blaðið


blaðið - 28.02.2007, Qupperneq 20

blaðið - 28.02.2007, Qupperneq 20
28 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2007 blaðið neytend neytendur@bladid.net Neytendaverðlaunin 2007 Neytendaverðlaun Bylgjunnar og Neytendasamtakanna 2007 verða afhent þann 15. mars, á alþjóðlegum degi neytenda. Hægt er að tilnefna fyrirtæki til verðlaunanna til 1. mars og kosið verður milli þeirra fyrirtækja sem flestar tilnefningar fá milli 1 .-12. mars. Ahætta erfðatækninnar Terje Traavik, prófessor í genavistfræði við Háskólann í Tromsö, flytur fyrirlestur um áhættu erfðatækninnar í Norræna húsinu á morgun kl. 16:30. Traavik mun m.a. fjalla um þekkta og óþek- kta óvissuþætti, umhverfis- og heilsuáhrif erfðatækninnar. Mikilvægi endurvinnslu Þrír af hverjum fjórum íslend- ingum telja endurvinnslu mjög mikilvæga fyrir samfélagið samkvæmt niðurstöðum könn- unar sem Úrvinnslusjóður lét gera í fyrra. Fimmtungur (19,8 prósent) aðspurðra telur endur- vinnslu frekar mikilvæga. Könnunin leiðir engu að síður í Ijós að aðeins 17,3 prósent landsmanna flokka sorpið alltaf og 24,5 prósent oft. Sama hlutfall (24,5 prósent) segist stundum flokka sorpið. Einn af hverjum þremur eða 33,7 prósent flokkar sorpið sjaldan eða aldrei. Úrtak könnunarinnar var 1350 manns á öllu landinu á aldrinum 16-75 ára og var það valið af handahófi úr þjóðskrá. Svarhlutfall var 63,6 prósent. LIÐ-AKTÍN GXTRA Glucosamine & Chondroitin 60 töflur Heldur liöunum liöugum! Npl heilsa ik” íifi -haföu þaö gott Gjaldtaka og verndartollar standa í veginum Erlendar lágvöruverðs- verslanir á íslenskan markað Erlendar lágvöruverðs- verslanir á borð við Lidl og Adli kynnu að hasla sér völl hér á landi ef dregið yrði úr gjaldtöku og verndartollum sem hér ríkja. Þetta kom fram í máli Thomas Svaton, fram- kvæmdastjóra Samtaka sænskra dagvöruverslana, á fundi Samtaka verslunar og þjónustu nýlega. „Þessar verslanir hafa verið að hasla sér völl á Norðurlöndunum eftir að þau gengu í Evrópusam- bandið og það fór að rýmka um höft sem við erum enn þá með. Að því leyti mætti leiða líkur að því að þær myndu koma hingað,“ segir Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rann- sóknaseturs verslunarinnar við Há- skólann á Bifröst. Emil telur engan vafa á því að þessar verslanir muni fylgjast vel með því sem gerist hér á landi og verði fljótar að koma sér fyrir á markaðnum ef þær sjá sér hag i því. Líklega þarf þó meira að koma til en þær breytingar sem verða á vöru- gjöldum og virðisaukaskatti nú um mánaðamótin svo sem lækkun á verndartollum. Emil segir að ýmis- legt mæli með því að þær komi hing- að og annað á móti. Hafa áhrif á samkeppni „Við erum ekki með það stóran markað hérna og það er erfitt að fá bein svör frá þessum verslunum. Þær taka greinilega skjótar ákvarð- anir og það er alla vega reynslan á hinum Norðurlöndunum að þær hafa komið allt í einu inn á markað- inn,“ segir Emil. „Þær sjá það kannski að það er ekki svo mikið upp úr þessu að hafa hér, að minnsta kosti ekki enn sem komið er,“ segir hann. Ef þessar verslanir hösluðu sér völl hér á landi myndi það væntan- lega hafa umtalsverð áhrif á sam- keppni á matvörumarkaði. Sú hefur að minnsta kosti verið raunin ann- ars staðar á Norðurlöndum. „Þessar ofurlágvöruverslanir eru með eitthvað um þriggja prósenta markaðshlutdeild í Svíþjóð þar sem ég þekki best til en þær hafa samt Lágvöruverðsverslanir Erlendar ofur- lágvöruverslanir á borð við Lidl og Adli kunna að hasla sér völl á íslenska mark- aðnum ef þær sjá sér hag í því. sem áður gert það að verkum að aðr- ir hafa pínt sig niður í verði til að passa það að þær yxu ekki enn þá meira,“ segir Emil. Lækkanir á grænmetis- tollum skiluðu sér Emil telur að þær breytingar sem verða á gjöldum og virðisaukaskatti á matvælum og ýmsum öðrum vörum um mánaðamótin séu mjög til góðs. „Ég er alveg sannfærður um það að versluninni er mikið í mun að þetta skili sér. Þetta er búið að vera mik- ið hagsmunamál hjá versluninni í mörg ár,“ segir Emil sem óttast ekki heldur að kaupmenn muni halda óbreyttu verði og stinga ágóðanum í vasann. „Það hefur sýnt sig að þegar það voru lækkaðir tollar á grænmeti voru uppi sömu raddir um að kaup- menn myndu stinga ágóðanum í vas- ann en það gerðist ekki og það hefur sýnt sig að dagvöruhluti neysluverðs- ins hríðlækkaði og hefur haldist nokkuð stabíll,“ segir Emil. Verðlag á matvöru lækkaði talsvert eftir að tollar á grænmeti voru afnumdir ár- ið 2002. Því til stuðnings má benda á að frá janúar 2002 til janúar 2004 lækkaði vísitala matar- og drykkjar- vöru um 4,4 prósent en á sama tíma- bili hækkaði vísitala neysluverðs um næstum 4 prósent. Eftirlit með verðbreytingum Ýmsar stofnanir og samtök svo sem Alþýðusamband íslands, Neyt- endasamtökin og Neytendastofa munu fylgjast með verðlagsbreyt- ingum á næstu misserum og veita kaupmönnum aðhald. Einnig hef- ur almenningur verið hvattur til að láta ekki sitt eftir liggja og gefa verðbreytingum gætur og ganga úr skugga um að lækkanir skili sér. Þannig hefur talsmaður neytenda hvatt neytendur til að taka ákveðna vöru í „fóstur“ og Neytendastofa ger- ir fólki mögulegt að senda inn nafn- lausar ábendingar um verðbreyting- ar á heimasíðu sinni. Nokkuð hefur verið um hækkanir á matvörum frá birgjum að undan- förnu og hafa Neytendasamtökin gert lista yfir þau fyrirtæki sem hækkað hafa verð. Samtökin hafa fengið mikil viðbrögð við listanum og í frétt á heimasíðu samtakanna Emil B. Karlsson Forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar. segir að greinilegt sé að almenning- ur sé reiður og finnist að með þess- um hækkunum sé verið að taka fyr- irfram af honum ávinninginn sem neytendur eiga að njóta með aðgerð- um stjórnvalda um mánaðamótin. Tilboð dagsins! Laxaflök á aðeins 1.290 kr./kg Ævintýralegar fiskbúðir FISKISAGA Hamraborg 14a / Skipholti 70 / Höfðabakka 1 / Nesvegi 100 (Vegamótum) / Sundlaugavegi 12 / Háaleitisbraut 58-60 / fiskisaga.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.