blaðið - 27.03.2007, Blaðsíða 16
HEYRST HEFUR
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2007
folk@bladid.net
GÖMLU RÚV-refirnir Bogi Ágústs-
son og Samúel Örn Erlingsson
eru í lausu lofti eftir að störf þeirra
voru lögð niður í kjölfar ohf.-væð-
ingar stofnunarinnar. Samúel er í
framboði fyrir Framsóknarflokk-
inn sem þykir nú ekki ávísun á
þingstörf ef horft er til vinsælda
flokksins þessi misserin. Bogi
ætti hins vegar að geta gengið
inn í hvaða fréttastarf sem er ef
hann kýs svo en
ólíklegt verður
að teljast að
hann fari á
365. Kannski
hann samein-
ist sínum gamla
félaga úr frétta-
settinu og fari til
IngvaHrafns
í fNN...?
LAY LOW hélt tónleika á NASA á
fimmtudaginn. Tónleikarnir voru
kvikmyndaðir í bak og fyrir eins
og gjarnan er gert og þykir í sjálfu
sér ekki fréttnæmt. Hins vegar sást
til þeirra Sigurjóns
Sighvatssonar,
Ara Alexanders
og Ingvars E.
Sigurðssonar í
hrókasamræðum.
Hafa spekúl-
antar því
spáð því að
væntanleg
sé: Lay
Low the
movie...
ÞAÐ sást til þeirra Ara Edwald
og Þorsteins Pálssonar stíga inn
í fundarherbergi með Styrmi
Gunnarssyni ritstjóra í Mogga-
höllinni í hádeginu gær. Ljóst er að
eitthvað stórt er i aðsigi í fjölmiðla-
heiminum því þessir menn funda
ekki augliti til auglitis að óþörfu.
Ótal kenningar hafa
sprottið fram en
sú merkileg-
asta er að 365
hafi í hyggju
að kaupa
upp enn
eina sam-
keppnina...
HVAÐ Halldór, fékkstu Grettistak?
FIÍ^NST
ÞER?
„Já, ég fékk bara Grettistonnatak
held ég!“
blaðiö
Halldór Gylfason, leikari
Halldór leikur um þessar mundir í söngleiknum Gretti í Borgarleik-
húsinu. Hann slasaöist þó í baki og getur sig litiö hreyft. Því verður
leiksýningunni frestað fram yfir páska.
Allt er fimmtugum fært
Eftir Trausta Saivar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Þórólfur Árnason, fyrrverandi borg-
arstjóri og margreyndur forstjóri,
fagnaði fimmtugsafmæli sínu á laug-
ardaginn var. Veislan var hin glæsi-
legasta og skemmtu gestir sér vel. Þór-
ólfur brá sér út úr bænum í gær og
var á ferðalagi um Gullfoss og Geysi
þegar blaðamaður hafði samband
við hann.
„Það er sól og blíða hérna núna
og frábært veður hjá okkur. Það
má segja að það sé þriðji í afmæli
hjá okkur núna en við ákváðum að
slappa bara af með vinum okkar og
njóta tilverunnar. Svo endum við
daginn í humarveislu á Stokkseyri,
ég held að það gerist bara ekki betra!“
sagði Þórólfur hæstánægður.
Það telst til tímamóta þegar menn
ná fimmtugsaldrinum. Skyldi hann
ekkert verða móðari nú en áður?
„Ha, ha, það hefur nú bara ekkert
reynt á það! Ég er búinn að vera í svo
góðu og rólegu yfirlæti síðan um helg-
ina. Einnig er ég hættur allri knatt-
spyrnuiðkun, en ég tek reglulega á
því í gymminu og reyni að halda mér
í minni kjörþyngd, eða um 80 kíló.
Og það hefur bara tekist ágætlega
þótt ég segi sjálfur frá.“
Veislan var hin glæsilegasta eins og
áður hefur komið fram. Þórólfur naut
þó aðstoðar við undirbúninginn.
„Ég þurfti bara ekkert að
gera sjálfur! Ég fór nú
bara í Kríngluna og fékk
mér hamborgara þegar
aðrír voru að stressast í
undirbúningi.“
„Égþurfti bara ekkert að gera sjálfur!
Ég fór nú bara í Kringluna og fékk mér
hamborgara þegar aðrir voru að stress-
ast 1 undirbúningi. Ég er svo heppinn
að eiga góða að sem lögðu mér lið í
þessu. Eiríkur Hjálmarsson og Svan-
hildur Konráðsdóttir sáu um dag-
skrána fyrir mig og Marín Magnús-
dóttir, fyrrverandi starfsmaður minn
hjá Tali, sá um þetta praktíska. Svo
var sungið og dansað. Egill Ólafsson
söng fyrir mig og mamma og pabbi
stigu fyrsta dansinn. Ég söng reyndar
líka Ó, mín flaskan fríða, sem er nú
eina lagið sem ég kann held ég! Þetta
var alveg stórskemmtilegt."
En hvað fá menn í afmœlisgjöf
sem eiga svo til allt?
„Ég fékk nú eiginlega enga pakka
skal ég segja þér. En það er líka góð
og gild ástæða fyrir því. Ég ákvað
að fá fólk frekar til að gefa andvirði
gjafanna til Bergmáls, líknar- og
vinafélagsins. Og samkvæmt því
sem mér skilst þá fengu þau dá-
góða upphæð til afnota og vil ég
nota tækifærið og þakka gestum
mínum og vinum fyrir framlag
sitt. “
En hvað er síðan framundan?
„Nú fer ég bara til vinnu á morgun
og sinni störfum mínum hjá Skýrr.
Þetta er frábær vinnustaður með
svipuðu fólki og var hjá Marel og
Tali þar sem ég var áður. Ég er
reyndar kannski ekki sá tæknileg-
asti hvað tölvukunnáttu varðar,
en það eru líka aðrir betur til
þess fallnir en ég sem sinna þeim
málum. Síðan er auðvitað það mik-
ilvægasta, en í dag (i gær) eru liðin
32 ár síðan ég kyssti hana Möggu
mína fyrst og það verður haldið
upp á það með kossi, ég smelli
á hana einum, jafnvel tveimur!"
sagði Þórólfur að lokum, kominn
með stút á munninn ...
BLOGGARINN...
Refsivert RÚV?
„ 3. grein laga frá árinu 1983 um þjóð-
söng Islendinga segir: „Þjóðsönginn
skal ekki flytja eöa
birta í annarri mynd
en hinni uppruna-
legu gerð. Ekki er
heimilt að nota
þjóðsönginn á
nokkurn hátt i
viðskipta- eða aug-
lýsingaskyni." Ég astla
ekki að endurrita skrumskælinguna,
en hún varðaði bæði augiýsingar og
viðskipti um álver i Hafnarfirði. Nú er
að sjá hvort að þetta muni eiga sér
eftirmála eður ei.“
Eyþór Arnalds
ea.blog.is
Purfa að hlýta
landslögum
„Þátturinn varð enn merkari fyrirþær
sakirað ihonum voru landslög brot-
in og þjóðsöng Islendinga breytt og
settur við hann nýr texti i formi áde-
ilu á stóriðju og orkuver hér á landi.
Spurningin er hverjar afleiðingarnar
verða og hvort ríkissaksóknari muni í
framhaldinu ákæra Spaugstofumenn
og útvarpsstjóra, sem ábyrgðar-
mann efnisins? Hér virðist ekki neinn
vafi á ferðinni. Og skiptir engu máli
þótt okkur finnist að Spaugstofan
sé frábær og fyndin, það breytir
ekki þvtað þeirhljóta að lúta sömu
landslögum
og aðrir.“
Viðeigandi refsing
„Refsingin: að þurfa að horfa á alla
þætti Svínasúpunnar, Strákanna og
Stelpnanna. Verri refsingu geta þes-
sir drengir varla fengið.
En þótt sumum finn-
ist lögin asnaleg,
eru þetta gildandi
lög ilandinu og
eftirþeim verðurað
fara.“
%.W •
Snorri G. Bergsson
hvala.blog.is
STÝRISENDAR,
SPIIMDILKÚLUR
/ 'y Vagnhöföa 7
fjALLABÍLAR 110 Reykjavík
Stál og stansar ehf. Sími: 51 7 5000
Su doku
3 7 1 9
5 3 4
7 8 1
4 2 3 7
6 8 1 9 4 3
9 2 1
5 6 4 8
8 2 6 5
1 6
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upþ eru gefnar.
HERHIAN
eftir Jim Unger
B Ifl
© LaughingStock Intomational lnc./dlst. by Unltod Modia, 2004
Við erum í okkar annarri brúðkaupsferð,
passaðu að herbergin okkar liggji ekki saman.