blaðið - 09.05.2007, Page 12

blaðið - 09.05.2007, Page 12
blaði Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Ritstjóri: Trausti Hafliðason Fréttastjórar: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Ritstjórnarfulltrúi: Elín Albertsdóttir Dýr starfslok Það er til mikils að vinna á laugardaginn, þ.e.a.s. fyrir þá sem keppa um að komast inn á Alþingi. í boði er dágott starf á fínum launum með löngu sumar- og jólafríi. Ekki sakar að eftirlaunin eru þau langbestu sem fyrir- finnast í landinu, nema ef vera kynni hjá örfáum bankastjórum. í fyrra greiddu skattgreiðendur fyrrverandi alþingismönnum og ráðherrum 341 milljón króna í eftirlaunagreiðslur. Alls þiggja 225 einstaklingar þessar greiðslur, 39 fyrrverandi ráðherrar og 186 fyrrverandi alþingismenn. Það er ekki lítill hópur. Strípuð laun þingmanna eru nú 517.639 krónur en ráðherra 931.000 krónur. Formenn stjórnmálaflokka fá 50% álag á þingfararkaup og þeir sem eiga lögheimili úti á landi en halda heimili í Reykjavík fá 40% ofan á þingfararkaupið. Formenn þingnefnda og formenn þingflokka fá greitt 15% álag á þingfararkaup. Ýmis fríðindi fylgja auk þess starfinu. Þingmenn og ráðherrar settu sjálfir lög árið 2003 þar sem þeir rýmkuðu rétt sinn til eftirlauna en við þær breytingar fengu þeir mun betri eftir- laun en tíðkast í samfélaginu. Þær breytingar gerðu þessi fólki t.d. kleift að fara mun fyrr á eftirlaun en áður var. Þá geta þeir einnig haldið áfram að starfa á almennum vinnumarkaði án þess að réttur þeirra til að þiggja lífeyrisgreiðslur glatist, að því er fram kemur í frétt Blaðsins í gær. Aðrir hópar samfélagsins þurfa að sætta sig við tekjuskerðingu og líf- eyrisgreiðslur sem ekki er hægt að framfleyta sér á. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands íslands, sagði i fréttinni að eftir- launalögin væru ekki einungis ósanngjörn heldur ósiðleg. Jóhanna Sigurð- ardóttir lagði fram breytingartillögu á eftirlaunalögunum á síðasta þingi, en sú tillaga fékk ekki brautargengi. Flún vill láta taka lögin til heildarend- urskoðunar. „Það er ótækt að bjóða landsmönnum upp á að þingmenn geti verið á fullum launum hjá hinu opinbera eftir að þeir ljúka störfum en samt þegið fullan lífeyri. Ég tel málið það alvarlegt og það mikið réttlætis- mál að það eigi að láta á það reyna hvort ekki sé hægt að samþykkja lög um að hafa þetta afturvirkt. Þá verður bara að reyna á þetta fyrir dómstólum. Það eru fordæmismál fyrir því,“ sagði Jóhanna í viðtali við Blaðið. Þá kom fram í Blaðinu á laugardag að 16 þingmenn hverfi frá störfum við kosningarnar nú. Sumir hafa fallið út í próflcjörum en aðrir kosið að hætta að eigin ósk. Ríkissjóður mun greiða þessu fólki biðlaun upp á að minnsta kosti 42 milljónir. Búast má við, samkvæmt skoðanakönnunum, að nokkrir einstaklingar til viðbótar missi vinnu sína á þingi á laugar- dag og bætast þá nokkrar milljónir í biðlaun við þá upphæð sem áður er nefnd. Nú þurfa þingmenn og ráðherrar að leggja störf sín undanfarin fjögur ár í dóm kjósenda. Það verður áhugavert að fylgjast með spurningum, svörum, loforðum og fögrum fyrirheitum á lokasprettinum. Þau loforð verða rifjuð upp að fjórum árum liðnum. Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á a uglýsingadeild: 5103711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Norm-X Heitir pottar íslensk framleiósla Heimasíðan okkar er www.normx.is Norm-X Auöbrekku 6 Kópavogi Sími 565-8899 www.normx.is normx@normx.is Snorralaug 2000 L Norm-X hefur frá 1982 sérhæft sig T framleiðslu heitra potta sem henta íslenskum aðstæðum einstaklega vel. Við bjóðum einnig allan tengibúnað, nudd og Ijósabúnað og tvær gerðir af lokum. Samstarfsaðili okkar á Akureyri er Tjalda- og Seglaþjönustan ehf. sími 461-5077 Grettislaug 1500 L Setlaug 2050 L Setlaug 1200 L með legubekk 12 MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2007 blaöiö Ný þjóðfélagssýn? Kosið verður til Alþingis eftir 3 daga. Margir kjósendur láta sér í léttu rúmi liggja hvað og hvernig nið- urstöður kosninganna verða. Ef til vill vegna þess að átakalínur stjórn- málanna eru ekki eins áberandi og áður. Það er helst að fólk nefni að kosningaúrslit skipti ekki máli. Alltaf sitji Framsókn í ríkisstjórn. Þannig hefur það verið allt of lengi. Af viðtölum við kjósendur greini ég helst þá meginlínu að kjósendur vilja losna við Framsóknarflokkinn úr ríkisstjórn. Sjálfsagt ómaklegt að láta reiði vegna spillingar og afglapa ríkisstjórnarinnar bitna á Framsóknarflokknum einum. Sjálf- stæðisflokkurinn ber ekki minni ábyrgð. Sameiginlegabera Framsókn- arflokkurinn og Sjálfstæðisflokkur- inn ábyrgð á því að standa vörð um að viðhalda lágtekjuskatti með því að neita að hækka skattleysismörk í samræmi við þróun kaupgjalds og verðlags í landinu. Sameiginlega bera ríkisstjórnarflokkarnir ábyrgð á velferðarhallanum sem veldur því að hópar öryrkja og ellilífeyrisþega geta ekki búið við mannsæmandi lffskjör. Sumir eiga jafnvel ekki fyrir mat út mánuðinn. Opinber útgjöld aukast sem aldrei fyrr en meirihluti aukningarinnar rennur í hítina en minnihlutinn til velferðar. Með sama áframhaldi stefnir i að opinber útgjöld nemi helmingi þjóðartekna í lok næsta kjörtímabils. Sjálfstæðis- flokkurinn á met í hækkun skatta í OECD-ríkjunum sé miðað við tíma- bilið frá því að flokkurinn tók við ríkisfjármálunum til dagsins í dag. Sjálfstæðisflokkurinn hefur þannig hækkað skatta, aukið ríkisútgjöld, fjölgað ríkisstarfsmönnum úr hófi á valdaferli sínum. Frjálslynt fólk á Klippt & skorið að refsa Sjálfstæðisflokknum fyrir að hafa brugðist loforðum sínum um samdrátt í ríkisrekstri og minni skattheimtu. Þá á að refsa Sjálfstæð- isflokknum fyrir að hafa staðið að eftirlaunalögum alþingismanna og neitað að breyta. Þau lög verður að afnema. Frjálslyndi hluti Sjálfstæðisflokks- ins taldi sér ekki lengur fært að Jón Magnússon vera í flokknum þegar fyrir lá að þeir sem héldu um valdataumana mundu helst ganga erinda forrétt- indahópanna í þjóðfélaginu í stað þess að gæta almannahagsmuna. Einkavinavæðing og haftastefna í atvinnumálum með kvótasetningu í fiskveiðum og landbúnaði var aftur- hvarf til sósíalískrar hugmyndafræði. I stað þess mátti láta markaðinn leysa vandamál takmarkaðra gæða með því að verðleggja þau. Það gerði Sjálfstæðisflokkurinn ekki, hann gaf þau vildarvinum sínum og samstarfs- flokksins. Því verður að breyta og frjálslynt fólk hefur ærinn starfa eftir kosningar við að koma á eðlilegum viðmiðunum markaðsþjóðfélagsins á ýmsum sviðum eftir langan valda- feril Sjálfstæðisflokksins. Við þessar kosningar örlar ekki á nýrri þjóðfélagssýn eða langtíma- markmiðssetningu stjórnarflokk- anna. Eina loforðið þeirra er að halda áfram á sömu braut. Hvað þýðir það? Aukin skuldsetning heim- ilanna í landinu? Aukinn velferðar- halli gagnvart öldruðum, öryrkjum og láglaunafólki? Meiri og fleiri vinargreiðar? Aukin skattheimta? Aukin ríkisútgjöld? Öllu þessu eru stjórnarflokkarnir að lofa eða hóta kjósendum með því að segjast ætla að halda áfram á sömu braut. Vel- megun og framþróun í viðskiptum er ekki vegna stjórnarstefnunnar þó að stjórnarflokkarnir þakki sér það heldur þrátt fyrir hana en það á einna helst að þakka þeim fyrir að hafa ekki þvælst fyrir á því sviði. Spurning er hvort þjóðin geti ekki hugsað sér aðra framtíðarsýn næsta kjörtímabil. I fyrsta lagi að okrinu á ney tendum verði hætt. Fólk geti keypt nauðsynjar fyrir sama verð og fólk í nágrannalöndunum. I öðru lagi að lágtekjuskatturinn verði afnuminn með því að hækka skattleysismörk í 150 þúsund. I þriðja lagi að íslend- ingar gæti að tungu sinni, menningu og þjóðlegum gildum með því að stjórna því hverjir koma til landsins, hvenær og með hvaða skilyrðum. I fjórða lagi að umgjörð velferðar verði með þeim hætti að þeir sem hennar njóta og eiga að njóta búi við mann- sæmandi lífskjör. í fimmta lagi að allir borgarar séu jafnir gagnvart nýt- ingu náttúruauðlinda, hvort heldur er um að ræða fiskinn í sjónum, orku fallvatnanna eða hollustu vatnsins. Það þarf frjálslynda umbótastjórn til að ná þessum markmiðum. Höfundur er hæstaréttarlögmaður Það er ekki aðeins stjórnarandstaðan sem kveinkar sér við skyndilega og gríðarlega gjaf- og styrktarmildi ríkisstjórnar- innar þessa síðustu og verstu. ( bloggheimum sýnist sitt hverjum um hvert útspilið á fætur öðru. f gær var tilkynnt um lóð til handa Listaháskólanum sem lengi hefur verið beðið og skömmu síðar barst fjölmiðlum tilkynning um 30 milljónir króna til handa Hvala- safninu á Húsavík. Þó vafalítið megi finna ærnar ástæður fyrir styrkveitingum á ýmsa bóga setja ýmsir siðferðileg spurningarmerki við slíkt svo stuttu fyrir kosningar. Ekki síst þar sem næsta ríkisstjórn mun þurfa að standa skil á loforðum dagsins í dag og sú stjórn er orðin nokkuð skuld- settnúþegar. Ekkert þarf að fjölyrða um verð- lagninguhérlendisá vörum og þjónustu sem er i hærri kantinum ef ekki hæsta kant- inum. Undarlegt þykir gárungum hvað verð á notuðum bílum er hátt þrátt fyrir ofgnótt slíkra bíla á markaðnum í kjölfar mesta bílainnflutn- ings landans nú síðustu árin. Er nú svo komið að ekki er óalgengt að viðmiðunarverð þau er Bílgreinasambandið tekur saman til að auð- velda kaupendum samanburð eru tvö til fjögur hundruð þúsundum undir ásettu verði notaðra bíla á bílasölum. Ekki er þó gert ráð fyrir að fólk prútti bílana mikið niður heldur eru ásett verð jafnan rétt vegna ýmissa aukahluta sem listi Bíl- greinasambandsins nærekkiyfir. Sjóvá slær því upp í stórri heilsíðuauglýs- ingu að félagið sé hástökkvari ársins í nýbirtri vinnumarkaðskönnun VR. Má þarsjá fríðan hóp starfsmanna veifa brosandi til lesandans og allir njóta þeir þess góða anda sem þar er. Segir að fyrirtækið taki stolt við viðurkenningunni sem hástökkvari þessa árs og stefnt sé að því að efla liðsanda og líðan starfsmanna enn frekar. Sann- arlega er tilefni til því sé könnunin skoðuð í heild sinni reynist Sjóvá aðeins vera rétt fyrir ofan meðallag meðal stærstu fyrirtækja landsins og því erframsetningin nokkuð villandi. Vissulega hástökkvari ársins sem þó þýðir ekki annað en að fyrirtækið var nokkuð fyrir neðan meðallag íkönnun ársins þará undan. albert@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.