blaðið - 27.03.2007, Síða 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2007
blaði6
Traust og gott bankakerfi „VG vill hins vegar traust og gott
bankakerfi á Islandi og vildum við á sínum tíma halda einum
þjóðbanka íeign þjóðarinnar, sem kjölfestu í fjármálalífi okkar og til
þess að koma í veg fyrir að bankakerfið væri allt flutt úr landi. “
Fimm staðhæfingar VG gegn 5
staðhæfingum Framsóknar
Guðni Ágústsson, varaformaður
Framsóknarflokksins, skrifar grein
í Morgunblaðið um helgina og lýsir
þungum áhyggjum sínum yfir því
að Vinstri græn kunni að komast til
áhrifa í Stjórnarráði íslands. Hætt
sé við því að ísland yrði þá hreinlega
VOGIlt
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu sambund
m
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
stöðvað! Guðnigerirlesendum Morg-
unblaðsins grein fyrir áhyggjum
sínum í fimm liðum og segir að eft-
irfarandi gæti hæglega gerst:
„1. EES-samningi verði sagt upp.
EES er viðskiptabrú okkar til Evr-
ópu, henni fylgja miklir peningar
heim og atvinna í hálaunastörfum.
2. Að íslendingar segi sig frá
NATO-samstarfi.
3. Að útrás bankakerfisins verði
stöðvuð.
4. Að með hækkuðum sköttum á
fólk og fyrirtæki sjái undir iljarnar
á atvinnulífinu úr landi.
5. Höfnun á virkjanir og alla stór-
iðju þýðir ásamt hinu sem upp var
talið, atvinnuleysi og landflótta.“
Þessu vil ég svara með eftirfar-
andi hætti:
1. Guðni Ágústsson var einn þeirra
sem greiddu atkvæði gegn EES-
samningnum á sínum tíma. Það
gerðu ýmsir þeirra sem nú styðja VG
vissulega einnig. í okkar hópi eru
ýmsir - þar á meðal ég - sem ekki
hafa tekið undir að EES-samningur-
inn hafi verið Islendingum eins hag-
felldur og aðrir vilja vera láta. Á dag-
skrá VG er þó ekki úrsögn úr EES
eins og varaformaður Framsóknar-
flokksins staðhæfir ranglega.
2. Það er rétt að VG telur hags-
munum Islands ekki best borgið
innan hernaðarbandalagsins NATO.
Náið samkrull með árásargjörnum
herveldum, sem sækjast eftir auð-
lindum þjóða víðs vegar um heim-
inn, er vægt sagt varhugavert. Því
miður hefur þetta enn sem komið
er verið minnihlutasjónarmið á Al-
þingi þótt úti í þjóðfélaginu blási fer-
skari og gagnrýnni vindar. Varafor-
maður Framsóknaflokksins virðist
hafa staðnað í gömlu fari. Meira að
segja Íraksstríðið virðist ekki hafa
hreyft við þessum ágæta talsmanni
síns flokks.
Hvor flokkurinn
skyldi fylgja
hófsamari,
ábyrgari og
ttlátari stefnu?
Umrœðan
Ögmundur Jónasson
3. Hver hefur talað um að stöðva
útrás bankakerfisins? Sjálfur sit ég
í stjórn stærsta lífeyrissjóðs lands-
ins, LSR, sem fjárfest hefur víða um
lönd til þess að dreifa áhættu sinni
sem mest. Þetta hef ég stutt. VG vill
hins vegar traust og gott bankakerfi
á Islandi og vildum við á sínum tíma
halda einum þjóðbanka í eign þjóð-
arinnar, sem kjölfestu í fjármálalífi
okkar og til þess að koma í veg fyrir
að bankakerfið væri allt flutt úr
landi. Því miður virðist eignarhald
bankanna að miklu leyti hafa verið
flutt út úr landinu og í mörgum til-
vikum inn í erlend skattaskjól. Þetta
virðist enginn nema VG treysta sér
til að ræða opinskátt og veldur því
trúlega auðmannaótti sem herjar á
marga stjórnmálamenn. Þeir líta á
það sem goðgá að leyfa sér að gagn-
rýna hina nýju milljarðamæringa
Islands.
4. Hvar er að finna skattahækk-
unartillögur VG? Breytt skatthlut-
fall á fjármagnstekjur með nýju
frítekjumarki, eins og VG hefur
lagt til, myndi aflétta sköttum af
öllum smásparendum í landinu,
90% núverandi greiðenda fjár-
magnstekjuskatts! Stóreignafólkið
myndi hins vegar verða látið sitja
við sama borð og launafólk hvað
skatthlutfall áhrærir. VG var and-
vígt því að aflétta hátekjuskatti eins
og ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks gerði og almennt
höfum við gagnrýnt áherslur ríkis-
stjórnarinnar í skattamálum einfald-
lega vegna þess að við viljum stuðla
að jöfnuði, ekki ójöfnuði. Út á það
ganga skattatillögur VG.
5. Við viljum hlífa atvinnulífi
landsins við frekari ruðnings-
áhrifum stóriðjunnar. Þenslu og
háa vexti má beinlínis rekja til stór-
iðjustefnu Framsóknarflokksins.
Sá flokkur hótar nú áframhaldandi
áherslu á stóriðju og styður næstum
þreföldun í Straumsvík, nýtt álver
á Húsavík og í Helguvík auk Reyð-
arálsverksmiðjunnar. Þetta styður
Framsóknarflokkurinn og kallar
þá öfgamenn sem gagnrýna þessa
stefnu.
Hvor flokkurinn skyldi fylgja hóf-
samari, ábyrgari og réttlátari stefnu,
Framsóknarflokkurinn eða Vinstri-
hreyfingin - grænt framboð? Svari
hver fyrir sig.
Höfundur er þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs
Greinin er tekin af www.ogmundur.is