blaðið - 27.03.2007, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2007
blaðiö
INNLENT
SAMFYLKING
Sahlin og Schmidt heiðursgestir
Mona Sahlin, nýkjörinn formaður sænska Jafn-
aðarmannaflokksins, og Helle Thorning Schmidt,
formaður danska Jafnaðarmannaflokksins, verða
heiðursgestir á landsfundi Samfylkingarinnar í apríl.
Sahlin og Schmidt munu ávarpa landsfundinn.
KYNFERÐISAFBROT
Gróft brot gegn tveimur ungum stúlkum
Rannsókn vegna máls hálfþrítugs karlmanns, sem talið er
að hafi framið gróf kynferðisafbrot gegn tveimur fimm ára
gömlum stúlkum, hefur verið vísað til embættis ríkissak-
sóknara að því er fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarps-
ins í gær. Maðurinn var handtekinn í Vogahverfi í janúar.
ÍSLANDSHREYFINGIN
Ekki á fundum um auglýsingar
(slandshreyfingin hefur ekki tekið þátt í viðræðum
stjórnmálaflokkanna um takmarkanir á auglýsingum
fyrir alþingiskosningarnar í vor. „Við höfum ekki
verið boðuð á neinn fund,“ sagði Jakob Frimann
Magnússon, einn aðstandenda hreyfingarinnar.
Banaslysið:
Safnað í
þágu barna
Stofnaður hefur verið styrkt-
arreikningur fyrir fjölskyldu
Lísu Skaftadóttur, konunnar
sem lést í umferðarslysi á
Suðurlandsvegi á miðviku-
dagskvöld. Lísa lætur eftir sig
fimm börn og eiginmann. Tvö
barnanna eru fjögurra ára, eitt
þeirra átta ára og tvíburar á
fermingaraldri. Þá á elsta barn
hennar, sem er 25 ára, eitt barn.
Númer styrktarreiknings-
ins er 1169-05-401000 og
kennitalan 111161-5649.
Kárahnjúkavirkjun:
Komust ekki
strax í bæinn
Uppistand varð á Kárahnjúka-
virkjun um helgina þegar of lítil
rúta kom til að flytja ítalska
verkamenn í helgarleyfi. Urðu
verkamennirnir pirraðir yfir
því að komast ekki strax til
Egilsstaða og neituðu nokkrir
nýir verkamenn að yfirgefa rút-
una. Önnur rúta kom hins vegar
stuttu síðar og komust allir sem
vildu í helgarleyfi.
Eiríkur Bergmann Einarsson um afstöðu Sjálfstæðisflokksins til ESB:
Davíð talaði fyrir aðild
■ Neikvæð afstaða gegn hefð Sjálfstæðisflokksins ■ Orðfærið annað eftir formannsskiptin
Eftir Atla isleifsson
atlii@bladid.net
„Sjálfstæðisflokkurinn er eini hóf-
sami flokkurinn í Evrópu, hægra
megin við miðju, sem er andvígur
aðild síns lands að Evrópusam-
bandinu,“ segir Eiríkur Bergmann
Einarsson, dósent í stjórnmála-
fræði og forstöðumaður Evrópu-
fræðaseturs Háskólans á Bifröst.
„Jafnvel má halda því fram að nei-
kvæð afstaða sumra forystumanna
Sjálfstæðisflokksins gangi gegn
hefð flokksins. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur ávallt verið mjög alþjóða-
sinnaður flokkur og hefur jafnan
verið talsmaður þátttöku íslands í
tilteknum alþjóðastofnunum, sam-
anber NATO og EFTA og svo Evr-
ópska efnahagssvæðinu.“
í nýrri bók Eiríks Bergmanns,
Opið land - Staða Islands í samfé-
lagi þjóðanna, segir að sjálfstæðis-
menn hafi talað mjög hlýlega um
Evrópusambandsaðild á sínum
tíma. I viðtali við Hannes Hólm-
stein Gissurarson í
bókinni Island
Arvet fra
Thingvellir
frá árinu
það vera skoðun sína að hvað sem
öðru líður verði stærsta pólitíska
verkefni íslendinga á næstu árum
hvernig við gætum okkar eigin
hagsmuna í breytilegum heimi.
,Við verðum að laga okkur að þeirri
staðreynd að meirihlutinn af við-
skiptum okkar er við Evrópubanda-
lagið; ég hef opinberlega lagt til
að við sækjum um aðild.“ Eiríkur
segir að í aldamótanefnd Sjálfstæð-
isflokksins hafi svipaðri afstöðu
verið lýst.
Eiríkur segir að einhverra hluta
vegna hafi á næstu árum eftir
1990 orðið einhver skil og í aðdrag-
anda þingkosninganna árið 1995
kúvendir Sjálfstæðisflokkurinn í
afstöðu sinni og mælir gegn þátt-
töku í Evrópusambandinu. „Þessi
tvö öfl höfðu togast á í Sjálfstæðis-
flokknum, það er uppruni flokks-
ins í sjálfstæðisbaráttunni og svo
hin hliðin sem talar fyrir einstak-
lingsfrelsi. Sá þáttur sem talar fyrir
sjálfstæðisbaráttu varð þannig
ofan á í flokknum.“
Eftir að hafa rætt við Jón
Baldvin Hannibalsson,
1990, segir
DavíðOdds-
son, þáver-
andi borg
Breytt afstaða Sjalfstæöisflokksins Eirikur segir
eitthvað í persónulegum samskiptum Daviðs og Jóns
Baldvins hafa haft þessi áhrif.
fyrrum formann Alþýðuflokksins,
og skoðað þennan feril segist Ei-
ríkur hafa séð að það hafi einnig
verið eitthvað í persónulegum
samskiptum leiðtoga þáverandi
ríkisstjórnarflokka, Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðuflokksins, sem
hafði þessi áhrif. „Ef við skoðum
ummæli Davíðs frá árinu 1990,
þá talar hann eins og sannfærður
Evrópusinni. Þá er ákveðið að fara
í EES-málið og síðan kemur Jón
Baldvin og Alþýðuflokkurinn með
þetta útspil að Island eigi að sækja
um aðild að ESB. Davíð er látinn
taka afstöðu til þessa útspils í be-
inni útsendingu þannig að
flokkurinn fékk aldrei ráð-
rúm til að takast á við
málið. Þar var línan
tekin.“
Eiríkur segir að
eftir því sem á leið
Davið talaði
áður eins og
sannfærður
Evrópusinni
Eiríkur Bergmann
Einarsson
dósent í stjórnmálafræði
hafi Davíð herst í afstöðunni og
að hann lýsi loks Evrópusamband-
inu sem „einu ólýðræðislegasta
skriffinnskubákni sem menn hafa
fundið upp“. „Það er svolítið langt
milli þeirrar yfirlýsingar og hinnar
frá árinu 1990. Hún gengur gegn
fyrri stefnu flokksins þegar kemur
að fjölþjóðlegu samstarfi og alger-
lega gegn sambærilegum flokkum
erlendis," segir Eiríkur.
Eiríkur segir stefnu flokksins
aðra eftir að Davíð hætti. „Orð-
færið er allt annað. Það tekur tíma
að losna um Iímið.“
Fermingargjafir
fyrir poppara, rappara og rokkara
Tama Suuingstar
trommusett með
statífum og diskum
Hljóðfœrahúsið Laugavegi 176 105 Reykjavík auuiu.hljodfaerahusid.is info@hljodfaerahusid.is Sími 591 5340
Fermingartilbod 79.900 kr.
Steingrímur J. Sigfússon:
Engar þreifingar
„Þetta er argasta þvæla og svo
fjarri raunveruleikanum sem
frekast geturhugsast,” sagði Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
VG, um þær fullyrðingar sem lesa
má á vefsíðu Péturs Gunnarsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóra
þingflokks Framsóknarflokks.
Þar segir að Steingrímur og Geir
H. Haarde hafi hist á einkafundi í
vikunni sem leið. Þetta segist síðu-
skrifari hafa eftir heimildum sem
hann treysti algjörlega. Sagt er að
Steingrímur hafi óskað eftir fund-
inum en ekki verði fullyrt hvað
rætt var á fundinum.
„Það fyrsta sem kemur í hugann er
að Steingrímur hafi verið að plægja
jarðveginn fyrir stjórnarsamstarf
að kosningum loknum,” segir Pétur
Gunnarsson.
„Þetta er háttur spunameistara,”
sagði Steingrímur J. Sigfússon.
Ekki náðist í Geir H. Haarde í gær.
Situr inni í mánuð:
Beitti löggur
ofbeldi
Karlmaður á þrítugsaldri var
dæmdur (Héraðsdómi Reykjavík-
ur fyrir að ráðast á tvo lögreglu-
þjóna er þeir hugðust handtaka
hann og slá annan þeirra í
andlitið en sparka í öxlina á
hinum. Maðurinn var dæmdur í
fjögurra mánaða fangelsi, þar af
eru þrír skilorðsbundnir. Maður-
inn neitaði sök og sagði að þvert
á móti hefðu lögregluþjónarnir
ráðist á sig og slegið sig í andlitið.
Þá var tvítug stúlka dæmd til
fjögurra mánaða skilorðsbund-
innar fangelsisvistar fyrir að
hafa sparkað í maga lögreglu-
þjóns og reynt að bíta í hönd
annars. Játaði hún á sig brotið.
Steingrímur J. Sigfússon
Alvarlegar ávirðingar á Geir H.
Haarde sem er i samstarfi með
Framsóknarflokknum