blaðið - 09.05.2007, Side 27
Elskum Skemmtilega
sjónvarpsþætti. Maður kynnist
einhvern veginn persónunum
miklu betur heldur en þegar um
eina og eina mynd er að ræða,
enda fylgir maður þessu fólki
eftir í einn, tvo eða fleiri vetur
og í hvert sinn sem þeir birtast
á skjánum líður manni eins og
gamlir vinir séu komnir í kaffi.
Langar í stjórnmálamenn
sem segja alltaf satt og rétt frá
og þora að viðurkenna mistök
sín eins og til dæmis... nei, okkur
dettur bara enginn í hug.
Líkar við Stjórnmálamenn
sem segja alltaf satt og rétt frá
og þora að viðurkenna mistök
sín eins og til dæmis... nei, okkur
dettur bara enginn í hug.
Vitum ekki með ótrúiega
flokkshollustu þar sem fólk kýs
eingöngu menn en ekki málefni.
Er ekki eitthvað bogið við það að
kjósa sömu flokkana aftur og aft-
ur sama hvernig þeir standa sig,
bara til þess að sýna að maður
standi nú með sínum mönnum?
Bless bless Bílakynningar.
Hvað er málið með landsþekkta
veislustjóra, landsþekkt og jafn-
vel heimsfrægt tónlistarfólk, fín-
an mat og endalaust af drykkjum
til þess að kynna bíl sem enginn
hefur efni á, nema kannski örfáir
nýríkir... og jú, auðvitað plebbarn-
ir sem eyða um efni fram af því
að þeir bara verða.
Þolum ekki Ökuníðinga sem
aka um eins og þeir eigi lífið
að leysa og aka jafnvel niður
mann og annan í leiðinni. Það
er líka fátt jafn hallærislegt og
bassabox í skottinu og hvað er
með spoilera og alls kyns auka
hluti sem eiga að vera rosa töff
en eru rosa halló. Svo þolum við
ekki heldur Hondu Civic sem
sumir halda að sé ógeðslega töff
en það er bara alls ekki rétt.
Kápa sem minnir á
sófasett
Hverju færðu ekki nóg af?
Ég fæ ekki nóg af háhæluðum skóm og á mikið
safn af þeim. Og því hærri sem hællinn er því
fallegri eru þeir. En þetta eru aðallega háhælaðir
spariskór í öllum litum, röndóttir, doppóttir og
svoleiðis.
Hvaða verslanir eru í uppáhaldi?
Erlendis er Urban Outfitters alltaf í miklu uppá-
haldi og svo keypti ég mér æðislegan kjól í
KronKron um daginn þannig að ég verð eiginlega
að segja að sú verslun sé í uppáhaldi hér heima.
Annars er þetta voða misjafnt og kærastinn minn
er eiginlega duglegri að kaupa á mig föt en ég,
allavega þegar kemur að kjólum, það er eiginlega
hann sem hefur keypt alla kjólana í fataskápnum
mínum. Svo kíkir maður auðvitað í H&M þegar
maður er erlendis, það er alltaf hægt að finna
praktíska hluti þar eins og boli og svoleiðis.
Hvað skilur þú aldrei við þig?
Ég held að það sé ekkert sem ég skil aldrei við
mig þó að ýmislegt sé í uppáhaldi. En það er
ekkert ómissandi og ég tek ekki ástfóstri við föt
eða fylgihluti enda er ég rosa dugleg að skipta út
töskum og svoleiðis.
Bestu kaupin?
Það er kápa sem ég keypti í búð í London sem
heitir Primark og er búin endast mér í örugglega
fjóra vetur en hún kostaði aðeins 20 pund minnir
mig. Þetta er loðkápa sem er eiginlega alveg eins
og sófasett, gráblá með rosa mynstri og miklum
loðkraga framan á og niður, þannig að hún er
eiginlega í rússneskum stíl og hefur reynst mér
ótrúlega vel í vetrarhörkunum á Islandi. Þetta eru
án efa bestu kaupin.
Hvað gerirðu til þess að Ifta vel út?
Ég reyni að borða góðan og hollan mat og hugsa
vel um húðina, fer í heitt bað og svoleiðis.
i uppáhaldi
Mamma prjónaði
þennan ullarkjól
á mig og hann er
í miklu uþpáhald
hjá mér. Þennan
kjól hef ég
notað mikið
dagsdaglega.
Skil sjaldan við mig Þetta er hringur sem
ég fékk i jólagjöf frá kærastanum mín-
um. Hringurinn er keyptur í Trilogiu
og er eftir erlenda hönnuði sem
ég man ekki hvað heita en ég á
nokkra skartgripi eftir þá sem ég
held mikið upp á. Hringurinn vísar
svolítið til íslensks víravirkis og
er ofsalega fallegur og er kannski
sá hlutur sem ég hef tekið einna
mestu ástfóstri við.
Sparíkjóllinn Þessi kjóll er frá
Vivienne Westwood og er úr
KronKron. Kjóllinn er gjöf
frá mínum heittelskaða og
mérfinnst hann æðislegur.
Hann er mjög fallegur og
smellpassar á mig.
Bestu kaupin Þessa kápu
keypti ég i versluninni
Primark í London og
hún hefur reynst mér
ótrúlega vel.
Alexía Björg Jóhannesdóttir leikkona opnar
fataskápinn sinn að þessu sinni. Alexía
á ótrúlegt safn af hælaskóm í öllum litum
og skápurinn hennar er fullur af kjólum,
stuttum, síðum, sumar- og spari- enda er
kærastinn hennar duglegur við að bera
henni kjóla heim í hús.
Hvaða flík langar þig mest í?
Eins og er langar mig eiginlega mest í ein-
hverja þægilega og dömulega hælaskó fyrir
sumarið. Helst einhverja í fallegum litum og það
þægilega að ég geti verið í þeim í vinnunni allan
daginn, en ég hef ekki fundið þá ennþá.
Af hverju er mest í fataskápn-
um þínum?
(fataskápnum mínum er örugg-
lega mest af kjólum og það er
eiginlega synd að ég sé ekki
oftar í kjól. Ég á liklega
allar gerðir, bæði
síðkjóla, hvers-
dagskjóla og
stutta sumar-
kjóla og ég
sé það að ég
verð eiginlega
að nota tækifær-
ið núna þegar það
fer að hlýna og vera
oftar í kjól. En þetta er
allt í bland, bæði notaðir
og nýir kjólar.
Hvaða flíkur notar þú mest?
Ég er eiginlega oftast í gallabuxum. Það eru
svona þægilegu fötin mín og svo líka
jakkar. Ætli gallaþuxur og mismunandi
jakkar við séu ekki það sem ég nota
mest.
„Gullfallegar" hljómsveitir á Dillon
„Við ætlum að frumflytja fjögur eða fimm
glæný lög í kvöld í bland við eldra efni,”
segir Haukur Heiðar Hauksson, söngvari
hljómsveitarinnar Diktu, en hljómsveit-
in spilar á Dillon í kvöld. Ásamt Diktu
kemur fram hljómsveitin Ourlives sem er
nýkomin heim úr hljómleikaferðalagi um
Bretland.
„Þetta eru góðvinir okkar í Diktu og gullfal-
legir menn,“ svarar Haukur þegar hann er
spurður nánar út í hljómsveitina Ourlives.
„Þeir hafa mikið verið að spila í Bretlandi
og eru kannski þekktari þar en hér heima
en nú ætla þeir að bæta úr því. Þeir spila
öllu harðari tónlist en okkar en engu að
síður skemmtilega.”
Hljómsveitin Dikta er ekki síður gullfalleg
en hún sendi síðastfrá sér plötu fyrir jólin
2005, Hunting for Happiness, sem fékk
frábærar viðtökur og seiddi sannarlega
hamingju fram í hjörtum þeirra sem á
hana hlýddu.
„Það er ný plata í burðarliðnum og við erum
að semja á fullu,” segir Haukur en vill ekki
láta uppi hvenær ný plata kemur út. „Hún
kemur þegar við erum fullkomnlega tilbún-
ir. Við erum með tonn af hugmyndum og
ætlum að nota sumarið til að semja og æfa,
æfa og semja.“
Það eru ekki margir tónleikar fyrirhugaðir
hjá hljómsveitinni í sumar en Haukur telur
þó líklegt að þeir detti inn hér og hvar í
sumar. Þegar hann er spurður um hvort
einhverra breytinga sé að vænta segir
hann aö hljómsveitin sé alltaf að breytast.
„IVIér finnst við aldrei vera að spila sömu tón-
listarstefnuna, það er alltaf einhver þróun
í gangi og ég vona að það sé góð þróun.
Annars verða aðrir að dæma um það og
fólk fær alla vega tækifæri til þess í kvöld.“
Þeir sem eru á póstlista Diktu mega
búast við sérstakri gjöf en það er acoustic
útgáfa af laginu Breaking the Waves. „Við
ákváöum að gefa öllum vinum okkar lagið
þar sem fólk var að spyrja okkur um þessa
útgáfu sem er að finna á iTunes. Það er
ennþá hægt að skrá sig á póstlistann ef
fólk hefur áhuga á að fá lagið gefins.”
Tónleikamir á Dillon hefjast klukkan 21.00
og frítt er inn.
www.cargobilar.is
Sendibílar
til leigu