blaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 11

blaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 11
blaðið MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006 11 Ljósmæðranámskeið íslensku friðargæslunnar í Afganistan: Mikill barna- og mæðradauði Vestmannaeyjar: Helgargisting hjá lögreglu Maður var handtekinn í Vest- mannaeyjum þegar hann fannst sofandi ölvunarsvefni í heima- húsi. Verst var að hann átti hrein- lega ekki heima þar. Maðurinn gisti fangageymslu lögreglu það sem eftir lifði af þeirri nótt. Kvöldið eftir var hann handtek- inn aftur og þá fyrir óspektir á almannafæri. Fékk hann þá að dúsa í steininum annan daginn í röð og virðist sem honum hafi líkað hótelið fræga. Gifsplötur brotnuðu: Vörubíll á hliðina Mbl.is Vörubíll fór á hliðina í Lágmúla í Reykjavík á tólfta tímanum í gær. Verið var að hifa gifsplötur upp á þak í byggingu við götuna og gaf stoð undir bílnum sig. Litlu munaði að kranabóman lenti á húsinu. Búið er að rétta vörubílinn við en engin slys urðu á mönnunum sem unnu við flutninginn né öðrum, sam- kvæmt upplýsingum frá lögregl- unni í Reykjavík. Farmurinn féll hins vegar á götuna og brotnuðu gifsplöturnar neðst í bunkanum við fallið. Tjónið er þónokkuð, en slysið varð ekki fjarri verslun Bræðranna Ormsen við Lágmúlann. Eyðing skóga: Gæti minnkað í framtíðinni Mbl.is Alþjóðlegt lið vísinda- manna segir rannsókn sína benda til þess að ákveðinn um- snúningur geti orðið á eyðingu skóglendis jarðar á næstu árum og hún jafnvel stöðvast. „Við sjáum möguleika á því að eyðingu skóga muni ljúka; við ætlum ekki að spá því en teljum það mögulegt,“ segir Pekka Kauppi, einn rannsakenda. Kauppi er prófessor við háskól- ann í Helsinki. Með hinni nýju aðferð kom í ljós að skóglendi hefur aukist undanfarin 15 ár í 22 af þeim 50 löndum heims þar sem skóg- lendi er mest. Skóglendi er um 30 prósent alls landsvæðis jarðar, en um 13 milljónir hektara eyðast á ári hverju. Tveggja vikna ljósmæðra- og yf- irsetukonunámskeiði sem íslenska friðargæslan stóð fyrir í Ghor-hér- aði i Afganistan lauk í síðustu viku. Anna segir að í héraðinu sé mikið af afskekktum þorpum þar sem engar lærðar ljósmæður er að finna, heldur einungis yfirsetukonur í þeim skiln- ingi sem Islendingar þekktu í gamla daga. „Þetta gekk mjög vel og var námskeiðið mun betur sótt en við áttum von á. Fjörutíu konur sóttu námskeiðið og dvöldu þær í bænum Chagcharan i tvær vikur. Við sáum þeim fyrir fæði og borguðum ferðir þeirra," segir Anna Jóhanns- dóttir, forstöðumaður íslensku friðarargæslunnar. „Þarna var fyrst og fremst verið að fræða þær um kyn- og kvensjúk- dóma,“ segir Anna. „Við fræddum þær einnig um ungbarnavernd, Þátttakendur á námskeiðinu Erna Óladóttir og Eva Laufey Stefánsdótt- ir ásamt afgönsku konunum. meðgöngu, næringu þungaðra kvenna og ýmis vandamál sem koma upp við fæðingu. Á svæðinu er mjög mikill barna- og mæðra- dauði.“ Anna segir Gohr-hérað vera fátækasta héraðið í Afganistan, en ágætlega öruggt og lítið um bar- daga. „Ég reikna með að við notum reynsluna af þessu námskeiði til að undirbúa annað. Þegar snjóa leysir og fer að vora förum við að huga að því að halda annað svona nám- skeið ef vilji er fyrir því.“ Samtals eru nú átta friðargæslu- liðar frá íslandi í eftirlits- og upp- byggingarsveitinni í Chagcharan, en konurnar tvær sem sáu um nám- skeiðið snúa aftur til fslands síðar í vikunni. Byssudagar Veiðihornsins Nýtt kortatímabil!

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.