blaðið - 28.02.2007, Side 22

blaðið - 28.02.2007, Side 22
30 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRUAR 2007 heimili@bladid.net ^'i'/Mt/nr Edik gegn blettum Parketið þarf að þola mikið hnjask og óhreinindi. Stundum myndast dökkir, hvimleiðir blettir á parketinu sem erfitt getur veriö að ná af. Gott húsráð við þeim vanda er að taka blauta tusku, hella í hana ediki og strjúka yfir blettina. blaðiö Kók gegn kísil Stundum safnast mikill kísill fyrir í sturtuhausnum og þá fer vatnið gjarnan að dreifast ójafnt úr honum. Einfalt ráð til aö vinna bug á þessu vandamáli er að láta hann liggja í kóki yfir nótt. Þá losnar allur kísill úr honum og hann verður eins og nýr. v ,iDR.€ILUAN /t’MCKEITHl & npuiir„uv fnnm E?í ^ *u*detáthtprouUJgra^m^d ; • harreMlrd al ihr f*** °f•nvymc aclicity ^ frábært fyrir meltinguna Eykur orku, úthald og einbeitingu. Lífrænt ræktuð spíruð súperfæða Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaup og Fjarðarkaup Einstaklega þægilegir og fyrirferðarlitlir sænskir hægindastólar sem gott er að standa upp úr - Fáanlegir bæði í leðri og áklæði í ýmsum litum. Verð kr. 77.500 með skemli SÍMi 553 8177 S 553-14CX} Mynd/Frikkk Kristin Guðmundsdottir arkitekt hefur mikla reynslu af innanhússhönnun fyrir einstaklinga. Dæmi um verk eftir hana má siá á innark.is 1 Bcr Kristín Guðmundsdóttir innanhússarkitekt Stofan endurspegli karakter íbúanna Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Óhætt er að segja að falleg stofa sé helsta prýði heimilisins. En til þess að stofa sé falleg nægir ekki alltaf að hafa gott útsýni og snotur húsgögn heldur þarf að huga að heildarmynd- inni og láta rými, birtu og húsmuni njóta sín sem best. Sífellt færist í aukana að fólk ráði innanhússarki- tekta til að hjálpa sér að gera stof- una flotta, þægilega og aðlaðandi. Blaðið kynnti sér málið hjá Kristínu Guðmundsdóttur, innanhússarki- tekt hjá Innark. „Stofan er það rými hússins þar sem fólk tekur helst á móti gestum, slakar á eftir langan vinnudag, les eða nýtur þess að ylja sér við arin- inn,“ segir Kristín. „Hún er því það rými sem fólk vill hafa smekklegt og snyrtilegt auk þess sem það þarf að endurspegla stíl og karakter íbú- anna. Innanhússarkitekt veitir fólki hjálp við að skapa það umhverfi sem það vill búa í og þar sem því líður best og það er mikilvægt að arkitekt- inn finni karakter og stíl fyrir hvert heimili og forðist endurtekningar, þar sem hvert heimili sem hannað er af innanhússarkitekt verður að hafa sína sérstöðu,“ bætir hún við. Opin rými algeng „Þegar innanhússarkitekt er feng- inn til að hanna eða útfæra stofu fyrir einstaklinga er það oftast í tengslum við aðra hönnunarvinnu sem arkitektinn vinnur í húsinu, eins og til dæmis þegar hann er að hanna eldhús og borðstofusvæði, og þá kemur stofan í beinu framhaldi af því,“ segir Kristín. „í dag sækjast mjög margir eftir því að láta þessi svæði renna saman og vera um leið opnari, bjartari og með betri teng- ingu sín á milli. Heildarmyndin verður þá þannig að í stað þess að gengið sé á milli þriggja ólíkra rýma er verið að mynda betra flæði á milli þeirra og koma á samræmi í stíl og útliti á milli þessara svæða, hvaða stíl svo sem fólk aðhyllist." Hún bætir því við að þó allur gangur sé „Stofan erþví það rými sem fólk vill hafa smekk- legt og snyrtilegt auk þess sem það þarf að endur- spegla stíl og karakter íbúanna“ á því hvernig stíl fólk aðhyllist sæk- ist meirihluti fólks eftir nútímalegu útliti með einföldum og stílhrein- um línum, en þó þannig að þær séu tímalausar og um leið notalegar. Hugmyndum gjarnan vel tekið Kristín segir fólk yfirleitt vera mjög áhugasamt og opið fyrir hug- myndum arkitektsins í stað þess að vera með mjög fastmótaðar skoðan- ir á þvi hvernig stofurnar eiga að vera. „Sumir fara reyndar alla leið og láta innanhússarkitektinn jafn- framt velja öll húsgögn og muni en flestir eiga þó ákveðin húsgögn, myndir og fleira sem þeir vilja hafa í kringum sig og þá er það í okkar verkahring að koma því þannig fyr- ir að það fái sem best notið sín.“ í seinni tíð hefur einfaldleikinn verið svo til allsráðandi í innanhúss- hönnun hér á landi sem víðar, en Kristín segir að sem betur fer séu undantekningar á því. „Hvítt hefur verið mjög vinsælt undanfarið jafnt á veggjum, innréttingum og gólf- efnum. Þetta er þó örlítið að breyt- ast því þó svo að hvítt gefi birtu og léttleika á svarthvít blanda það til að verða fullsteríliseruð og persónu- leikalaus. Ég nota gjarnan bjarta og hlutlausa tóna, stál og stein, en þó með aðeins hlýlegra yfirbragði og margir virðast vera hrifnir af því.“ Einföld ráð fyrir stofurnar Lumarðu á einföldum ráðum fyr- ir fólk sem á litlar stofur en vill láta þœr virka rúmbetri? „Já, ég ráðlegg þeim að forðast að fylla rýmið með of miklu af hús- gögnum, myndum og öðrum mun- um. Öllu skynsamlegra er að velja þá hluti sem manni eru kærastir og leyfa þeim að njóta sín þeim mun betur. Þegar of mikið af hlutum og húsgögnum er á sama svæði fær eng- inn þeirra notið sín sem skyldi,“ seg- ir Kristín og bætir því við að miklar skrautgardínur þyngi og minnki rými. „Það er líka mikilvægt að hafa í huga að til þess að birta komist inn í stofuna má ekki byrgja glugga með þykkum og miklum gardínum, heldur verður að leyfa birtunni að koma inn og nota léttari og einfald- ari gardínur til að vernda gegn sól og minnka innsýn. Þá er vitaskuld líka mikilvægt að hafa góða og vel útfærða lýsingu.“

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.