blaðið - 28.02.2007, Page 14

blaðið - 28.02.2007, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRUAR 2007 blaðið folk@bladid.net HEYRST HEFUR ÁSGEIR KOLBEINSSON, fyrrum stjarnan úr Innlit/Útlit-þáttunum, komst heldur betur i hann krappan um daginn. Þessi siðprúði sjarmör sem er þekktur fyrir fágaðan stíl og almenna snyrtimennsku fór á ónefndan veitingastað í borginni, grunlaus um afleiðingarnar. Eftir að hafa klárað kræsingarnar sem í boði voru þurfti kappinn þó að bregða sér á salernið og skila öllu saman aftur. Hafði hann fengið svona svakalega matareitrun af grænmetinu. Fær INNlit/Útlit-fras- inn óneitanlega aðra merkingu fyrir vikið... . VAXTARRÆKTARVIÐRINIÐ Vin Diesel virðist staðráðinn í að feta í fótspor félaga síns Jude Law. Staðfest hefur verið koma hans til landsins, en nýjasta meistara- stykkið hans mun heita Babylon A.D. og mun landslag Islands leika hlutverk Kína og Rússlands framtíðar- innar eftir kjarnorku- stríð og mun snjór vera skilyrði fyrir tökustaðnum, sem verður ísilagt Þórisvatnið. Mun sköll- ótta búntið gista á Hrauneyjum. Spurning hvort íslenskar stúlkur fái skyndilegan áhuga á útivist og ferðalögum...? MANNANAFNANEFND hefur vist samþykkt eftirfarandi nöfn. Þau eru vissulega efni í vísu: Stelpur Eggrún, Örbrún, Ljótunn Hlökk, Hugljúf, Kormlöð, Stjarna. Þjóðbjörg, Þula, Þúfa, Þöll, Bogey, Baldey, Gytta. Strákar Þorgautur, Þyrnir, Þangbrandur, Fífill, Dufþakur, Dreki, Galdur. Hlöðmundur, Skuggi, Safír, Skefill, Bambi og Reginbaldur. Upplifðu HVAÐ Er Siv Friðleifsdóttir sætasta Flí^NST stelpan á ballinu? Ih f „Ég er hrifinn af Siv sem stjórnmálamanni og samstarfsmanni en allar JL 1—1XV • mínar ástir, pólitískar og aðrar, liggja annars staðar við landfestar." Össur Skarphéðinsson, alþingismaður Miklar ástarjátningar fóru fram á Alþingi í gær. Össur sagði á þinginu að hann hefði alltaf verið hrifinn af heilbrígðisráðherra og hefði kosið hana formann Framsóknarflokksins hefði hann haft tækifæri til , þess. Var hlegið hátt og lengi yfir þessum ummælum Össurar. Rokkkóngurinn Rúnar Júl giftist draumadrottningunni Upp að altarinu í dag Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net Rúnar Júlíusson er eilífðartöffari fslands. Hann kynntist Maríu Bald- ursdóttir, söngkonu og fegurðar- drottningu, fyrir 43 árum og hefur elskað hana heitt síðan. í bók sinni sem kom út fyrir nokkrum árum lof- aði hann því að giftast henni þegar hún yrði sextug. María verður sex- tug í dag. Blaðið innti Rúnar eftir því, hvort hann væri maður orða sinna...? „Já, ég er það nú. Ég keypti hring- inn í fyrradag og við sláum afmælinu saman við brúðkaupið. Þetta verður nánast í kyrrþey samt. Bara þessir nánustu, látlaust og engin læti sko,“ sagði Rúnar eitursvalur að vanda. Rúnar hefur margsinnis þurft að krjúpa á kné í bassasólóum og skríls- látum á sviði með Hljómum. Skyldi hann hafa farið niður á skeljarnar þegarhann baðMaríu? „Nei, ég gerði það nú ekki. Ég var alveg teinréttur. En ég fer væntan- lega niður á hnén í kirkjunni, það er víst venjan þar að krjúpa. Ég held ég hafi ekki gert það síðan ég fermdist reyndar, en það var einmitt í sömu kirkju!" Rúnar segir samband þeirra turtil- dúfnanna í stöðugri þróun og þannig sé það best. „Við höfum unnið í ástinni í öll þessi ár. Með reglulegri vökvun blómstrar hún og nú er kannski kominn tími á að festa ráð sitt! Ég held ég þekki hana orðið nógu vel til að giftast henni. Það þótti á vissum tíma, þarna milli '60 og '70, bara ekki við hæfi endilega að gifta sig. Þarna var hippastemn- ingin allsráðandi og síðan var svona, kerfislega á litið, í raun einfaldara að vera bara i sambúð. Var í raun meira öryggi.“ Þótt Rúnar sé ekkert unglamb er hann langt í frá dauður úr öllum æðum. Hann rekur elsta starfandi út- gáfufélagið og upptökuverið á landinu, Geimstein. En hefur hann burði til að bera frúna yfir þröskuldinn, eins og venja er? „He he, já, já. Ég er búinn að æfa mig reglulega í dágóðan tíma. Held að ég sé búinn að ná þessu eftir 43 ár. Ann- ars er vert að minnast á að ég er einnig að gefa út plötu sem nefnist Að eiga sér dreng, sem er safnplata með mínum bestu lögum. Ég mæli eindregið með www.europcar.is ■ Bílaleigubílar um allan heim Ék sé Pantaóu bílinn hjá Europcar fe * áður en þú leggur af stað / Vió erum í 170 löndum. Upplýsingar og bókanir í síma: 565 3800 europcar@europcar.is Europcar henni,“ sagði Rúnar glettinn. Rómantíkin er ekki langt undan hjá Rúnari. Hann mun flytja frum- samið lag til konu sinnar af tilefninu, en ekkifá allir að heyra. Ekki strax að minnsta kosti. „Já, ég samdi sérstaklega lag handa henni. Minna má það nú ekki vera. Su doku En það mun ekki heyrast (kirkjunni eða neitt svoleiðis, enda ekki þannig athöfn. Ég spila það bara handa henni einni þegar tími gefst. Annars gef ég það væntanlega út á næstu plötu, það er nóg að gera í þeim bransa. Það kemur út plata fyrir Ljósahátíðina sem er haldin hérna árlega og svo HERMAN kemur plata frá mér sjálfum fyrir jól einhvern tíma. Síðan er ég alltaf að spila reglulega með bandinu mínu og strákunum mínum, þannig að maður heldur sér vel við,“ sagði Rúnar að lokum. Blaðið óskar þeim hjónum hjartan- lega til hamingju með daginn. eftir Jim Unger 5 3 4 7 9 9 5 3 6 8 2 3 5 7 4 2 3 8 9 4 1 2 6 2 4 7 2 6 9 5 3 8 7 Su Doku bmutin snýst um aö raða tölunum frá 1 -9 lárétt og lóörétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eöa lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. ÞU LEIGIR MEIRA EN BARA BIL.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.