blaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006
blaöiA
UTAN ÚR HEIMI
SUÐUR-AFRÍKA M
Aukin réttindi samkynhneigðra
Fastlega er búist við að þing Suður-Afríku
samþykki þráðlega lög sem veita samkyn-
hneigðum réttindi til þess að ganga í hjóna-
band. Ef af verður verður Suður-Afríka fyrsta
ríki álfunnar til þess að staðfesta slík lög.
ÍSRAEL E
Samstaða um málefni írans
Ehud Olmert, forsætisráðherra Israels, segir að algjör
samstaða sé á milli ísraelskra stjórnvalda og bandarískra
um stefnu gegn stjórninni í íran. Olmert fundaði með Bush
Bandaríkjaforseta á mánudag og voru sammála um að grípa
þurfi til aðgerða láti klerkastjórnin ekki af auðgun úrans.
Aðmíráll vill betri boðleiðir til Kínverja
Bandaríski sjóherinn hefur staðfest fréttir um að littlu hafi
munað að í brýnu slægi á milli flotadeildar sem er staðsett á
Kyrrahafinu og kínversks kafbáts seint i októbermánuði. Fallon,
aðmíráll og yfirmaður Kyrrahafsflotans, segir nauðsynlegt að
efla boðleiðir milli bandaríska og kínverska hersins.
Óveður um landið:
Flutningaskip
lenti í háska
Þyrlur Landhelgisgæslunnar
voru kallaðar út og sendar
til Hafnar í Hornafirði í
miklum mótvindi, til móts
við erlent flutningaskip sem
lenti í hrakningum suðaustur
af landinu aðfaranótt
gærdagsins. Þyrlurnar voru
þar 1 viðbragðsstöðu vegna
flutningaskipsins, sem lenti
í miklum rúmsjó þegar vél
skipsins bilaði. Ölduhæðin
var um níu metra há. Undir
morguninn tókst átta manna
áhöfninni að gera við skipið og
sigldi það fyrir eigin vélarafli
áleiðis til Reyðarfjarðar.
Óveðrið á landinu orsakaði
enn og aftur að samgöngur
röskuðust talsvert.
r
- \
Haustráðstefna FLE - ísland og alþjóðleg skattamál
Félag löggiltra endur-
skoðenda var stofnaö
áriö 1935 og eru félags-
menn 308 talsins.
Tilgangur félagsins er
meöal annars aö stuöla
að kynningu á starfssviði
endurskoðenda og efia
faglega þekkingu þeirra.
Föstudagur 17. nóvember 2006 - Grand Hótel Reykjavík
Ráðstefnustjóri: Guðmundur Snorrason endurskoðandi
Ráðstefnan er opin
8:15 Skráning og afhending fundargagna
8:30 Setning ráöstefnu
► Lárus Finnbogason formaður FLE.
► Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra.
Áhrif EES-samningsins á ísienskan skattarétt
Fjallað verður um hvernig EES reglur hafa áhrif á landsrétt m.a. á
sviði skattamála. Þau sjónarmið sem koma til skoöunar þegar
ákvæði skattalaga eru rannsökuð með tilliti til þess hvort þau sam-
rýmist EES-samningnum. Fjallaö um valda dóma sem varpa Ijósi á
það efni.
► Ingibjörg Þorsteinsdóttir lektor vió lagadeíld Háskólans á Bifröst.
Þróun í Evrópumálum
Fjallað verður um evrópurétt, þróun í evrópurétti og áhrif Evrópudóm-
stólsins á íslenskan skattarétt. Hvað er að gerast hjá Evrópusam-
bandinu á sviði skattaréttar?
► Eva Margrét Ævarsdóttir lögmaöur Lex.
10:20 Kaffihlé
10:40 Anti-abuse legislation and lawful use of the singlo market
The presentation deals with the right a person has to make use of
the single market within the EU/EEÁ. It will concern lawful use of the
freedoms protected by the EC Treaty and the limitations that EC law
imposes on the structure of domestic anti-abuse legislations.
► Stefan Magnusson, Senior Associate, skattasvið KPMG á íslandi
Tvísköttunarsamningur viö Bandaríkin
Fjallað veröur um nýjan tvísköttunarsamning á milli íslarids og
Bandaríkjanna, holstu breytingar og möguleg áhrif á Islenskt skatta-
umhverfi fyrir erlenda fjárfesta.
► Vala Valtýsdóttir lógmaóur Taxis.
12:00 Hádegisverður - Setriö og Hvammur
13:00 island starfsstöó fyrir alþjóðleg félög
Fjallað verður um starf og tillögur nefndar sem nýlega var skipuð
meö það hlutverk aö koma meö tillögur að því aö gera ísland að
aðlaðandi starfsstöö fyrir alþjóöleg félög.
► Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri í forsætisráöuneyti.
Félag löggiltra endurskoöenda
Suöurlandsbraut 6
108 Reykjavfk
Alþjóðleg kynning á Islandi fyrir fjármálatongda starfsomi
Fjallað verður um samkeppnishaefni íslands með skírskotun til
skattalegrar samkeppnishæfni. Greint veróur frá alþjóðlegri kynn-
ingarherferö Fjárfestingarstofu og nokkurra íslenskra fyrirtækja á
samkeppnishæfni islands í skattalegu tilliti fyrir alþjóöleg fyrirtæki
og eignarhaldsfélög.
► Þóröur H. Hilmarsson framkvæmdastjóri Fjárfestingastofu.
simi 568 8118
fax 568 8139
fle@fle.is
www.fle.is
Skattar og lífskjör almcnnings á islandi
Fjailaö veröur um þróun á skattbyrði almennings og áhrif skatta-
stefnunnar sl. áratug á kaupmáttarþróun og tekjuskiptingu á íslandi,
meðal annars meö samanburði við ónnur vestræn ríki.
► Stefán Ólafsson prófessor vió Háskóla íslands.
14:30 Ráöstefnuslit
Ráöstefnugjald 15.500 kr.
Þátttökutitkynning berist Félagi löggiltra endurskoöenda fyrir 15. nóvember.
Rannsókn í gangi Lögreglan erkomin á spor-
ið íþvíaö rekja hinar hættulegu e-töflur sem
leiddu til dauða ungrar stúlku nýverið. Enginn
hefur verið handtekin en myndin er úr safni.
L0GREGLAN
Voveiflegur dauðdagi vegna e-pillu:
Lögreglan er
komin á sporið
■ Beðið eftir krufningu ■ Erfitt að rekja efnin
■ Lögreglan varar sérstaklega við e-töflum
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Það er nokkuð ljóst að dánarorsökin
er eitrun. Við bíðum eftir niður-
stöðu réttarkrufningar til að sjá ná-
kvæmlega hvaða efni leiddi til dauða
stúlkunnar,“ segir Stefán Örn Guð-
jónsson rannsóknarlögreglumaður.
Aðfaranótt laugardagsins fjórða nóv-
ember vaknaði ungur maður upp á
hótelherbergi í miðbænum og fann
þar kærustu sína látna við hlið sér.
Hún lést af völdum eitrunar eftir að
hafa tekið e-pillu, en honum varð
ekki meint af samskonar pillu. Nið-
urstöður krufningarinnar eru nauð-
synlegar fyrir framvindu málsins,
því þá kemur í ljós hvort einhverjir
samverkandi þættir hafi haft áhrif
á að hún lést.
Rannsókn málsins skiptist í tvo
hluta, annars vegar hvaða banvænu
efni er um að ræða og hins vegar
að rekja þau til seljenda. Fíkniefna-
deildin er komin á sporið. „Hvað
hana varðar er um slys að ræða og
ekki grunur um annað. Hins vegar
þarf að finna þá sem eru að selja
svona efni,“ segir Stefán Örn. „Við
vitum ekki enn hvort önnur mál
þessa sömu helgi tengist sömu að-
ilum en það er til rannsóknar.“
Vinna úr vísbendingum
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni-
efnadeildarinnar, segir málið að
mestu rannsakað hjá ofbeldisbrota-
deild lögreglunnar. Fíkniefnda-
deildin fylgist þó grannt með fram-
gangi mála. „Við lögðum hald á
skammt af e-töflum skömmu eftir
þennan atburð og erum að skoða
þetta í samhengi. Við erum að vinna
úr vísbendingum og of snemmt að
fullyrða nokkuð," segir Ásgeir. „Það
getur verið mjög erfitt að rekja þessi
efni á fíkniefnamarkaðnum. Við
útilokum að sjálfsögðu ekki neitt og
gefumst aldrei upp.“
Rannsóknin
erifullum
gangi
HöröurJóhannesson,
yfirlögregluþjónn
Við litum þetta
mjög alvarlegum
augum
Ásgeir Karlsson,
yfirmaður
fíkniefnadeildarinnar
Unnustinn veiktist ekki
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni í Reykjavík,
segir það verða skoðað hvort önnur
tilvik þessa helgi tengist sama sölu-
aðila og sömu efnum, en tveir ung-
lingspiltar voru fluttir á sjúkrahús.
Hann segir rannsókn málsins í
fullum gangi en getur ekki staðfest
hvernig henni hafi miðað. „í fyrstu
liggur fyrir að komast að því hvað
leiddi til dauða viðkomandi með
þessum voveiflega hætti,“ segir
Hörður. „Unnusti hennar virðist
ekki hafa veikst af töflunum sem
hann tók en þær geta líka hafa
komið frá öðrum stað.“
Engin trygging
Aðspurður ítrekar Ásgeir hætt-
una sem af e-pillunum stafar. Hann
segir fólk ekki mega gleyma því að
það eru glæpamenn úti í heimi sem
búa þær til. „Þegar keyptar eru e-
töflur er nákvæmlega engin trygg-
ing fyrir því hvaða efni eru í þeim.
Blandan getur verið ákaflega mis-
jöfn og því er þetta stórhættulegt
efni,“ segir Ásgeir. „Við lítum þetta
mjög alvarlegum augum og biðjum
fóík að huga vel að því sem það er
að kaupa.“