blaðið - 27.03.2007, Qupperneq 18
26 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2007
blaðið
KoWái
kolbrun@bladid.net
Sjaldheyrðar
ljóöaperlur
Rmmtudagskvöldið 29. mars
klukkan 20 heldur tenórsöngv-
arinn Jónas Guðmundsson
söngtónleika í Salnum ásamt
Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur
píanóleikara. Á efnisskrá eru
verk eftir Beethoven, Liszt, Re-
spighi og Rachmaninoff.
Jónas Guðmundsson óperu-
söngvari hefur verið búsettur í
Berlín síðan hann útskrifaðist
frá Royal Academy of Music
árið 2005 og hefur gert þaðan
út sem óperusöngvari. Eftir að
hafa debúterað í hlutverki Lind-
oro um haustið 2005 í Treviso
á Ítalíu hefur hann m.a. sungið
með hinni virtu sumaróperu
Glyndebourne Festival Opera í
Englandi og einnig starfað við
óperuhúsið í Bremerhaven í
Þýskalandi. Þetta verða þriðju
tónleikar Jónasar í Salnum en
áður hefur hann sungið á stór-
tónleikum Rotarý í janúar árið
2004 og á Tíbrá ásamt Jónasi
Ingimundarsyni í febrúar 2006.
Næstu verkefni Jónasar eru
einsöngur í Messu í as-dúr eftir
Schubert á tónleikum Söngsveit-
arinnar Fílharmóníu í Langholts-
kirkju þann 1. og 3 apríl nk. og
hlutverk Tebaldo í óperunni I
Capuletti e I Montecchi eftir
Bellini með Grange Park Opera
í Englandi næsta sumar.
Þýsk rómantík
á vortónleikum
Fílharmóníunnar
Vortónleikar Söngsveitarinnar
Fílharmóníu verða haldnir í
Langholtskirkju 1. og 3. apríl
nk. kl. 20:00 báða dagana. Flutt
verða þrjú kórverk frá 19. öld
eftir meistarana Brahms, Mend-
elssohn og Schubert.
Einsöngvarar á tónleikunum
eru Hulda Björk Garðarsdóttir,
Nanna Maria Cortes, Jónas
Guðmundsson og Alex Ashw-
orth. SifTulinius Ieiðir hljómsveit-
ina og Magnús Ragnarsson
stjórnar. Miðar eru seldir á
www.midi.is, hjá kórfélögum og
við innganginn.
Eflheilsa
9L1 Jl -M6uþ»6gott
C-IOOO
Extra sterkt,
náttúrulcgt C-vítamln
meö rósaberjum, rútlnl
og blóf lavónlöum
60 tÖflur
Sólargeislinn í skammdeginu
Þaö aö veröa geðveikur er
stundum rétta svarið viö
raunveruleikanum.
Philip K. Dick
Afmælisborn dagsms
GLORIA SWANSON LEIKKONA, 1899
QUENTIN TARANTINO LEIKSTJÓRI, 1963
SARAH VAUGHAM SÖNGKONA, 1924
Glæpasögur verða
að sjónvarpsþáttum
amkvæmt heimildum
Blaðsins munu Ævar
Örn Jósepsson og Saga
Film skrifa undir samn-
ing um kvikmyndarétt-
inn á þremur glæpasögum Ævars
síðdegis í dag. Þetta eru bækurnar
Skítadjobb, Svartir englar og Sá yð-
ar sem syndlaus er. í samningnum
mun einnig felast forkaupsréttur
á kvikmyndarétti á næstu bókum
höfundarins. Það stefnir því í að
fyrsta sjónvarpskrimmaserían
sem byggir á íslenskum glæpasög-
um og karakterum úr þeim verði
að veruleika áður en langt um líð-
ur.
Lögguteymi í aðalhutverki
Stefnt er að gerð sjónvarpsþátta
upp úr verkum Ævars, þar sem
hver saga skiptist í tvo eða þrjá
þætti. „Það er rétt,” sagði Ævar
þegar þetta var borið undir hann.
„Þetta er planið - en það er auðvit-
að stórhættulegt að blaðra of mik-
ið um svona lagað áður en skrifað
er undir.”
Mun ætlunin vera að gera syrpu
á borð við Taggart, Morse og fleiri
slíkar, þar sem lögguteymið úr sög-
um Ævars verður í aðalhlutverki.
Og það verður byrjað á byrjuninni
- fyrsta þáttaröðin verður unnin
upp úr fyrstu bókinni, Skítadjobbi.
„Það veltur auðvitað á því hvernig
það gengur hvert framhaldið verð-
ur. En ég sé enga ástæðu til að ætla
annað en að þetta gangi vel, með
fyrirtæki eins og Saga Film sem
framleiðanda,” segir Ævar. Hann
segist alltaf hafa séð glæpasögur
sínar fyrir sér sem sjónvarpsþætti
fremur en kvikmyndir, enda
veruleika áður en lanot
henti þetta form betur fyrir hinn
evrópska krimma. „Bíó er hasar,
spenna og læti en gátuformið með
samfélagspælingum og sömu per-
sónum er rakið sjónvarpsefni. Svo
hafa góðir breskir og norrænir
krimmar lengi verið mitt eftirlæt-
issjónvarpsefni.“
Glæpasagan Blóðberg, sem kepp-
ir um Glerlykilinn fyrir Islands
hönd nú í vor, mun ekki vera hluti
af pakkanum sem samið hefur ver-
ið um. „Nei, Blóðberg er svona inn-
an sviga í þessu dæmi,“ segir Ævar
Örn, „enda ekki hlaupið að því að
filma hana í dag. Sögusviðið er
jú Kárahnjúkar á byggingartíma
virkjunarinnar, að stórum hluta
ofan í gljúfrum og göngum sem nú
eru full af vatni. Á móti kemur að
kvikmyndagerðarmenn hafa ýmis
ráð uppi í erminni og hjá Saga Film
er til mikið efni frá Kárahnjúkum
frá því þeir unnu heimildarmyndir
um virkjunina fyrir Landsvirkjun.
Þannig að það er svo sem ekkert
útilokað í þessum efnum heldur.“
Ekki viðkvæmur fyrir breytingum
Ævar Örn mun skrifa handritið
að fyrstu syrpunni undir hand-
arjaðri Sigurjóns Kjartanssonar,
en Óskar Jónasson mun leikstýra
glæpaþáttunum. „Við Sigurjón
stefnum að því að‘ skila handriti
að Skítadjobbi síðsumars og ef allt
gengur upp verður jafnvel hægt að
hefja tökur fljótlega á næsta ári.
Skítadjobb er vetrarbók og hentar
vel til upptöku á þorranum," segir
Ævar Örn. Hann segir að nokkrar
breytingar þurfi að gera þegar bók-
in er færð í handrit. „I Skítadjobbi
eru löggurnar Árni og Stefán nán-
ast einir í einhverjum bitastæðum
hlutverkum en það er ekki flókið
mál að skrifa Katrínu og Guðna
inn í stærri hlutverk. Ég er ekkert
viðkvæmur fyrir því að breyta og
laga. Ég hlakka eiginlega bara til
að láta Katrínu og Guðna gera eitt-
hvað af sér í Skítadjobbi. Það voru
mistök á sínum tíma að hafa þau
ekki í stærri hlutverkum þar.“
Ekkert hefur enn verið ákveðið
um leikaraval. „Leikaravalið er
auðvitað hausverkur,“ segir Ævar
Örn. „En við finnum út úr því, við
erum bara rétt að byrja. Þetta er
líka spurning um það hvað maður
heldur fast í lýsingar á persónum
í bókunum. Persónurnar hafa sitt
útlit i hausnum á mér en ég veit að
þær hafa líka sitt útlit í kollinum
á lesendum. Þetta er eitthvað sem
kemur í ljós og ég efast ekki um að
við finnum gott fólk i hlutverkin.
Útlit leikaranna skiptir allavega
minna máli en leikhæfileikarnir.
Og svo held ég að það sé rétt að
ganga frá samningunum um gerð
þáttanna áður en maður fer of
djúpt í slíkar pælingar."
Singin' in the
Rain frumsýnd
Á þessum degi árið 1952 var kvik-
myndin Singin’ in the Rain frum-
sýnd í New York. Myndin er af mörg-
um talin besta söngvamynd í sögu
Hollywood. í myndinni er fjallað
á gamansaman hátt um vandræði
kvikmyndafólks við að aðlagast
framleiðslu talmyndanna. Gene
Kelly fór með aðalhlutverkið í mynd-
inni og atriðið þar sem hann dansar
í rigningunni er með þeim frægari
í kvikmyndasögunni. Með önnur
hlutverk fóru Donald O’Connor og
Debbie Reynolds. Rétt er að nefna
hlut leikkonunnar Jean Hagen sem
fór með bitastætt aukahlutverk.
Hún lék sjálfhverfa og heimska stór-
stjörnu af stakri snilld og stal sen-
unni í hvert sinn sem hún birtist.
Stanley Donen leikstýrði myndinni
en Gene Kelly var aðstoðarleikstjóri.
Myndin er fyndin, töfrandi og róm-
antísk og dans- og söngvaatriðin
hreint frábær.