blaðið


blaðið - 28.02.2007, Qupperneq 15

blaðið - 28.02.2007, Qupperneq 15
blaðið MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 15 Bloggar og spilar badminton Katrín Atladóttir á sér annað sjálf. Rafrænt sjálf. Hún er einn vinsælasti bloggari landsins og er ófeimin við að tjá skoðanir sínar um menn og málefni á heimasíðu sinni, katrin.is. En hver er þessi kjaftfora Katrín? „Ég er 27 ára hugbúnaðarverkfræð- ingur og vinn í Landsbankanum. Ég er líka bloggari.“ Katrín byrjaði snemma í blogg- inu; þegar það þótti nýtt og ferskt. Nú eröldin önnur. „Já, ég byrjaði 2001 þegar það voru frekar fáir í þessu. Það voru nokkrir strákar í skólanum í þessu og það vakti áhuga minn. Ætli það hafi ekki verið svona 30 manns að blogga á þeim tíma og þekktust allir í þokkabót. Nú er annar bragur yfir þessu, allir eru að blogga núna. Þetta var skemmtilegra þá því þá gat maður kannski leyft sér að segja meira. Það er mjög fyndið að lesa gömlu bloggin mín því maður man ekkert hvað er satt og hvað er lygi lengur! Nú er maður orðinn miklu linari, enda er ég eldri og farin að vinna í banka og svona. Maður hefur auðvitað þroskast heilmikið, bæði í blogginu og í lífinu. “ Katrín er sprenglœrð stúlka. Hún er tölvunarfrœðingur frá HÍ og hug- búnaðarverkfræðingur frá DTU- skólanum í Danmörku. En hún á sér annað áhugamál. Nefnilega badminton. „Já, já, ég spila badminton með TBR og varð á dögunum Evrópu- meistari B-þjóða, en ég spila tvíliða- leik með Rögnu Ingólfsdóttur sem einnig er besta vinkona mín. Saman erum við auðvitað íslandsmeistarar í tvíliðaleik! Annars er nú varla tími fyrir fleiri áhugamál. Reyndar finnst mér gaman að horfa á körfu- bolta, enda bróðir minn nýbakaður bikarmeistari með ÍR. Annars mun ég halda mig við badmintonið og bloggið í bili held ég.“ Hvað finnst Katrínu um bloggið nú? Er bloggið bóla sem springur? „Nei, ég held ekki. Það verður alveg eilíft. Hins vegar eru svo margir í þessu núna. Sjálf les ég til dæmis ekki blogg einhverra sem ég þekki ekki. Það er allt of mikið um þessi nafnlausu blogg sem fela sig á bak við skálduð nöfn og engar myndir. Einnig finnst mér Moggabloggið hundleiðinlegt. Það er samsafn af fólki sem tuðar yfir öllu, eins og liðið sem er að tjá sig hjá Sigmari Guðmunds. Ja hérna. Annars les ég helst sigurjon.com og icomefrom- reykjavik.com/halli,“ sagði Katrín að lokum. BLOGGARINN... Fylgisfimbulfamb... „Það var athyglisvert viðtalið við Steingrím J. Sigfússon og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í Islandi í dag í gærkvöldi. Steingrímur J. sagði þá í tvigang að það skipti hann litlu máli hvaöa fylgi flokkurinn fengi, svo lengi sem meirihluti núverandi stjórn- ar félli. Varð það einum áhorfanda tilefni til innsendingar bréfs: „Er það virkilega svo að formanni flokks finnst það engu máli skipta hvaða fylgi flokkurinn hef- ur? Getur maður þá bara hætt við að kjósa VG og ákveð- ið að kjósa Frjálslynda og Steingrími J. er skítsama?" Þegar stórt erspurt..." Steingrímur Sævarr saevarr.blog.is ..endurfundir... „[...] Simmi Vilhjálms er að hætta hjá 365 og flytja sig yfir í Landsbankann. [...] ...og ferþarað vinna með vini sin- um Jóa, sem starfar á markaösdeild. Það erþví Ijóst að það verður ekki bara gott að vinna fyrir Landsbank- ann, heldurlíka skemmtilegt, þvíþar sem þessir drengir eru er gaman. [...] það hefur löngum veriö viöhorf í þessum bransa að „maður kemur i manns stað" istað þess að hlúa vel að fólki og greiða þvi viðunandi laun ... Gangiþérvel Sigmar Vilhjálms á nýjum og skemmtilegum stað! Nú er bara spurning hvaða banki tekur Jón og Gulla??? " Jón Axel Ólafsson jax.is ...photo (ge) nisk „Nú er ég með smá hjartslátt. Þegar ég var að byrja að blogga fékk ég leiðbeiningar um hvernig maður get- ur náð í myndir og sett á bloggiö sitt. Það hefur verið helmingur gamans- ins hjá mér að finna myndir við hæfi og að fá hugmyndir um eitthvað til að skrifa um út frá sniðugum mynd- um. Svo fór maðurinn minn eitthvað að kíkja á þessa síðu þar sem ég næ í myndirnar og hann segirað ég verði að borga fyrirþær. Geturþað verið?" Málefnaráðstefna Frjáslynda flokksins Mannúðleg markaðshyggja Einstaklinginn í öndvegi Grand Hótel Reykjavík: Laugardaginn 3. mars n.k. kl. 10. Dagskrá: Laugardagur 3. mars 2007 • Ráðstefnustjóri: Tryggvi Agnarsson 10.00 -10.10 Ráðstefnan sett: Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. 10.10 -10.25 Skattar og velferð: Stefán Ólafsson, prófessor. 10.25 - 10.35 Fyrirspurnir. 10.35 - 10.50 Landnýting og landvernd: Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, arkitekt. 10.50 - 11.00 Fyrirspurnir. 11.00-11.10 Kaffihlé 11.10- 11.30 ísland á tímum alþjóðavæðingar: Þorvaldur Gylfason, prófessor. 11.30 - 11.40 Fyrirspurnir. 11.40 - 12.00 Okur og almenningur: Guðmundur Ólafsson, prófessor. 12.00 -12.10 Fyrirspurnir. 12.10- 13.00 Matur. Kl. 13.00 Skipting í starfshópa: a. Mannúðleg markaðshyggja: Velferðarmál, aldraðir, öryrkjar, skattamál, uppbygging atvinnurekstrar. b. Landnýting í sátt við landvernd / samgöngumál. c. Burt með gjafakvótann og gjafir á þjóðareign. d. Okur og almenningur/ gengi og gjaldmiðill. e. Utanríkismál og innflytjendur. KI.13.00-15.00 Starfshópar starfa. Kl.15.00 Umræður/ ráðstefnuslit. Kl.17.00 Móttaka. www.xf.is Katrín S. Baldursdóttir katrinaeholm.blog.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.