blaðið - 15.11.2006, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006
blaðið
UTAN ÚR HEIMI
Hundrað manns rænt
Vígamenn í hermannabúningum réðust inn í rannsókn-
arstöð, sem heyrir undir menntamálaráðuneyti (raks, í
miðborg Bagdad og rændu hundruðum manna í gær-
morgun. Háskóla- og vísindamenn hafa verið algeng
fórnarlömb mannræningja í landinu.
Guiliani í framboð
Að sögn starfsmanna Repúblikanaflokksins
hefur Rudolph Giuliani skipað könnunarnefnd
í tengslum við hugsanlegt forsetaframboð árið
2008. Skipun slíkrar nefndar er sögð óbrigðult
merki um að menn hyggi á framboð.
JAPAN
Stjórnarskrá heimilar kjarnavopnaeign
(svari stjórnvalda við fyrirspurn frá þingmanni í japanska þinginu kemur
fram að stjórnarskrá landsins heimilar kjarnorkuvopnaeign svo lengi sem
vopnabúrið miðast eingöngu við varnarþörf. Einnig kemur fram í svarinu að
stjórnvöld hyggist ekki koma sér upþ slíkum vopnum. Kjarnorkumál eru í
brennidepli í Japan í kjölfar kjarnorkutilrauna Norður-Kóreumanna.
Valgeröur fundaöi meö ísraelska sendiherranum:
Mótmælir árás í Beit Hanoun
„Á þessum fundi komum við á
framfæri formlegum mótmælum
íslenskra stjórnvalda. Það hefði
ekki gerst ef við hefðum ekki verið
í stjórnmálasambandi við þessa
þjóð,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir
utanríkisráðherra að loknum fundi
hennar og Miryam Shomrar, sendi-
herra ísraels á íslandi. Valgerður
afhenti sendiherranum bréf til ísra-
elska utanríkisráðherrans þar sem
árás ísraelshers í Beit Hanoun í síð-
ustu viku var harðlega mótmælt. f
árásinni létust átján manns, flest
konur og börn.
Valgerður sagði íslendinga við-
urkenna rétt allra þjóða til að verja
sig, en ekki væri hægt að fallast á
skýringar stjórnvalda í ísrael að
um tæknileg mistök hafi verið að
ræða. Hún vildi ekki útiloka neitt
varðandi það að íslendingar leggi
sitt af mörkum við að koma á friði
fyrir botni Miðjarðarhafs, til að
mynda með friðarviðræðum milli
deiluaðila hér á landi telji þeir það
geta komið að gagni. Um hundrað
manns mótmæítu við komu sendi-
herrans í utanríkisráðuneytið þegar
hún mætti til fundar við utanríkis-
ráðherra i gærmorgun. Sveinn
Rúnar Hauksson, formaður félags-
ins Ísland-Palestína, segir að ísra-
elski sendiherrann hafi notað bak-
dyraleiðina til að komast aftur út úr
ráðuneytinu. „Einhverjum þótti það
táknrænt fyrir ísraelsstjórn, sem
horfist ekki í augu við afleiðingar og
mótmæli vegna fjöldamorðanna."
Iraelskir hermenn í skjóli
Átök blossuðu upp í flót-
tamannabúðunum Al Ein
í gær. ísraelskir hermenn
leituðu skjóls við bíl sinn.
Mikael Tal Grétarsson er ættaður frá ísrael:
Blöskrar
umræðan
■ Magnús Þór og Steingrímur kynni sér aðstæður
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
,Mér blöskrar umræðan á Alþingi
og í fjölmiðlum, hvað hún er ein-
hliða gegn ísrael," segir Mikael Tal
Grétarsson sölustjóri. Mikael ólst
upp að hluta til í ísrael og á ísra-
elska móður.
„Að formaður eins stærsta stjórn-
málaflokks á fslandi skuli leggja
tii að slíta stjórnmálasambandi við
f srael finnst mér svo alvarlegt að það
hálfa væri nóg. Með þessu hiýtur
ákveðnum botni að hafa verið náð
í umræðunni. Það sem er að gerast
nú finnst mér að minnstum hluta
ísrael að kenna. Þetta eru frekar
afleiðingar af stefnu stjórnvalda,
til dæmis í Palestínu og Líbanon
fyrir nokkrum mánuðum. ísraelar
neyðast til að bregðast við henni
og því miður stundum með svona
hörmulegum afleiðingum eins og
við sáum í síðustu viku.“
Mikael segist vel skilja að fólki
blöskri að sjá myndir af látnum
börnum og sprengjum. „Mér
finnst það einstaklega óréttlátt að
taka svona einhliða afstöðu gegn
ísrael vegna slyss sem verður í kjöl-
far einhliða hernaðar hryðjuverka-
manna í Palestínu. Umræðan á Al-
þingi nú í vikunni er ekki til þess
fallin að bæta ástandið í Mið-Áust-
urlöndum. Að slíta stjórnmálasam-
bandi við ísrael myndi einungis
bæta gráu ofan á svart og gera
ástandið enn verra.“
Kynni sér aðstæður
Að sögn Mikaels þurfa stjórn-
málamenn að kynna sér málin
betur og líta á málin heildstæðar.
Hann segist muna eftir því að Hall-
dór Ásgrímsson, fyrrverandi for-
sætisráðherra, hafi oft verið harð-
orður í garð ísraelsmanna.
„Svo fór hann á svæðið og kynnti
sér málstað beggja aðila og mér
fannst skoðanir og málflutningur
hans breytast verulega eftir þá
ferð. Hann sýndi málstað fsraels
og þessum málum mun meiri
Aö slíta stjórn-
málasambandi
1 myndi bæta gráu
! ofan á svart
4 - ~ í Mikael Tal Grétarsson
sölustjóri
skilning. Ég held að það myndi
hjálpa stjórnmálamönnum, hugs-
anlega Magnúsi Þór Hafsteinssyni
og Steingrími J. Sigfússyni, til að
skilja þessi mál betur.“
Mikael bendir á að ísraelar hafi
kosið nýjan klofningsflokk, Kadima,
sem hafði það eitt að markmiði að
semja frið og klára þessi mál. „Ein-
ungis nokkrum vikum síðar kýs
palestínska þjóðin yfir sig hryðju-
verkasamtökin Hamas til að leiða
ríkisstjórn sína. Hamas eru samtök
sem neita að viðurkenna Ísraelsríki
og hafa það að yfirlýstu markmiði
að tortíma ísrael og drepa gyðinga.
Það er með hreinum ólíkindum
að verið sé að gagnrýna Ísraelsríki
með þessum hætti."
Stór hluti óbyggilegur
fsraelsher hefur sætt harðri
gagnrýni undanfarið eftir árás
sína sem kostaði átján óbreytta
borgara lífið í Beit Hanun á Gaza-
svæðinu. Mikael segir að orsök
þess að fréttir berast af mannfalli
óbreyttra borgara sé ekki sú að
ísraelskir stjórnmálamenn hvetji
herinn til að drepa óbreytta borg-
ara. „Markmiðið er að ná tökum
á hryðjuverkavandanum og reyna
að koma í veg fyrir eldflaugaárásir
inn í ísrael, en stór hluti ríkisins
er óbyggilegur vegna þeirra. Við
erum að sjá leikskólabörn í neð-
anjarðarbyrgjum vegna hættu á
eldflaugaárásum."
Hann segir fsraelsríki vera eina
lýðræðisrikið á svæðinu og almenn-
ingur geri þá kröfu að stjórnvöld
taki á þessum vandamálum þar sem
ekki er hægt að fara út fyrir hússins
dyr vegna eldflaugahættu. „Það
verður því að ráðast á hryðjuverka-
mennina og reyna að stöðva þá.“