blaðið


blaðið - 28.02.2007, Qupperneq 1

blaðið - 28.02.2007, Qupperneq 1
41. tölublað 3. árgangur ■ KOLLA OG KULTURINN Ólafur Kvaran lætur nú af starfi forstööu- manns Listasafns íslands, samkvæmt þeirri reglu að forstöðumaður megi ekki sitja lengur en i tíu ár | síða ie ■ NEYTENDUR Emil B. Karlsson telur engan vafa á því að útlendar lágvöruverðsverslanir verði fljótar að koma sér fyrir á markaðnum sjái þær sér hag í því | síða2s miðvikudagur 28. febrúar 2007 Rúnar Júlíusson kynntist Maríu Baldursdóttir, söngkonu ogfegurðar- drottningu, fyrir 43 árum oghefur elskað hana heittsíðan. I bóksinni sem kom útfyrir nokkrum árum lofaði hann því að giftast henni þegar hútn yrði sextug. María verður sextug í dag. Sjá síðu 14 Flensan hefur víða áhrif: Gangar fullir af sjúklingum ■ Eins og stríðsástand ■ Vísað til Hafnarfjarðar ■ Skólar þurft að fella niður kennslu Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net „Við höfum þurft að biðja þá í Hafnarfirði og á Akra- nesi að taka við sjúklingum frá okkur af bráðamót- tökunni vegna þess að það eru allir gangar fullir hérna uppi. Þetta var bara á tímabili eins og stríðs- ástand,“ segir Ófeigur Þorgeirsson, yfirlæknir á bráðamóttöku LSH í Fossvogi. Flensan hefur einnig herjað á skóla landsins og hefur víða þurft að fella niður kennslu. „Það er búið að vera virkilega þungt ástand á spít- alanum í tæpa tvo mánuði," segir Ófeigur. „Við viljum rekja þetta að stórum hluta til flensupestar.“ Samkvæmt Ofeigi voru um fjörutíu til fimmtíu þúsund manns sem létu bólusetja sig gegn inflú- ensunni. „Flensan hefur farið illa í eldra fólkið. Það hefur komið langverst út úr þessu.“ Á bráðamóttöku barna við Hringbraut hefur einnig verið mikið álag undanfarnar vikur, sam- kvæmt Ingileif Sigfúsdóttur, deildarstjóra bráða- móttökunnar. „Inflúensan er í hámarki og er álagið í samræmi við það. Mér sýnist enn sem komið er ekki vera að draga úr þessu." I Borgaskóla í Reykjavík voru átján af fimmtíu kennurum frá kennslu vegna veikinda í síðustu viku, samkvæmt Svövu Margréti Ingvarsdóttur aðstoðarskólastjóra. „Stundum er enginn annar kostur en að fella niður kennslu. Við höldum úti kennslu í fyrsta til fjórða bekk en verðum að fella niður kennslu á efstu stig- unum.“ Svava segir að mæting sé betri meðal kenn- ara og nemenda í þessari viku. „Það var vetrarfrí hjá okkur í lok síðustu viku. Það mætti segja að við höfum bara farið í sóttkví." Guðmundur Ásmundsson, skólastjóri Kópavogs- skóla, segir einnig að ástandið hafi verið slæmt hjá þeim í síðustu viku. „Það er allt að hressast hér.“ Kjólar og meiri kjólar Jóna Elísabet Ottesen er versl- unarstjóri í Gyllta kettinum. Kjólar eru í miklu uppáhaldi hjá henni enda ógrynni af þeim að finna í fataskápnum hennar. VEÐUR » síða 2 Léttskýjaö Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og léttskýjað um nær allt land. Frostlaust að deginum við suðurströndina en annars allt að 10 stig frost, kaldast í innsveitum. VIÐTAL Átta síðna sérblaö um fermingar fylgir meö Blaöinu í dag » síður 17-24 KR0NAN 100 +170 mn milljónir pónus- Inningur •• 5 W'Ujónir ■ Vinningshafi óskast Víkingalottó óskar eftir vinningshafa að tvöföldum potti upp á 100 milljónir. Viðkomandi verður að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Kaupa miða. Einnig er i boði ofurpottur upp á 170 milljónir og bónuspottur upp á 5 milljónir. L«TT« Alltai á miðvlkudögum! lotto.is Hillukerfi Vinnubord Fataskápar Stálskápar HJólaborö Plastvðriir Habco ál rennihurdír og hurdaopnarar AH&r rermi Imrösr nwc f) tlf'" ut Hamarshöföa 1 - S: 511 1122

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.