blaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 28.02.2007, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 blaðið UTAN ÚR HEIMI Fjölskylda dæmd til dauða Japönsk fjölskylda; faðir, móðir og tveir synir; hefur verið dæmd til dauða fyrir morð á fjórum mann- eskjum á haustmánuðum árið 2004. Synirnir tveir rændu og myrtu fimmtán ára dreng áður en foreldr- arnir kyrktu móður hans og skutu bróður hans og vin. Sex létust í strætisvagnaslysi Sex manns létust og tugir slösuðust þegar tveir strætisvagnar skullu saman nálægt Rasbo, norður af Uppsölum í Svíþjóð, í gærmorgun. Að sögn lög- reglu voru vagnarnir báðir fullsetnir, sem þýöir að farþegarnir hafa samtals verið um hundrað talsins. Stúlka smituð af fuglaflensu Heilbrigðisyfirvöld í Laos hafa staðfest að fimmtán ára stúlka hafi verið flutt á sjúkrahús eftir að hafa smitast af H5N1 -af- brigði fuglaflensu. Þetta er fyrsta fuglaflensutilfelliö í Laos, en fjölmörg tilfelli hafa þegar komið upp í nágrannaríkjunum Víetnam, Kína, Kamþódíu og Taílandi. Reykjavík: Þjófar sluppu á hlaupum Tveir karlmenn fóru inn á svæði Blómavals í Vogahverfi í fyrrinótt en vaktmaður stóð þá að verki áður en þeir náðu að taka eitthvað með sér, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu. Þjófarnir komust undan á hlaupum og hafa enn ekki fund- ist. Þeir skildu hins vegar bílinn sem þeir komu á eftir og er hann í haldi lögreglu. Tilkynnt var um fyrirhugað rán í sælgætisbarnum í verslun- inni ío-n á Hjarðarhaga laust eftir miðnætti á mánudag. f ljós kom þegar lögreglan mætti á vettvang að ekki var um eiginlegt rán að ræða heldur sælgætishnupl. Ungir menn voru handteknir í kjölfarið og lagði lögreglan hald á sælgætið. Falleg - sterk - náttúruleg v STRÖND ' RHF. Suöurlandsbraut 10 Sími 533 5800 www.simnet.is/strond Eiginkona Jóns Geralds bar vitni í Baugsmálinu: Segir Baugsfeðga hafa átt helming í bátnum ■ Mátti ekki fréttast hverjir áttu bátinn ■ Kristín hafði ekkert með bátinn að gera Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Jóhanna Guðmundsdóttir, eiginkona Jóns Geralds Sullenberger, fullyrti fyrir dómi í gær að Jón Ásgeir Jó- hannesson og Jóhannes Jónsson hafi átt helmingshlut á móti eiginmanni sínum í skemmtibátnum Thee Vik- ing. Verjendur Baugs hafa haldið því fram að Jón Gerald hafi allan tím- ann verið skráður fyrir bátnum en að Gaumur, sem er í eigu Baugsfjöl- skyldunnar, hafi lánað honum fyrir lánum og rekstrarkostnaði. Aðspurð út í eignarhaldið sagði Jóhanna að báturinn hafi verið skráður á eiginmann sinn þar sem lánið fyrir honum hafi verið tekið í bandarískum banka þar sem þau hjónin hafi skráð lögheimili í Banda- rikjunum. Hins vegar hafi það ávallt legið fyrir að þeir feðgar hafi átt helminginn í bátnum enda hafi þeir notað hann manna mest undir sig og viðskiptafélaga sína. Jón Ásgeir hafi hins vegar tekið skýrt fram að ekki mætti fréttast að þeir feðgar væru eigendur bátsins þar sem slíkt gæti komið sér illa fyrir almennings- álitið á íslandi. Jóhanna full- yrti jafnframt að greiðslur frá Baugi til Nord- ica, sem titlaðar voru þjónustu- og umsýslugjöld, hafi farið í rekstur bátsins og að Tryggvi Jónsson hafi átt frumkvæðið að orðalaginu á reikningunum. Gaumur tók áhættuna fyrir Baug Jóhanna var eitt fimm vitna fyrir dómi í gær en auk hennar báru þau Kristín Jóhannesdóttir, Guðfinna Bjarnadóttir, Hans Kristian Hustad og Unnur Sigurðardóttir vitni. Guð- finna, sem er fyrrum stjórnarfor- maður í Baugi, sagði að hún myndi ekki mikið frá þeim tíma sem hún sat í stjórn fyrirtækisins. Aðspurð út í lög félagsins sagðist hún þó vita til þess að þau hafi þróast mikið á þeim fjórum árum sem hún sat í stjórninni og að gefið hafi verið leyfi til hærri fjárfestinga án samþykkis Fyrir utan rettarsal Jon Gerald hefur þegar vitnað, en hann er einnig ákærður. Konan hans Jóhanna vitnaði í málinu í gær. Kristín og Guðfinna Þær Kristín Jóhannesdóttir og Guðfinna Bjarna- dóttir vitnuðu báðar fyrir dómi í gær. stjórnar en segir til um i lögunum. Einnig hafi stjórnarmönnum verið það ljóst að Gaumi hafi verið ætlað það hlutverk að fara út í áhættu- samar fjárfestingar fyrir Baug og það hlutverk hafi meðal annars komið til vegna ágreinings innan stjórnar Baugs um framtíðar- stefnu fýrirtækisins. Yfirheyrslum lauk snemma Kristín Jóhannesdóttir, fram- kvæmdastjóri fjárfestingarfé- lagsins Gaums og systir Jóns Ás- geirs Jóhannessonar, mætti svo til skýrslutöku eftir hádegi í gær. Sig- urður Tómas Magnússon, settur sak- sóknari, spurði samkvæmt vefmiðl- inum mbl.is Kristínu meðal annars út inneignir á ýmsum viðskiptareikn- ingum, ýmis tölvupóstssamskipti og samskipti Gaums og Baugs. Aðspurð um skemmtibátinn Thee Viking sagðist Kristin ekkert hafa haft með hann að gera, nema gist einu sinni í honum. Sagði hún að Jóhannes, faðir hennar, og Jón Ásgeir, bróðir hennar, hafi alfarið séð um þau mál. Yfir- heyrslum lauk óvenjulega snemma í gær, klukkutíma á undan áætlun. NEFÚÐI HÁLSTÖFLUR VERKJALYF FRUNSUKREM Það er engin ástæða til að láta sér líða illa. Komdu og fáðu ráðgjöf hjá okkur. VLyf&heilsa Við hlustumi KVEF? Otrivin | ímamf Vectavfr krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsu af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar tíl blöðru. í Vectavír er virka efnið penciklóvír sem stöðvar framgang veírunnar. Vectavir er œtlaö fullorönum og börnum eldri en 12 ára. Berið Vectavir á írunsusvæöið á 2 klst fresti i 4 ciaga. Beriö á rétlfyrir svefn og um leið og vaknaö er. Dæmigert er aö írunsa komi íram við oíreynslu, kvef eða inflúensu eða í mikilii sól (Ld. á skíðum). Ekki á að nota tyfið ef að áður hefur komið fram ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðaim innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir minnka og smittimi styttist Vecíavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þarsemböm hvorki ná til né sjá. Otrfvín nefúann og nefdropamir innihalda xýlómetasóiin sém vinnur gegn bólgu, nefstfflu og slímmyndun vegna kvefs og bráðrar bólgu í ennís- og kinnholum. Otrivin virkar fljótt og áhrifin vara í 6-10 klst. Otrívin getur vaklið aukaverkunum, s.s. ertingu í slímhúð og sviðatitfinningu. Einnig ógleði og höfuðverk. Otrivin má nota þrisvar á dag en ekki lengur en 110 daga í senn. Varúð: Langtímanotkun Otrivin getur leítt til þurrks i nefslímht'ið. Sjúklingar með gláku eða þeír sem hafa ofnæmi fyrir xýfómetasófin ættu ekki að nota Otrivin. Kyrmið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Strepsks töftur em látnar renna í munni og leysast þar hægt upp. Þannig nást fram staðtxindin sótthreinsandi áhrif í munni og koki. Auk þess hata bragðefnin væg kælandí áhrif sem slá á ertíngu. Venjulega er ein tafla látin leysast hasgt upp í mumi á 2-3 kísf fresti. Lyfið þarf venjulega að nota í 3-4 daga og stundum i alit að eina viku. Einnig má leysa upp I -2 töflur í heitu vafrii og drekka sem heitan drykk. Notkun tyfsins hefur engin áhrif á önnur lyf sem notuð eru samtímis. Ofnæmi eða ofnæmislík viðbrögð geta komið fyrir en ern afar sjaldgæf. Hver pakki af Strepsils inniheldur 24 munnsogstöflur, sem eru í bentugum fjynnupakkníngum. Hverri pakkningu fylgja viðurkenndar leiðbeíningar á ísiensku um notkun lyfsins, sem gott er að kynna sér vel. Geymið þar sem böm hvorki ná ti! né sjá. VoHarwi Ooto® (díklófenak kalíum) 12,5 mg töflur. Notaðar við vægum eða frekar vægum verkjum, svo sem hofuðverk, tannpínu og tiðaþrautum. Verkar einnig hitalækkandi. Dragi ekki úr eínkennum á nokkrum dögum, skal leíta til la^cnis. Þeir sem eru með eða hafa haft sögu um maga- eða skeifugamarsár eða skerta lifrarstarfsemi ættu aö ráðfæra sig við ia^crii áður en lyfiö er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalísýru. íbuprófen eða önnur bólgueyðaodi lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voltaren Dolo®. Notið lyfið ekki á meðgöngu nema í samráði við lækni, en aldrei á síðasta þriðjungi meðgöngu. Leitíð ráða læknis eða lyfjafræðings um millíverkanír við önnur lyf. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseöií. Geymið þar sem böm hvorki ná til né sjá. Bandarískur kennari með barnaklám: Fékk 200 Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað því að taka fyrir mál kennara í Arizona-ríki sem dæmdur var í tvö hundruð ára fang- elsi fyrir að hafa barnaklám undir höndum. Morton Berger, 52 ára kennari, sagði dóm sinn vera svo þungan að hann bryti í bága við stjórnarskrá landsins. Ef Berger hefði verið dæmdur einhvers staðar annars staðar en í Arizona hefði dómurinn verið mun styttri. Lögmenn Bergers hafa bent á að dómurinn væri mun þyngri en dómar vegna morðs eða nauðg- ára dóm unar. 1 tölvu Bergers fundust um þúsund barnaklámsmyndir og fór saksóknari fram á 340 ára fangelsis- dóm. Dómarinn í Arizona úrskurð- aði hins vegar að Berger skyldi fá tíu ára dóm fyrir hverja af tuttugu alvarlegustu myndunum, án þess að eiga möguleika á reynslulausn. Hæstiréttur Bandaríkjanna gaf ekki upp neina ástæðu fyrir því að taka málið ekki fyrir, en dómurinn hefur vakið upp umræðu í Banda- ríkjunum og sýnt fram á mikið misræmi í refsiíöggjöf milli ríkja i Bandaríkjunum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.