blaðið - 27.03.2007, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2007
blaAið
UTAN ÚR HEIMI
Abe biðst afsökunar vegna vændishúsa
Shinzo Abe, forsaetisráöherra Japans, baðst afsökunar
í þingræðu í gær vegna þess aö japönsk yfirvöld
neyddu um 200 þúsund konur til að stunda vændi
og þjóna japönskum hermönnum á tímum seinni
heimsstyrjaldarinnar.
EGYPTALAND
Deilur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
Egyptar gengu til þjóðaratkvæðagreiðslu vegna
breytinga á stjórnarskránni í gær. Stjórnarandstæð-
ingar segja fyrirhugaðar breytingarnar fela í sér
skrerðingu á mannréttindum og auka vald forseta
landsins.
>
Sarkozy lætur af embætti
Nicolas Sarkozy lét af embætti innanríkisráðherra Frakk-
lands í gær til að geta einbeitt sér að forsetakjörinu sem
framundan er. Þá var tilkynnt að Francois Baroin, fyrrum
nýlenduráðherra, muni taka við stöðunni af Sarkozy. Skoð
anakannanir sýna flestar naumt forskot Sarkozy.
r r
NU A BESTA STAÐIBÆNUM
BESTA OPNAR AÐ ÁRMÚLA 23
MEÐ ENN MEIRA VÖRUÚRVAL
GEFA/MGuIa
blaðið
SMAAUQLYSINGAR@BIADID.NET
.■
Tillaga um legu Sunda-
ganga Ekki er gert ráð fyrir
göngunum i aðalskipulagi.
Fundað með yfirvöldum um Sundabraut:
Vinnuhópur
á laggirnar
2 Mest sátt um göng ■ Kostnaður 20 milljarðar
■ Erlendar hafnir reka brautir og brýr
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Það þarf að fara yfir lagalega þætti
málsins varðandi útboðsskyldu
og ýmislegt fleira,“ segir Björn
Ingi Hrafnsson, formaður stjórnar
Faxaflóahafna, sem fagnar því að
ákveðið hafi verið að setja strax
á laggirnar vinnuhóp vegna óska
Faxafíóahafna um að fjármagna og
byggja Sundabraut í einum áfanga.
Nú þykir líklegast að gerð verði
göng frá Sæbraut yfir í Gufunes sem
ekki er gert ráð fyrir í aðalskipu-
lagi. Stefnt er að því að könnunar-
borunum vegna mögulegrar ganga-
gerðar verði lokið um mitt sumar.
Verið er að vinna að umhverfismati
vegna Sundabrautar sem er sam-
vinnuverkefni Reykjavíkurborgar
og Vegagerðarinnar. „Sundabraut
er inni á landi borgarinnar en þetta
er þjóðvegur í þéttbýli og á forræði
samgönguyfirvalda,“ tekur Björn
Ingi fram og bætir því við að mest
sátt sé um gerð svokallaðra Sunda-
ganga. Áætlað er að þau muni kosta
um 16 milljarða króna og tenging-
arnar beggja vegna 3 til 6 milljarða
þegar gróft er reiknað, að þvi er
Björn Ingi greinir frá.
Aðspurður hvort ríkið fengi ekki
betri lánakjör en fyrirtæki á vegum
Faxaflóahafna um gerð Sunda-
brautar kveðst Björn Ingi ekki geta
svarað því. „En Faxaflóahafnir eru
mjög stöndugt opinbert fyrirtæki
og helstu kostir einkaframkvæmdar
Annar áfangífl;
Sundabrautái;'
af þessu tagi eru þeir að einkaað-
ili tekur að sér að gera verkið frá
upphafi til enda. Hann fjármagnar
verkið og sér um framkvæmdir og
rekstur. Sumir hafa þá skoðun að
best sé að ríkið sjái um alla hluti og
færa rök fyrir því að ríkið fái bestu
fjármögnunina i öllu og eigi þess
vegna að gera allt mögulegt. En hin
alþjóðlega þróun er öll á þann veg
að einkaaðilar, og ég tala nú ekki
um fyrirtæki í opinberri eigu eins
og Faxaflóahafnir, taki að sér slik
mannvirki.“
Hann nefnir sem dæmi að einka-
fyrirtæki víða um heim, til dæmis í
Bandaríkjunum, eigi og reki hafnir,
hraðbrautir, brýr, göng og flugvelli.
„Þetta er mjög þekkt á alþjóðlegum
vettvangi og hefur gefist mjög vel,
eins og dæmið um Hvalfjarðargöng
sýnir. Það var líka sagt um Hval-
fjarðargöngin að ríkið ætti að fjár-
magna þau en við værum líklega
enn að bíða eftir þeim ef það hefði
verið ákveðið.“
Miðað við þá samninga sem eru
í gildi eignast ríkið Hvalfjarðar-
göng árið 2018, að því er Björn Ingi
greinir frá.
NetreikningurSPK
ri 14,60%
Tryggðu sparifé þínu topp ávöxtun
A'V
Sæktu um á www.spk.is ítSpK
' M.v. vaxtatöflu SPK 21.03. 2007