blaðið - 28.02.2007, Page 6

blaðið - 28.02.2007, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 blaðið Spilavíti í Flensborg I þessari viku fara fram þemadagar í Flensborgar- skólanum í Hafnarfirði. Þema nemenda í ár er spila- víti og hefur skólinn verið skreyttur í samræmi við það. Meðal annars hefur verið komið upp sérútbúnu pókerherbergi og kapellu í anda Las Vegas. LANDBUNAÐUR Utflutningsskylda afnumin I frumvarpi sem landbúnaðarráðherra kynnti fyrir ríkis- stjórninni í gær er gert ráð fyrir að útflutningsskylda sauð- fjárbænda á lambakjöti falli brott í áföngum til ársins 2009. Um er að ræða frumvarp sem gerir ráð fyrir breytingum á búvörulögum vegna nýs sauðfjársamnings. HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ Þrettán umferðaróhöpp Þrettán umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu á mánudag og er það með allra minnsta móti. Bíll hafnaði á Ijósastaur i Lönguhlíð um morguninn og var ökumaðurinn, karl- maður á fimmtudagsaldri, fluttur á slysadeild. Persónuvernd um sjúkraskrár: Landspítalinn takmarki aðgang Allur aðgangur að rafrænum sjúkraskrám innan Landspítala- háskólasjúkrahúss skal vera háður því að viðkomandi starfsmaður þurfi hann nauðsynlega starfs síns vegna, samkvæmt ákvörðun Persónuverndar. Sérstök eftirlits- nefnd á að hafa virkt eftirlit með öllum sem nota skrárnar. Sjúkra- húsið fær frest til í. maí til að koma á öryggisráðstöfunum sem Persónuvernd kveður á um. Samkvæmt ákvörðun Persónu- nefndar eiga starfsmenn að fá per- sónubundið aðgangsorð sem end- ist í 4 mánuði. Skal starfsmaður ávallt tilgreina tilganginn þegar hann opnar sjúkraskrá, svo sem með því að haka við tiltekinn reit. Eftirlit með notendum sjúkraskráa Landspítali- háskólasjúkrahqs. Gera skal greinarmun á upplýs- ingum í sjúkraskrám eftir eðli þeirra og hafa upplýsingar sem þurfa sértæka vernd í sérstaklega vörðum hólfum. Þær skulu aðeins aðgengilegar starfsfólki á þeirri deild þar sem upplýsingar í um- ræddum hólfum eru skráðar. Innflytjendur í próf Svara þarf 28 af fjörutíu spurningum rétt til að öðlast danskan rikisborgararétt. Myndit/NordicPhotos-AFP Innflytjendur í Danmörku: í próf fyrir passa Innflytjendur í Danmörku munu þurfa að standast sérstakt próf til að öðlast danskan ríkis- borgararétt frá og með maí næst- komandi. Próftakendur þurfa að svara í það minnsta 28 spurn- ingum rétt af fjörutíu til að eiga möguleika á ríkisborgararétti. Spurt verður um ýmisleg samfé- lagsleg málefni, danska sögu og menningu og gætu próftakendur átt von á spurningum um fjölda þingmanna á Folketinget, nafn danska þjóðsöngsins og hvaða rétt- indi megi finna í stjórnarskránni. Ráðuneyti innflytjendamála hefur umsjón með prófinu og kostar próftökurétturinn sex hundruð danskar krónur í hvert skipti. Próftakendur munu þurfa að svara fimm spurningum um atburði líðandi stundar og 35 spurn- ingum af um tvö hundruð spurn- ingum sem fulltrúar ráðuneytisins hafa þegar samið. Tilraunaútgáfa af prófinu liggur þegar fyrir og verður prófuð á næstu vikum áður en end- anleg útgáfa verður lögð fram. Ég nota Sterimar, það hjálpar kvef ofnæmi - eyrnabólga - ennis og kinnhoiusýking STÉRIMAR' Physiological Sea Water Microspray Fæst í apótekum Sprengjutilræði við herstöð Bandaríkjahers í Afganistan: Cheney slapp ■ 23 létust og tuttugu særöust ■ Fundaöi meö forseta Afganistans Eftir Atla isleifsson atlii@bladid.net Dick Cheney, varaforseti Bandaríkj- anna, var skotmarkið í sjálfsvígs- árás talibana við herstöð Banda- ríkjahers í Bagram í Afganistan í gær. Þetta sagði Qari Yousef Ahm- adi, talsmaður talibana í landinu, i símaviðtali við fréttamenn í kjölfar árásarinnar. „Við vissum að Cheney yrði staddur í herstöðinni á þessum tíma. Árásarmaðurinn var að reyna að ná til hans.“ Talið er að um 23 hafi látist í sprengingunni og rúm- lega tuttugu særst. Cheney slapp ómeiddur úr árásinni, en hann mætti í óvænta heimsókn til Afganistans á mánudaginn. Að sögn talsmanns Bandaríkjahers var Cheney í öruggu skjóli inni í herstöð- inni þegar sprengjan sprakk og aldrei í hættu. I samtali við fréttamenn sagð- ist Cheney hafa heyrt mikinn hvell og í kjölfarið verið fluttur í neðanjarðar- byrgi. „Ég tel að talibanar séu að reyna að finna leiðir til að grafa undan ríkis- stjórn landsins og ég reikna með að sjálfsvígsárás á Bagram-herstöðina sé ein leið til að gera það. Slíkar árásir ættu hins vegar ekki að hafa áhrif á stefnu okkar.“ Flestir hinna látnu voru afganskir verkamenn, en bandarískur og suð- urkóreskur hermaður féllu einnig í árásinni. Hershöfðinginn James Bonner segir að það hafi ekki verið nokkur leið fyrir árásarmanninn að komast inn á herstöðina. „Örygg- isatriðin voru öll í lagi og árásarmað- urinn fékk aldrei neinn aðgang að herstöðinni. Þegar hann gerði sér grein fyrir því að hann kæmist ekki inn i stöðina beindi hann athygl- inni að almennum borgurum fyrir utan stöðina.“ Sprengjan sprakk á milli ytra öryggishliðsins og innra hliðs þar sem bandarískir hermenn sinna öryggisgæslu. Cheney fékk sér morgunmat með bandariskum hermönnunum um einum og hálfum tíma eftir árásina og hélt svo til viðræðna við Hamid Karzai, forseta Afganistans, í höfuð- borginni Kabúl. Arásir við Bagram- herstöðina hafa verið mjög fátíðar en hún er ein sú best varða í heims- hlutanum. Cheney kom til Afgan- istans á mánudaginn eftir óvænta heimsókn sína til Pakistans þar sem hann hrósaði Pervez Musharraf, forseta Pakistans, fyrir þátt Pakist- ana í stríðinu gegn hryðjuverkum. Varaforsetinn hvatti þó pakistönsk stjórnvöld til að taka enn harðar á þeim talibönum sem hafa hreiðrað um sig við afgönsku landamærin. Árásum talibana og annarra upp- reisnarmanna hefur farið fjölgandi í Afganistan að undanförnu. Árið 2005 voru taldar 21 sjálfsvígsárás í landinu, en þær voru 139 á síðasta ári. Hershöfðingjaróttastað árásum talibana muni fjölga enn frekar með vorinu, þegar snjóa leysir. Rúmlega fimm þúsund banda- rískir hermenn dvelja í Bagram- herstöðinni auk fjögur þúsund hermanna og verktaka af öðrum þjóðernum. Bandarískir hermenn eru nú um 27 þúsund talsins I Afg- anistan og hafa ekki verið fleiri frá innrásinni árið 2001. Samtök gegn spilafíkn: Gegn veðmálum á Netinu „Hjálparsíminn stoppar ekki hjá okkur og fólk er því miður enn að taka líf sitt vegna þessa alvarlega vandamáls; spilafíknar. Það er stað- reynd sem við verðum að horfast í augu við,“ segir Júlíus Þór Júlíusson, formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn, SÁS. Fjöldi fólks glímir við spilafíkn og helsta baráttumál SÁS er að koma í veg fyrir að hægt sé að taka þátt á veðmálasíðum á Netinu hér á landi. Júlia Olsen, ráðgjafi SÁS, segir aukið álag vera á hjálparlínu sam- takanna. Hún segir umræðu um spilafíkn hafa hjálpað fólki til þess að leita sér hjálpar. „Baráttan heldur áfram og ástandið er mjög slæmt. Fólk er að hringja inn til okkar sem komið er á síðasta snúning andlega,“ segir Júlía. Samtökin vinna nú að heildarmeð- ferðaráætlun gegn spilafíkn og segir Júlíus Þór þörfina á því vera brýna. ,Ég fletti reglulega yfir dánarfregnir í blöðunum og sé þar fólk sem hefur verið að glíma við þennan sjúkdóm. Þá hugsar maður yfirleitt það versta," segir Júlíus Þór.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.