blaðið - 09.05.2007, Side 10

blaðið - 09.05.2007, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2007 blaðið UTAN ÚR HEIMI SERBIfl ‘ Harðiínumaður kjörinn þingforseti Nikolic, leiðtogi Róttæka flokksins, hefur veriö kjörinn forseti serbneska þjóðþingsins. Nikolic var kjörinn með stuðningi Ihaldsflokks Kostunica, fráfarandi for- sætisráðherra. (haldsmönnum hafði áður mistekist að mynda meirihluta með öðrum flokki. Sextán fórust í sprengjuárás Sextán létust og fjöldi særðist í sjálfsmorðsárás á markaði í borginni Kufa suður af Bagdad, höfuðborg Iraks, í gær. Maðurinn keyrði lítinn sendiferðabíl fylltan sprengiefni inn í mannfjöld- ann þar sem sprengjan sprakk. fc w Göran Persson gerist ráðgjafi Göran Persson, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, mun hefja störf sem ráðgjafi hjá almannatengslafyrir- tækinu JKL í ágúst. Persson mun starfa hjá fyrirtæk- inu tvo daga í viku og segja forsvarsmenn JKL að um draumaráðningu sé að ræða. ísrael: Gröf Heró- desar fundin Gröf Heródesar konungs hefur fundist skammt frá Betlehem að sögn vísindamanna við ísraelsk- an háskóla sem unnið hafa að fornleifarannsóknum á svæðinu frá árinu 1972. Ehud Netzer, prófessor við Hebreska háskól- ann í Jerúsalem, fann gröfina en hann er einn af helstu sérfræð- ingum heims um Heródes. Gröfin fannst í Herodion, hæð sem er tólf kílómetra suður af Jerúsalem, þar sem rómverski konungurinn Heródes lét reisa höll sem skemmdist síðar af völdum Rómverja árið 71 efitir Krist. Heródes varð konungur í hinu helga landi þegar Róm- verjar gerðu það að skattríki sínu árið 74 fyrir Krist. Lóðir í Urriðaholti: Sala hefst á þriðjudag Sala á lóðum í fyrsta áfanga íbúabyggðar í Urriðaholti í Garðabæ hefst á þriðjudag, 15. maí. Um er að ræða lóðir fyrir allt að 377 fbúðir, þar á meðal í fjölbýli, einbýli, raðhúsum og parhúsum. Fasteignasölurnar Eignamiðlun og Miðborg annast söluna og er tilboðsfrestur til 24. maí. Urriðaholt er nýtt hverfi í Garðabæ, ofan við Urriðavatn og í næsta nágrenni Heiðmerkur. Við skipulagningu Urriðaholts hefur áhersla verið lögð á sjálf- bæra, mannvæna og umhverf- isvæna byggð í tengslum við náttúruna, sem nýtur um leið greiðra samgönguleiða í næsta nágrenni. Þegar Urriðaholt verður fullbyggt er gert ráð fyrir að þar búi um 4.400 manns. Samið um kaup og þjálfun á blindrahundum: Finnst ég frjáls með hundinn mér við hlið ■ Aðeins einn hundur á landinu ■ Kaupa fimm hunda ■ Kostnaður 25 milljónir Eftir Lovisu Hilmarsdóttur lovisa@bladid.net Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og Hall- dór Sævar Guðbergsson, formaður Blindrafélagsins, undirrituðu í gær samkomulag um kaup og þjálfun á fimm leiðsöguhundum fyrir blinda og sjónskerta. Áætlaður kostnaður við verkefnið er 25 milljónir króna. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytið leggur til rúmlega 17 millj- ónir króna og Blindrafélagið leggur til 8 milljónir á móti. Blindrafélagið gerði samning við hundaskóla norsku blindrasamtak- anna um þjálfun á leiðsöguhund- unum og notendum þeirra. Þjálfar- arnir munu koma einu sinni á ári næstu fjögur árin til að fylgja þjálf- uninni eftir. I lok maí fara fimm blindir- og sjónskertir einstak- lingar til Noregs í fyrstu þjálfunina. Leiðsöguhundar eru algengt hjálpar- tæki á Norðurlöndum og víðar í Evr- ópu. Á íslandi hafa einungis tveir leiðsöguhundar verið þjálfaðir og að- eins einn þeirra er ennþá í notkun. Ólafur Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Blindrafélagsins, segir að sú hugmynd að fá leiðsögu- hunda til landsins sé búin að vera lengi í bígerð. „Það var búið að skoða marga möguleika, svo var það síðastliðið haust sem boltinn fór að rúlla fyrir alvöru. Það komu fulltrúar frá hundaskólanum í Noregi til lands- ins og þeir voru með raunhæfar hug- myndir. Við fengum mjög jákvæð viðbrögð frá ráðuneytinu og upp frá því hófst mikil undirbúningsvinna. Samkomulagið við ríkið er ávöxtur- inn af þeirri vinnu.” Blindrafélagið bindur miklar vonir við samkomulagið og fagnar þessum merka áfanga. Friðgeir Þráinn Jóhannesson lenti í slysi 1998 og missti sjónina. Síðan þá hefur hann verið með leið- söguhundinn Erró en hann er eini leiðsöguhundurinn á íslandi í dag. Friðgeir telur að vanþekking hafi stjórnað því að ekki séu fleiri leið- söguhundar á landinu í dag. Fólk geri sér ekki grein fyrir hversu mik- ilvægt hjálpartæki þeir eru fyrir daglegt líf blindra- og sjónskertra. „Ég er algjörlega frjáls ferða minna. Ef ég segi vinstri fer hundurinn til vinstri, ef ég er á gangi í Öskjuhlíð- inni og segi hundinum að finna sæti þá finnur hann bekk handa mér. Ég er aldrei einn. Erró heldur mér alltaf félagsskap og er það ekki síður mikilvægt. Erró minn er orðinn gamall og heilsulítill. Því er ég á leið til Noregs í þjálf- unina. Ég get ekki hugsað mér að vera án leiðsöguhunds.” Það er alveg ljóst að tilkoma leið- söguhundanna mun auðvelda og breyta lífi margra blindra og sjón- skertra einstaklinga. Frelsi þeirra og sjálfstæði mun aukast ásamt því að geta sinnt erindum sínum án að- stoðar frá öðru fólki. Félagar í áratug Friðgeir Jóhannes- som ásamt leiðsögu- hundinum Erró Samfylkingin Allir geta lært! Fjárfestum í menntun um land allt Kynntu þér stefnuna á xs.is Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 1. sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður Björgvin G. Sigurðsson, 1. sæti í suðurkjördæmi

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.