blaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 18

blaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 18
H 26 MIÐVIKUDAGUR 9. MAI2007 blaðið KoUft kolbrun@bladid.net USTIH ÁOSTJÚBm mtL(Fl Að stjórna eigin lífi JPV utgáfa hefur sent frá sér bókina Listin að stjórna eigin lífi - virkjaðu þinn innri kraft eftir Randi B. Noyes sem hefur selst í meira en 50.000 eintökum í Nor- egi frá því að hún kom fyrst út þar árið 1995 og verið þýdd á fjölmörg tungumál. (sak Harðarson þýðir. Bókin fjallar um sjálfstjórn í verki og byggir meðal annars á fjölbreyttri þekkingu á tilfinninga- greind, það er hæfileikanum til að bera kennsl á, skilja, bregðast við og stýra tilfinningum sínum með það fyrir augum að nýta þær til að skaþa það líf sem maður vill lifa. Randi B. Noyes er sérhæfður stjórnendaþjálfari og eftirsóttur fyrirlesari. Hún hefur haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra um ár- angurstengda sjálfstjórn þar sem tilfinningagreind er ein mikilvæg- asta stoðin og starfað náið með fjölda stórfyrirtækja. Bútasaumur tengdur Jónasi Laugardaginn 12. maí kl. 15 verður opnuð í Gerðubergi sýning á bútasaums- verkum sem unnin eru i tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jónasar Hall- grimssonar. Við opnun sýningarinnar verða veitt verð- laun fyrir besta verkið á sýningunni. Sýningin og samkeppnin er haldin í samstarfi við (slenska bútasaumsfélagið. Félagið var stofnað árið 2000 og hefur það markmið að efla áhuga og breiða út þekkingu á búta- saumi. Félagið hefur staðið fyrir sýningum og annað hvert ár hefur verið efnt til samkeppni þar sem unnið er eftir ákveðnum þemum. Tólf bútasaumsteppi bárust í sam- keppnina að þessu sinni og verða þau öll til sýnis í Gerðubergi. Innsetningar í Hafnarborg Fimmtudaginn 10. maíld. 17:00 verður opnuð í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafn- arfjarðar, sýning á innsetningum bandarísku listakonunnar Ruth Boerefijn. Ruth er fædd í Tucson, Arizona. Hún lærði málaralist hjá Calvin College, Painting Grand Rapids, Michigan, og listasögu við Ins- titute of European Studies í Vinar- borg. Að því loknu lá leið hennar til Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam þar sem hún lærði teikningu og textíllist en auk þess er hún með BFA í teikningu og textíllist frá Colorado State University og MFA í höggmynda- list frá the California College of Arts and Crafts í Oakland í Kaliforníu. Ruth Boerefijn hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Á síðast- iiðnu ári var Ruth Boerefijn með einkasýningu í Fresno Art Museum og innsetningu á samsýningu í Sfmoma Artists Gallery. Ruth nefnir sýninguna í Hafnarborg Interior Landscapes en hún samanstendur af innsetn- ingunum Gerrit og Nellie sem listakonan tileinkar foreldrum Eg veit ekki af hverju við erum hérna en ég er nokkuð öruggur um að það er ekki til þess að geta skemmt okkur. Ludwig Wittgenstein ■ N Afmælisborn dagsms JAMES BARRIE RITHÖFUNDUR, 1860 CANDICE BERGEN LEIKKONA, 1946 BILLY JOEL SÖNGVARI, 1949 sinum. Tenging þjóðanna Listasafninu á Akureyri stendur yfir sýning á jarð- listaverkefni Andrews Ro- gers, Lífstaktinum. Ástralski skúlptúristinn Andrew Ro- gers er að stimpla sig inn í listasög- una með risastórum grjótgörðum sem munu mynda keðju umhverf- is heimskringluna. Af þeim tólf umhverfisverkum sem hann afréð að skapa eru sjö orðin að veruleika, þar af eitt á Akureyri. í byrjun reisti Andrew fjögur útilistaverk í Arava-eyðimörkinni í ísrael í mars 1999 og næst í röð- inni var Atacama-eyðimörkin í Chile. Fljótlega á eftir fylgdu Cerro Rico-fjallahéruðin í Bólivíu, Srí Lanka, You Yangs-þjóðgarðurinn í Ástralíu, Akureyri og nágrenni og mánuði síðar Góbí-eyðimörkin í Kína gegnt Qilian-fjallabeltinu við vesturenda Kinamúrsins. í framtíðinni verða fleiri steingarð- ar reistir á Indlandi, í Bandaríkjun- um, Bretlandi og Austur-Evrópu. Þegar verkefninu lýkur munu yfir 5000 manns í sex heimsálfum hafa lagt hönd á plóginn við að reisa steingarðana. Samheitið á þessu jarðlistaverk- efni er Lífstakturinn (Rhythms of Life) og samanstendur hvert mynd- verk vanalega af þremur steingörð- um eða táknum. Hin tvö táknin tengjast viðkomandi svæði, eru öll ævaforn og eftir óþekkta höfunda. Yfirleitt eru aðeins nokkrir kíló- metrar milli táknanna sem eru oft í sjónmáli hvert við annað. Flest verkin eru reist utan alfaraleiðar á friðhelgum stöðum og við gerð þeirra hafa verið notuð mörg þús- und tonna af grjóti. ekki hvaða tákn hann ætti að gera fyrir verkin hér á Akureyri. Eins og á hinum stöðunum var gengið út frá því að reistar yrðu þrjár tákn- myndir hver í nánd við aðra í nátt- úru utan byggða. Tvö tákn áttu að standa með Lífstaktinum og vísa til lands og þjóðar. Ég stakk upp á því að önnur táknmyndin yrði Ak- ureyrarörninn og hin forn rún sem táknaði orðið Nú. Úr þessu varð og Örninn er í Hlíðarfjalli, rúnin Nú efst á Vaðlaheiði og Lífstakturinn í Fálkafelli. Úr góðri fjarlægð má auðveldlega greina þessi tákn sem munu sennilega vera þarna um aldur og ævi. Með þessu er ísland komið skemmtilega inn í tengingu þjóðanna. Segja má að verið sé að binda plánetuna Jörð í eitt hugljúft konseptverk og Akureyri á íslandi er tengd við þau tólf lönd sem þar koma við sögu. Kostnaður við gerð svona verka er á bilinu 20-50 millj- ónir og er alfarið greitt af alþjóð- legum styrktaraðilum Andrews Rogers.“ Hannes Sigurðsson „Segja má að verið sé að binda plánet- 1 una Jörð í eitt hugljúft konsept- verk og Akureyri á Islandi er tengd við þau tólf lönd sem þar koma við sögu." BlaliS/Frlkki Akureyri tengd við tólf lönd Andrew Rogers hafði haft auga- stað á íslandi fyrir verkefni sitt þegar hann komst í samband við Hannes Sigurðsson, forstöðumann Listasafnsins á Akureyri. „Hann sendi mér myndir, ég leit á þær og sagði: „Þetta hlýtur að vera gott fyrir AkureyrarbæG3,“ segir Hann- es. „Andrew gerði sér lítið fyrir og flaug hingað frá Ástralíu og vildi gera þetta strax. Mig óraði ekki fyr- ir hvað þetta yrði mikið mál, ekki síst þeir opinberu leyfismúrar sem þurfti að yfirstíga. Andrew vissi Innsýn í paradís norðursins Meðan verkið var í bígerð í sept- ember fylgdust tveir kvikmynda- gerðarmenn með framkvæmdum og afraksturinn varð 25 mínútna heimildarmynd sem verður frum- sýnd á uppstigningardag í Sjón- varpinu og fer i alþjóðlega dreif- ingu á Discovery Channel í sumar. „Þetta er sennilega mesta áróðurs- mynd um Akureyrarbæ sem gerð hefur verið. Þarna er fjallað um bæinn og menningu hans og gerð verkanna. Þetta er innsýn í parad- ís norðursins þar sem öll lífsins gæði er að finna, fegurðina og hið upplýsta og menningarsinnaða fólk sem setur svip sinn á umhverf- ið,“ segir Hannes. Listasafnið á Akureyri hefur gef- ið út glæsilega 140 síðna bók um jarðlistaverkefnið Lífstaktinn og framkvæmd þess í ísrael, Chile, Bólivíu, Srí Lanka, Ástraliu, Akur- eyri og Kína. Þetta er fyrsta bókin þar sem verkefninu eru gerð heil- dræn skil og fer hún í alþjóðlega dreifingu. Greinarhöfundar eru Hannes Sigurðsson, listfræðingur og forstöðumaður Listasafnins, og hinn virti bandaríski gagnrýnandi Lilly Wei. menningarmolinn Blood stelur skart- gripum krúnunnar Á þessum degi árið 1671 var írski ævintýramaðurinn Thomas Blood, betur þekktur sem Blood kapteinn, handtekinn þegar hann reyndi að stela skartgripum bresku krúnunn- ar. Blood átti ævintýraríkt líf og var andstæðingur konungdæmis- ins. Hinn 9. maí dulbjó hann sig sem prest og hélt til svonefnds Skartgripahúss þar sem skartgrip- ir breska konungdæmisins voru geymdir. Honum tókst að fá gæslu- mann til að afhenda sér vopn og ásamt þremur vitorðsmönnum fór hann inn í húsið. Sonur gæslu- mannsins kom óvart að þeim og varðmenn komu á vettvang og hand- tóku mennina fjóra sem voru settir í Tower of London. Konungurinn, Karl 2., fylltist aðdáun á fífldirfsku Blood og náðaði hann ekki einungis heldur gerði hann að hirðmanni sín- um. Blood varð frægur um allt land og þegar hann lést árið 1680 varð að grafa upp lík hans til að sannfæra almenning um að hann væri raun- verulega látinn.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.