blaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 9
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 9
Starfsmenn Alcoa:
Velferð og
öryggi tryggt
„Alcoa Fjarðaál vill vera fyrir-
myndarfyrirtæki, hvort sem það
snertir framleiðslu, umhverfi,
samfélag eða starfsfólk. Við
leggjum kapp á að gera vel á
öllum sviðum. Samningurinn
er liður í að uppfylla þau gildi
sem Alcoa starfar eft ir,” segir
Steinþór Þórðarson, framkvæmda-
stjóri mannauðsmála hjá Alcoa
Fjarðaáli. Fyrirtækið gerði nýverið
samning við ráðgjafarfyrirtækið
InPro sem tryggir starfsmönn-
um Alcoa og fjölskyldum þeirra
víðtæka velferðarþjónustu. Samn-
ingnum er ætlað að stuðla að
bættum lífsgæðum starfsmanna.
Öryggismálasafn:
Skjölin flokkuð
úti á landi
Þjóðskjalavörður hefur að
beiðni Þorgerðar Katrínar Gunn-
arsdóttur menntamálaráðherra
athugað hvort
hægt sé að
flokka skjöl,
i fyrst og fremst
I úr utanríkis-
ráðuneytinu
og hjá Pósti
og síma, úti á
landi. Nið-
urstaðan er
sú að verkið sé hægt að vinna á
héraðsskjalasöfnum ísafjarðar og
Húsavíkur. Menntamálaráðherra
hefur mælt fyrir frumvarpi þess
efnis að innan Þjóðskjalasafns
Islands verði stofnað sérstakt safn,
öryggismálasafn, þar sem gögn er
varða öryggismál landsins á tím-
um kalda stríðsins yrðu varðveitt.
„Þetta eru ný störf sem hægt
er að vinna í rauninni hvar
sem er. Við erum ekki að taka
eitthvað sem er fyrir hér á höfuð-
borgarsvæðinu, heldur er þetta
hrein viðbót. Þetta er gríðarlega
umfangsmikið verkefni. Bara
í utanríkisráðuneytinu eru ,
hillumetrarnir af skjölunum
8oo til 900 metrar, að ég held,“
greinir Þorgerður Katrín frá.
Hún segir skjalafræðinga
telja að verkið taki fjögur ár.
Sandgerði:
Aukið öryggi
eldri borgara
Sandgerðisbær býður eldri
borgurum og öryrkjum styrk til
að fá sér öryggishnapp. Hnappur-
inn er einfalt og fyrirferðarlítið
öryggistæki sem borið er á úlnlið
eða um háls. Verði óhapp, slys eða
veikindi er þrýst á hnappinn og
berast þá samstundis boð til Neyð-
arlínunnar 112 og beint samband
opnast við sérþjálfað starfsfólk.
Styrkurinn getur numið meira
en helmingi af þeim kostnaði
sem fellur á hvern einstakling.
Átak hjá sýslumanninum í Reykjavík:
Fólk handtekið hvar
Einstaklingar sem hafa hunsað
boðanir sýslumanns vegna fjár-
náms geta átt von á því að verða
handteknir hvar og hvenær sem er
næstu daga. Hundrað og tuttugu
nöfn eru á fyrsta listanum sem lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu fékk
afhentan en átakið hófst í fyrradag
og voru þá tveir menn handteknir.
Nokkur þúsund kröfur um fjár-
nám, sem ekki hefur tekist að ljúka
þar sem einstaklingar hafa hunsað
boðanir sýslumanns, liggja fyrir.
Elstu kröfurnar sem nú er verið að
vinna í eru frá árinu 2003. Næstu
daga munu einkennisklæddir lög-
reglumenn handtaka þessa einstak-
linga og fara með þá til sýslumanns.
Samkvæmt Rúnari Guðjónssyni,
sýslumanni í Reykjavík, er fólk sem
hafði hunsað boðanir byrjað að
koma til þeirra að sjálfsdáðum og
ganga frá sínum málum. „Þeir sem
vita að þeir eru hér til meðferðar
hjá okkur og hafa fengið boðunar-
bréf en ekki mætt ættu endilega að
koma og gera vart við sig hjá fulln-
ustudeildinni, annað hvort með því
að hringja og fá tíma eða koma bara
beint. Það er fólki fyrir langbestu.
Ekki er það okkar keppikefli að fólk
sé leitt hingað af lögreglu."
og hvenær sem er
Handtaka á 120 einstaklinga í
Reykjavík Nokkur þúsund kröfur um
fjárnám liggja fyrir þar sem einstakling-
ar hafa hunsað boöanir sýslumanns.
KNUD HOLSCHER/d line
PRÓFESSOR, ARKITEKT
Hann lauk námi í Arkitektaskóla Listaakademí-
unnar og varð prófessor þar 1968. Hann varð
síðar meðeigandi í Arkitektastofunni KHR A/S
arkitektar. Stofnaði síðan eigið fyrirtæki 1995,
Knud Holscher Indstriel Design (Iðnhönnun).
Hann hefur fengið mörg verðlaun og
viöurkenningar í gegn um tíðina - nú síðast
ID verðlaunin fyrir d line snyrtiþilin fyrir
almenningssalerni, ásamt ID verðlaunin fyrir
klassíska hönnun 1999.
Heimsklassa hönnun
ASETA
BYCCINCAVÖRUR BYGGINGATÆKNI
Tunguhálsi 19, 110 Reykjavík. Simi 533 1600
aseta@aseta.is www.aseta.is