlegur. „Ég er svolítið klofin, ég er
mjög hrifin af litríkum húsgögnum
og keypti mér meðal annars appels-
ínugulan sófa um daginn. Ég fylgi
oftast hjartanu þegar ég er að velja
inn hluti á heimilið og kaupi frekar
það sem mér finnst fallegt en það
sem er praktískt.
Þegar kemur að því að skreyta fyr-
ir jólin segir Marta að henni finnist
skipta miklu máli að eiga fallegan
aðventukrans. „Ég er mjög fastheld-
in og hef átt sama aðventukransinn
í sjö ár. Ég held mikið upp á fjólubláa
litinn, enda litur aðventunnar, og
kransinn er einmitt fjólublár.”
Annar uppáhaldslitur Mörtu er
bleiki liturinn sem hún segir að passi
alls staðar og hvenær sem er. „Jóla-
tréð í ár verður skreytt með bleiku
skrauti og fjólubláum kúlum. Ég er
aðeins byrjuð að pródúsera það,“ seg-
ir Marta um jólatré þessa árs en fjöl-
skyldan er nýlega flutt í nýja íbúð og
hefur nú pláss fyrir stórt jólatré.
Aðventuljós í gluggann
„Gullið er líka að koma sterkt inn í
ár og ég mæli með að fólk fjárfesti í
gylltu skrauti, það er mjög hátíðlegt.
Annars er auðvelt að gera jólalegt
hjá sér án þess að það kosti of mik-
ið eða sé of flókið. Það er til dæmis
fallegt að vera með fjögur kerti á fal-
legum bakka og smá skrauti og þá er
kominn aðventukrans. Annað sem
ég mæli með er að fólk hugsi vel um
skrautið sitt og pakki því skipulega
þannig að það sé hægt að ganga að
því vísu inni í geymslu og það kem-
ur líka í veg fyrir að maður sé að
kaupa alltaf eitthvað nýtt fyrir hver
jól heldur noti það sem maður á.“
Marta býst við að hún kaupi sér
aðventuljós í gluggann fyrir þessi
jól þar sem hún á ekkert slíkt. Hún
segir að aðventuljósin séu alveg
nauðsynleg þar sem þau vekja upp
ákveðnar minningar frá því að hún
var lítil en henni fannst ljósin alltaf
spennandi og tákn um að jólin væru
á næsta leiti.
„Annars finnst mér að það megi
alls ekki drekkja jólunum í smart-
heitum, það eru hlutir sem eiga sína
sögu og minningar sem vekja upp
jólastemninguna hjá mér.“
'M
Piparkökustafir
Nú liður senn að tíma sem helg-
aður er bakstri og smákökugerð.
Það eru margir sem baka og
skreyta piparkökur og börnunum
finnst kökugerð af því tagi sérstak-
lega skemmtileg. ( Kokku er að
finna skemmtileg piparkökumót
í formi stafa og tölustafa auk ann-
arra hefðbundnari móta. Það getur
verið skemmtilegt að gera pipar-
kökustafi og nota þá til að skreyta
heimilið fyrir jólin. Það er fallegt
að strengja stafina upp á borða
og hengja í glugga eða á hurð og
skrifatil dæmis gleðileg jól með pip-
arkökustöfunum.
Marta María er þessa dag-
ana heima í fæðingarorlofi
Jólatré Mörtu verður skreytt
í uppáhaldslitunum hennar,
fjólubláum og bleikum.
Mynd/Frikki
■má fS