blaðið - 09.05.2007, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2007
blaðið
VEÐRIÐ í DAG ÁMORGUN VÍÐA UM HEIM
El nyrðra
Austan og noröaustan 3-8 m/s. Skýjað
meö köflum og dálítil él við norður- og aust-
urströndina, en sums staöar skúrir sunn-
antil á landinu. 0 til 10 stiga hiti á morgun,
hlýjast sunnan- og suðvestanlands.
Kólnar
Hæg norðlæg átt og víða létt-
skýjað, en sums staðar stöku
skúrir eða él. Hiti 0 til 8 stig,
mildast syðst, en næturfrost
víðast hvar.
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlin
Chicago
Dublin
Frankfurt
27
14
22
13
26
13
13
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
12
14
8
11
18
23
14
New York
Orlando
Osló
Palma
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
13
18
13
24
17
13
6
Á FÖRNUM VEGI
Ferðu oft á kaffihús?
Freymar Marinósson
„Nei, ég bý úti á landi.”
Svavar Guðni Svavarsson.
„Já, ef ég er erlendis.”
Anne-Kathleen Bannach
„Já, er einmitt á leiðinni núna.”
Monika Wiesep
„Já, mjög oft.”
Helga V. Eysteinsdóttir
„Já, við vinkonurnar förum mjög
oft um helgar."
Islenskir aðalverktakar í mál vegna Héðinsfjarðarganga
Vilja milljónabætur
fyrir frestun útboðs
■ Undirbúningur tilboðsins kostaði 50 milljónir BSprengingar tefjast sökum vatnsleka
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
Islenskir aðalverktakar eru að undi-
búa málssókn gegn Vegagerðinni
vegna frestunar á útboði vegna
Héðinsfjarðarganga árið 2003. Karl
Þráinsson, aðstoðarforstjóri ÍAV,
segir undirbúning að málssókninni
hafinn en gat ekki tjáð'síg frekar um
málið.
Verkið var upphaflega boðið út í
júlí 2003 og áttu IAV og sænska fyrir-
tækið NCC lægsta tilboð. Það hljóðaði
upp á 6,2 milljarða sem var 3 prósent
yfir áætlun Vegagerðarinnar. Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra hafn-
aði öllum fjórum tilboðunum sem
bárust í verkið og ákvað að fresta
verkinu um tvö ár. Sturla bar því við
að frestunin væri til komin af ótta
við þenslu vegna álvers- og virkjana-
framkvæmda á Austurlandi. ÍAV
bauðst á sínum tíma að flýta verkinu
til að draga úr þensluáhrifum en því
var hafnað.
Samningar um bætur náðust ekki
Forráðamenn ÍAV sættu sig ekki
við þessa niðurstöðu og höfðuðu mál
gegn Vegagerðinni. Kröfðust þeir
bóta vegna útboðskostnaðar og áætl-
aðs hagnaðarmissis af verkinu. Hér-
aðsdómur Reykjaness sýknaði Vega-
gerðina en Hæstiréttur hnekkti þeim
úrskurði og dæmdi Vegagerðina
skaðabótaskylda. Áður hafði kæru-
nefnd útboðsmála úrskurðað að
ólögmætt hafi verið að hafna öllum
tilboðum í verkið og áð Vegagerðin
væri skaðabótaskyld vegna kostn-
aðar við undirbúning tilboða. Eftir
að dómur féll í Hæstarétti vildu í AV
semja við Vegagerðina um bætur en
Karl segir að samningar hafi ekki tek-
ist og því sé þessi leið farin.
ÍAV hafa áður sagt að kostnaður
fyrirtækjanna við tilboðið sem
hafnað var hafi hlaupið á tugum
milljóna króna eða allt að 50 millj-
ónum. Einnig er ljóst að fyrirtækin
hafi misst af nokkrum hagnaði,
ekki síst í ljósi þess að tilboð ÍAV
og NCC var nokkuð yfir áætlun
Vegagerðarinnar.
Vatnsleki tefur sprengingar
Útboðið var endurtekið og áttu Há-
fell og tékkneska fyrirtækið Metrostav
lægsta tilboð í verkið. Framkvæmdir
hófust í júni í fyrra og hófust boranir
síðastliðið haust. Tafir hafa þó orðið
á verkinu þar sem ekkert hefur verið
hægt að sprengja Ólafsfjarðarmegin
í göngunum sökum mikils vatnsleka,
en í einni sprengingunni opnaðist
fyrir vatnsæð sem ekki hefur verið
hægt að fylla upp í. Efni sem á að
koma í veg fyrir lekann er ekki til á
landinu og er því búið að panta það að
utan. Vinna við göngin Sigluíjarðar-
megin er þó enn í fullum gangi.
Héðinsfjarðargöngum er ætlað
að tengja Ólafsfjörð og Siglufjörð
sem í fyrra sameinuðust í eitt sveit-
arfélag undir heitinu Fjallabyggð.
Göngin sem eru tvenn eru samtals
io,6 kílómetra löng. Göngin milli
Siglufjarðar og Héðinsfjarðar eru
3,7 kílómetra löng og göngin milli
Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar eru 6,9
kílómetra löng. Áætlað er að göngin
verði opnuð fyrir almennri umferð í
árslok 2009.
f
OOLDEM SIl.MO 10*2
Return Flcx 270•
CMldren's Frsm*:
mnaiiuTCB mrt num
barna-
gleraugu
hafa hlotlð
uerðlaun
fyrirhönnun
og gæði.
>arang«
Þverholti 14
105 Reykjavík
s. 511 3311
Bobby Fischer ósáttur við framieiðslu heimildarmyndar:
Reynir að hindra sýningu
„Ég er að berjast við að skilja bréfið
því það kemur hvergi fram hvað þeir
vilja,“ segir Friðrik Guðmundsson
leikstjóri. Hann leikstýrir heimild-
armynd sem ber vinnuheitið „Vinur
minn Bobby“ og fjallar um vináttu
skákmeistarans Bobby Fischers og
Sæmundar Pálssonar, Sæma rokk.
Stuðningshópur Fischers hefur sent
aðstandendum myndarinnar bréf
þar sem hópurinn lýsir yfir óánægju
Fischers með framleiðsluna.
1 bréfinu segir að viðfangsefni
myndarinnar sé í miklu ósamræmi
við það sem um var samið á sínum
tíma og að brögð hafi verið í tafli.
Einar S. Einarsson, formaður stuðn-
ingshópsins, segir að upphaflega
hafi verið samið um að gera frétta-
mynd fyrir íslenskt sjónvarp, en
Bobby Fischer Er ósáttur við gerð
heimildarmyndar sem fjallar um vin-
áttu hans og Sæma rokk.
nú standi til að gera stórmynd sem
ætluð er á alþjóðlegan markað. Við
það sætti Fischer sig ekki. Segir Fi-
scher að það sé í óþökk hans að inn-
lendir og erlendir aðilar styðji fjár-
hagslega gerð umræddrar myndar
eða taki hana til sýningar.
Jafnframt er tekið fram í bréfinu
að Fischer hafi aldrei undirritað
samning eða leyfi fyrir umræddum
þætti. Friðrik segir hins vegar að
gert hafi verið heiðursmannasam-
komulag við Fischer og að ekki hafi
verið sett skilyrði fyrir efnistökum
myndarinnar. Hann er ósáttur við
orðalag bréfsins og hefur óskað eftir
fundi með stuðningsnefndinni til
að skýra út efni bréfsins.
Myndin verður tilbúin til sýn-
ingar í desember og heldur Friðrik
ótrauður áfram með gerð hennar.
„Ég klára alltaf það sem ég byrja á
og skila myndinni af mér til þeirra
aðila sem hafa ákveðið að kaupa
myndina.“