blaðið - 15.11.2006, Síða 18

blaðið - 15.11.2006, Síða 18
34 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006 HVAÐ FINNST ÞÉR? Eru konur ekki lika menn? „Jú, konur eru líka knattspyrnumenn." folk@bladid.net blaöið HEYRST HEFUR... Það vakti töluverða athygli á dögunum þegar dr. Sigrún Stefáns- dóttir, dagskrár- stjóri Rásar 2, vék Hirti Howser úr starfi við helgarút- gáfu Rásar2 fyrir það sem talið var dónaleg ummæli hans í garð fjöllistahópsins GusGus. Hjörtur hafði þá stoppað stutt við í helgarútgáf- unni í komp- aníi við hinn geðþekka Magnús Ein- arsson. Nú hefur skarð Hjartar í helgarútgáf- unni verið fyllt en sæti hans við hlið Magnúsar tók Þórhildur Ólafsdóttir sem áður var með innslög á NFS. Þórhildur er systir fréttakon- unnar Brynhildar Ólafsdóttur sem landsmenn þekkja vel úr fréttum Stöðvar 2. Hjörtur lætur hinsvegar engan bilbug á sér finna og skrifar keikur veit- ingahúsarýni í hið nýja tímarit Reynis Traustasonar, fsafold. Pólitiskt rétthugsandi einstak- lingar hrukku eilítið í kút þegar útvarpskonan marg- , ,, lóttirrýndi í jólaplötu- flóðið á Rás í um helgina og sagði það vera svo umfangs- mikið að það væri varla fyrir hvítan mann að fara í gegnum það. Varla hefur Lisa verið að meina þetta bókstaflega enda er orða- tiltækið vel þekkt úr íslenskri tungu þó í ljósi umræðu síðustu daga kunni margir að reka upp stór augu þegar það er brúkað. Kannski mætti stinga þeirri hugmynd að starfsmanna- leigum þessa lands að bjóða upp á vinnukrafta til að annast plötu- og bókagagnrýni á sanngjörnu verði enda kveinka margir rýnar þessa lands sér undan álaginu þessa dagana. Með sverðið á lofti Gúmmívinnustofan SP dekk COOPER POIAR VETRARDEKK JEPPLINGADEKK POLAR RAFGEYMAR GÚMM Skipholti 35 105 Sími: 553 105 www.gummivinnustoTan.is Opið: Mán - fös 8-18 • Lau 9-15 Þetta er nýr ilmur. Hann er kallaður„Uppgjöf". „Ég fór á fyrstu æfinguna mína árið 1992 og hafði þá aldrei heyrt um skylmingar áður. Eldri systir mín stakk upp á því við mig og tvíbura- systur mína að við færum öll. Þær entust í viku en ég hef verið í þessu síðan,“ segir Ragnar Ingi Sigurðsson sem þjálfar skylmingar hjá Skylm- ingafélagi Reykjavíkur. Ragnar segir ýmsar ástæður vera fyrir því að hann hafi brúkað sverðið svona lengi. íþróttin sjálf sé mjög skemmti- leg, félagsskapurinn góður og síðast en ekki síst fái hann tækifæri til þess að ferðast út um allan heim í keppn- isleiðangra. „ Að jafnaði fer ég um 7-8 sinnum til útlanda á ári til að keppa. Nú síðast var ég á Ítalíu en ég hef meðal annars farið til Suður-Amer- íku, Túnis og Tyrklands. Þetta eru oft mjög skemmtilegar ferðir og gott að fá tækifæri til þess að keppa við aðra andstæðinga en þá sem maður þekkir hérna heima.“ íþrótt fyrir alla Skylmingalistin er óneitanlega tíguleg íþrótt sem sveipuð er ævin- týralegum blæ en í grunninn bygg- ist hún á þvi að reyna að koma höggi á andstæðinginn út frá ákveðnum árásarreglum og tækni sem oftar en ekki er nokkuð flókin. Ragnar Ingi segir skylmingarnar njóta töluverðrar hylli á Islandi. „Við erum með keppendur allt frá sjö ára aldri og upp úr. Skylming- arnar henta ekki síður fyrir börn en fullorðna og það er síaukin eft- irspurn í yngri aldurshópunum eftir því að komast á námskeið. Við erum með þrjár stærðir af sverðum og börnin nota sverð sem þau ráða vel við. Við gætum þess alltaf að vera vel varin og notum alltaf grímu, hlífðarjakka og annan öryggisbúnað," útskýrir Ragnar Ingi og bætir við að tíðni meiðsla hjá skylmingafólki sé ákaf- lega lág. Hann segir íþróttina henta öllum og aldur, þyngd eða stærð sé engin fyrirstaða. „Þú byggir bara upp þá tækni sem hentar þínum líkama. Þeir sem eru þungir á sér þurfa kannski að beita meiri tækni en annars er best að hver og einn finni bara sinn takt. Skylmingar HERMAN © Jlm Unger/dlst. by Unlted Media, 2001 henta líka mjög vel eldra fólki til að viðhalda samhæfingu líkamans.“ Heillandi saga Rætur skylminganna eru heill- andi og sagan sem að baki liggur margslungin. Ragnar segist hafa lesið sér töluvert til um þann þátt. „Á miðöldum skylmdust riddarar á hestum og þaðan er sprottin sú regla að ekki megi veita högg fyrir neðan beltisstað. Ef það hefði verið gert þá hefði hesturinn getað særst.“ Ragnar Ingi segir skylmingar vera frábæra líkamsrækt. „Skylm- ingar örva samhæfingu alls líkam- ans og skilningarvitanna. Þetta getur auðvitað orðið svolítið ein- hæft en við stundum ýmsar aðrar æfingar með, til dæmis hlaup og þrekæfingar til að jafna þetta út.“ hilma@bladid.net eftir Jim Unger 12-31 Snerpa og tækm Að morgu eraa hyggja þegar lögð er stund á skylm- ingar en Ragnar Ingi segir iþróttina geta hentað öllum. Blaöiö/Frikki Á förnum vegi Er grtt að búa á íslandi? Daði Sigurðsson, nemi Já, ég myndi segja að það væri mög fínt. Melkorka Ragnhildardóttir, nemi Já, það er mjög gott að búa á (slandi. Hildur Hlöðversdóttir, nemi Já, það er gott að búa á íslandi. Ásdís Óskarsdóttir, kennari Já, það er það. Landið er fallegt, gott loftslag og hér er fjölskyldan mín. Helena Pedersen, fagstjóri Það er æðislegt að búa íslandi, fallegt land og frábært fólk sem býr hérna.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.