blaðið - 27.03.2007, Blaðsíða 1
60. töliiblaó 3. árgangur
þriðjudagur
27. mars 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKEYPIS!
■ FÓLK .
Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgar-
stjóri, hélt upp á 50 ára afmæli sitt
um helgina. Afmælisgjafirnar fóru
til líknarfélagsins Bergmáls | síðai6
■ KOLLA OG KÚLTÚRINN
Glæpasögur Ævars Arnar Jósepssonar
verða að sjónvarpsþáttum áður en
um líður og eru það fyrstu íslensku
krimmaþættirnir | s(ða26
langt
Flaug frá Frankfurt Breski söngvarinn Sir Cliff Richard kom til landsins í gær. Hann flaug frá Frankfurt. Richard syngur annað kvöld á tónleikum í Laugardalshöll. Þetta verða stórtón-
leikar en með honum komu yfir tuttugu manns og fylgja einnig tæp fimm tonn af tækjum og tólum, að sögn umboðsaðila hans. Enn eru lausir miðar á tónleikana og því tækifæri til að láta
langþráðan draum um að sjá hjartaknúsarann rætast.
Neikvæð afstaða Sjálfstæðisflokks til Evrópusambandsaðildar:
Gengur gegn hefð flokksins
■ Davíð taiaði fyrir ESB-aðild 1990 ■ Kúventi skömmu síðar
Eftir Atla ísleifsson atiii@bladid.net
„Sjálfstæðisflokkurinn er eini hófsami flokkurinn í
Evrópu, hægra megin við miðju, sem er andvígur að-
ild síns lands að Evrópusambandinu,“ segir Eiríkur
Bergmann Einarsson, dósent í stjórnmálafræði og
forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bif-
röst. „Jafnvel má halda því fram að neikvæð afstaða
sumra forystumanna Sjálfstæðisflokksins gangi
gegn hefð flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ávallt verið mjög alþjóðasinnaður flokkur og hefur
jafnan verið talsmaður þátttöku íslands í tilteknum
alþjóðastofnunum, til dæmis NATO og EFTA og
svo Evrópska efnahagssvæðinu."
í nýrri bók Eiríks, Opið land - Staða íslands í
samfélagi þjóðanna, segir að sjálfstæðismenn hafi
talað mjög hlýlega um ESB-aðild á sínum tíma.
Þannig hafi Davíð Oddsson, þáverandi borgar-
stjóri, sagt árið 1990 að það væri sín skoðun hvað
sem öðru liði að það yrði stærsta pólitíska verkefni
Islendinga á næstu árum hvernig hagsmuna þjóðar-
innar yrði gætt í breytilegum heimi. „Við verðum
að laga okkur að þeirri staðreynd að meirihlutinn
af viðskiptum okkar er við Evrópubandalagið; ég
hef opinberlega lagt til að við sækjum um aðild.“
Eiríkur segir að einhverra hluta vegna hafi á
næstu árum orðið einhver skil og í aðdraganda þing-
kosninganna árið 1995 kúvendir Sjálfstæðisflokkur-
inn í afstöðu sinni og mælir gegn þátttöku í ESB.
„Þessi tvö öfl höfðu togast á í Sjálfstæðisflokknum,
það er uppruni flokksins í sjálfstæðisbaráttunni
og svo hin hliðin sem talar fyrir einstaklingsfrelsi.
Sá þáttur sem talar fyrir sjálfstæðisbaráttu varð
þannig ofan á í flokknum.“
Eftir að hafa rætt við Jón Baldvin Hannibals-
son, fyrrum formann Alþýðuflokksins, og skoðað
þennan feril segist Eiríkur hafa séð að það hafi
einnig verið eitthvað í persónulegum samskiptum
leiðtoga þáverandi ríkisstjórnarflokka, Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðuflokksins, sem hafði þessi áhrif.
Sjá einnig siöu 4
ORÐLAUS » síóa 34 ■ VEÐUR » Síöa 2
4; Á gylltan síma mW Guðný Pála Rögnvaldsdóttir hefur s'egiö í gegn í X-Factor sem annar meðlimur söngdú- ettsins Gís. Gylltur Dolce ■ og Gabbana-síminn er i BmBK uPPáhaldi hjá henni. ÉH Áttasíöna .ITipi serblað um heilsu fylgir - JU "/j/ §1 I meöBlaöinu ádÆ Ídag r m IK1 j
Renault
öruggari notaöir bílar
Veldu 5 stjörnu
öryggi lífsins vegna!
RENAULT MEGANE II
Nýskr: 06/2005,1600cc
4 dyra, Flmmgíra, LJósgrár,
Ekinn 57.926 þ.
Verð: 1.750.000
UO-335
RENAULT MEGANE II
Nýskr: 01/2006,1600cc
5 dyra, Fimmgira, LJósgrár,
Ekinn 15.000 þ.
Verð: 1.940.000
RENAULT MEGANE II
Nýskr: 06/2005,1600cc
5 dyra, Fimmgíra, LJósgrár,
Eklnn 29.500 þ.
Vorð: 1.790.000
TT-641
RENAULT SCENIC II
Nýskr: 06/2004, 2000cc
5 dyra, Flmmgíra,
Ekinn 30.000 þ.
Verð: 1.930.000
VJ-071
bilolond.is
fervnÍAru^ 2007
Frábær tilboð á rúmum, grjónastólum og púðum og fylgihlutum
oM'arcó
Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og lau.: 11-16
Reykjavik sími: 533 3500 - Akureyri simi: 462 3504
Egilsstaðir: sími: 471 2954
Heilsurúm - dýnur - gjafavara - svefnsófar - stólar - sófar - grjónapúðar