blaðið - 09.05.2007, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2007
blaðið
ísland verði áfram
land tækifæranna
Þann 12. maí munu um tuttugu
þúsund ungmenni eiga þess kost að
kjósa til Alþingis í fyrsta sinn. Þessi
hópur hefur sem betur fer aldrei
kynnst atvinnuleysi af eigin raun
og hann þekkir sem betur fer ekki
óðaverðbólgu eins og við sem eldri
erum munum svo vel. Þetta unga
fólk man ekki þá tíð þegar þjóðarbú-
skapurinn var að miklu leyti undir
þvi kominn hvort loðnugangan
fyndist eða hvort samningar um
síldarsölu tækjust. Þessi tími er að
baki og íslenskt efnahagslíf hvílir á
fleiri og öflugri stoðum nú en áður.
Gífurlegur árangur
Enginn deilir um að gífurlegur ár-
angur hefur náðst á undanförnum
árum í efnahagsmálum. Horfur eru
á að kaupmáttur hafi aukist um 75
prósent frá 1994-2007, hagvöxtur
hefur verið um 4,5 prósent á ári að
meðaltali frá 1996, atvinnuleysi síð-
asta áratuginn hefur verið á bilinu
1-3 prósent, ríkissjóður hefur verið
rekinn með meiri afgangi á þessu
kjörtímabili en dæmi eru um og er-
lendar skuldir ríkissjóðs hafa verið
greiddar upp.
Tölur um kaupmátt og hagvöxt
eru ekki bara tölur á blaði. Hag-
vöxtur er verðmætasköpun og verð-
mætasköpun er undirstaða velferðar
í landinu. Við fslendingar viljum
búa í velferðarsamfélagi þar sem
þeim sem höllum fæti standa er
búið öryggi. Til þess að það sé hægt,
þurfum við að búa til verðmæti - vel-
ferðin dettur ekki af himnum ofan.
Stórsókn í menntamálum
Verðmætasköpun er líka undir-
staða menntunar í landinu. Stórsókn
Umrœðan
ísland er
orðið land
tækifæranna
Herdís Þórðardóttir
í menntamálum hefur orðið til þess
að tækifæri til menntunar blasa við
ungu fólk hvarvetna um landið. Árið
1995 voru 3 háskólar starfræktir, nú
eru þeir átta. Það er ekki tilviljun að
fjöldi háskólanema í landinu hefur
tvöfaldast á síðustu tíu árum. Allt
þetta unga fólk sér fram á áhugaverð
framtíðarstörf hér á landi.
Sú kynslóð sem nú er að vaxa úr
grasi og komast á fullorðinsár býr
við fleiri tækifæri en nokkur önnur
kynslóð fslendinga. Við höfum byggt
traustan grunn á undanförnum
árum og lagt grunninn að frekari
framförum. Það er ekki síst ungt fólk
sem nýtur góðs af því. f sland er orðið
land tækifæranna og nú þurfum við
að tryggja að svo verði áfram.
Höfindur skipar 4. sæti á lista sjálfstæðis-
manna í NV-kjördæmi
Æ, þessi Framsóknarflokkur
Nú lofa framsóknarmenn
100 þúsund króna skattleysis-
mörkum. Skattleysismörk væru
142 þúsund krónur í dag en ekki
90 þúsund ef þau hefðu haldið í við
launavísitölu.
Nú lofa framsóknarmenn að fella
niður stimpilgjöld. Þeir hafa árlega
sl. 4 ár hjálpað íhaldinu að svæfa
þingmál okkar í Samfylkingunni
um niðurfellingu stimpilgjalda.
Nú lofa framsóknarmenn að
breyta fjölbýlum á dvalar- og hjúkr-
unarheimilum í einbýli.
Eftir 12 ára valdasetu skilja þeir
eftir sig 400 aldraða í brýnni þörf
fyrir að fá inni á hjúkrunarheim-
ilum og nálægt 1000 manns sem
deila þurfa herbergi með óskyldum.
Er þeim treystandi?
Nú lofa framsóknarmenn að
hækka frítekjumark á atvinnu-
tekjur lífeyrisþega og setja frítekju-
mark á lífeyrisgreiðslur. í haust
lögðu þeir til að fyrst á árinu 2009
yrði frítekjumark 17 þúsund krónur
á mánuði og á árinu 2010 yrði það
25 þúsund krónur á mánuði. Fyrir
þrýsting samtaka aldraðra var gild-
istíminn færður fram og 25 þúsund
króna frítekjumarki, þó einungis
gagnvart atvinnutekjum, komið á
um sl. áramót. Er það trúverðugt
að nú nokkrum dögum fyrir kosn-
ingar lofi framsóknarmenn að
hækka frítekjumarkið á atvinnu-
tekjur og taka það líka upp gagn-
vart lífeyristekjum?
Nú lofa framsóknarmenn að
lengja fæðingarorlofið í 12 mánuði.
Kjörtímabilið hafa þeir nýtt til að
draga úr réttindum til fæðingaror-
lofsgreiðslna, m.a. með því að lengja
það viðmiðunartímabil launatekna
sem fæðingarorlofsgreiðslur mið-
ast við. Þannig er fæðingarorlof nú
ekki 80 prósent af tekjum heldur
rúmlega 70 prósent. Er þeim treyst-
andi til að standa við að lengja fæð-
ingarorlof í 12 mánuði?
Trúverðugt kosningaloforð?
Nú lofa framsóknarmenn ókeypis
tannvernd til 18 ára aldurs. Tann-
heilsa barna er verri hér en á öllum
hinum Norðurlöndunum, enda
hefur greiðsluþátttaka ríkisins í
tannvernd barna minnkað verulega
á kjörtímabilinu. Viku fyrir kosn-
ingar hleypur heilbrigðisráðherra
til og stígur hænufet með því að
greiða fyrir eina forvarnarskoðun
fyrir 3ja og 12 ára börn. Engin breyt-
ing er hjá öðrum aldurshópum. Er
kosningaloforðið trúverðugt nú
um ókeypis tannvernd allra barna
til 18 ára aldurs og að auka niður-
greiðslur á tannviðgerðum?
Nú lofa framsóknarmenn veru-
legum breytingum á barnabótum.
Þeir hafa skert barnabætur um
10.5 milljarða á kjörtímabilinu og
hafa ekki enn staðið við kosninga-
loforðið frá 1999 um barnakortin
sem fól í sér greiðslu ótekjutengdra
barnabóta til allra barna og ung-
menna. Ótekjutengdar barnabætur
eru einungis greiddar til 7 ára ald-
urs barna nú, tveim kjörtímabilum
síðar. Er þessum flokki treystandi
til að hækka barnabæturnar?
Svíkjum áfram - ekkert stopp
Nú lofa framsóknarmenn að
afnema tafarlaust takmörkun á
íbúðarlán með því að hætta að
miða lánveitingar við brunabóta-
mat, sem leitt hefur til þess að ungt
fólk, einkum á Reykjavíkursvæð-
inu, hefur iðulega einungis fengið
50-60 prósent af kaupverði íbúða.
Af hverju ættu þeir að gera það á
næsta kjörtímabili sem þeir hafa
Hænufet „Viku fyrir kosningar
hleypur heilbrigðisráðherra til og
stígur hænufet með þvíað greiða
fyrir eina fon/arnarskoðun fyrir 3ja
og 12árabörn.“
Framsóknar-
menn hafa skert
barnabætur um
10,5 milljarða á
kjörtímabilinu
Umrœðan
Jóhanna Sigurðardóttir
ekki gert sl. 12 ár í ríkisstjórn?
Nú lofa framsóknarmenn að
lækka virðisaukaskatt á lyfjum úr
24,5 prósentum í 7 prósent. Þeir
felldu sömu tillögu frá okkur í
Samfylkingunni rétt fyrir jólin. Er
nokkur ástæða til að ætla annað en
þeir muni endurtaka þann leik á
næsta kjörtímabili?
Stóra spurningin er því þessi:
Hvort er líklegra að gangi eftir á
næsta kjörtímabili ef ríkisstjórnin
heldur velli; „Árangur áfram
- ekkert stopp“ eða „Svíkjum áfram
- ekkert stopp“?
Höfundur er alþingismaður
Omar hálendisins
Kvótabrasks-kerfi
Ómar Ragnarsson hefur skemmt
þessari þjóð um nær hálfrar aldar bil
við fádæma vinsældir. Til þess að geta
séð spaugilegu hliðina á mönnum og
málefnum og sýnt okkur hinum hana
þannig að við getum ekki annað en
hlegið með, þarf að vera hægt að
skynja mikla og djúpa alvöru að baki.
Enda hefur Ómar sýnt okkur það
með hinum starfsferli sínum, í starfi
sjónvarpsfréttamannsins, að spaugar-
inn flækist ekkert fyrir alvörumann-
inum og öfugt.
Náttúra landsins í al-
þjóðlegu samhengi
Það hefur verið sagt að fyrstu
myndlistarmenn okkar íslendinga
í upphafi aldarinnar sem leið hafi
opnað fólkinu í landinu nýja sýn á
umhverfi sitt, gert það fært um að
koma auga á fegurð þess ofar nyt-
semdarsjónarmiðum, skynja það
með auga listamannsins fremur en
nytjahyggjumannsins, sem fagurt
þykir í fjörðum þegar vel veiðist og er
ekki í rónni fyrr en hann hefur ræst
fram allt votlendi og bylt við móum
og mýrum.
Ómar Ragnarsson hefur svo aukið
nýrri vídd við þá upphöfnu sýn á
landiðsemlistamennirnirgáfuokkur
með því að flytja öræfin og hálendið
heim 1 stofu til okkar gegnum sjón-
varpstækin. Hann hefur líka kennt
okkur að setjanáttúrulandsins okkar
í alþjóðlegt samhengi. Að lokum fór
svo að hann varð að varpa af sér kufli
fréttamannsins og taka upp beina
vörn og sókn fýrir íslenskar náttúru-
perlur, gegn þeim sem einskis svífast
til að tortíma þeim fyrir lítilfjörlegan
stundarávinning álvinnslunnar.
Áratugabarátta um
friðun Þjórsárvera
Ekki eru liðnir nema nokkrir
dagar síðan leitt var í ljós að ekki
Kjósum því
Ómaráþing
Umrœðan
Ólafur Hannibalsson
er einu sinni hægt að fá yfirvöld
til að taka af skarið um friðun
Þjórsárvera eftir áratugabaráttu
náttúruverndarfólks heima og
erlendis. Það er með ólíkindum
að Landsvirkjun skuli enn halda
dauðahaldi í fyrirætlanir sínar
um gerð Norðlingaölduveitu í stað
þess að setja punkt aftan við þá
gömlu deilu. Og meðan framsókn-
armenn stýra iðnaðar- og umhverf-
isráðuneytum er engu að treysta í
þeim efnum. Hálendið er utan við
öll kjördæmi og á sér engan laun-
aðan málsvara á málþingum þjóð-
arinnar. Guðmundur R Ólafsson
hefur með myndarlegum hætti
tekið máli náttúruperla landsins í
bókum sínum. Ómar Ragnarsson
hefur gerst málsvari óbyggðanna
með einstæðum hætti og flutt
mál sitt af fágætri þekkingu og
djörfung. Fyrir þann góða málstað
hefur hann lagt allt í sölurnar, lfk-
amlegt og andlegt þrek sitt og fjár-
hagslegt þol.
Óbrigðull vörður
Nú eiga kjósendur í Reykjavík-
suður þess kost að kjósa Ómar á
þing, ekki einungis sem fulltrúa
höfuðborgarinnar, heldur sem
óbrigðulan vörð um höfuðdjásn
þjóðarinnar.
Atburðir síðustu daga hafa sýnt
okkur svart á hvítu, að hvernig svo
sem allt veltist um stjórn þessa
lands, hægri stjórn eða vinstri
tekur við að loknum kosningum,
þá þurfa náttúruperlur íslands
málsvara á Alþingi. Oft hefur verið
þörf, en nú er nauðsyn á umboðs-
manni íslenskrar náttúru meðal
löggjafa þjóðarinnar. Ómar Ragn-
arsson er rétti maðurinn til þess.
Kjósum því Ómar á þing!
Höfundur er blaðamaður og skipar 2.sæti á
lista Islandshreyfingarinnar I
Reykjavík norður
Fátt bendir til þess að fiskveiði-
kerfið verði eitt af þeim mikilvægu
atriðum sem kosið verður um á
laugardaginn. Það verður að telj-
ast furðulegt í ljósi þess að ítrekað
hefur komið fram í könnunum að
yfir 70 prósent þjóðarinnar eru
óánægð með kerfið. Fyrir sfðustu
kosningar tókst Frjálslyndum að
gera fiskveiðikerfið að heitu kosn-
ingamáli ... í óþökk stjórnarflokk-
anna. Hið svokallaða færeyska
fiskveiðikerfi eða sóknardaga-
kerfi varð skyndilega í kastljósinu.
En stjórnarliðar lögðust allir á ár-
arnar og kvótabrasks-kerfið hélt
velli.
Atvinnuöryggi
í dag eru kvótabrasks-kerfin
orðin tvö, því trillur og minni
bátar sem áður voru f svoköll-
uðu dagróðrakerfi eru núna allir
komnir með kvóta. Þetta þýðir f
raun að eigendur minni báta sem
fyrir nokkrum árum höfðu rétt
til veiða í ákveðið marga daga á
ári, hafa nú öðlast rétt til að selja
óveiddan fiskinn í sjónum líkt og
útgerðarmenn í stóra kerfinu gera.
Þessu fögnuðu vissulega allir þeir
sem fengu kvóta. Því hefur sú brey t-
ing orðið á, að margir þeirra sem
fyrir nokkrum árum gagnrýndu
kerfið harkalega fyrir árangurs-
leysi, óréttlæti og mafíóskt skipu-
lag, eru í dag hirðmenn þess. Því til
viðbótar Ieggja stjórnarflokkarnir
það til að skerpt verði á eignarrétt-
arákvæðinu á auðlindinni í stjórn-
arskrá ... til hagsbóta þeim sem
veiðiréttinn hafa f dag. Því skalt
þú, kjósandi góður, ekki falla fyrir
pólitfsku orðagjálfri, sem aðeins er
vinna fyrir lögfræðinga. Það er at-
vinnuöryggi fólksins í sjávarbyggð-
unum, sem búið er að taka af því,
sem þarf að hafa áhyggjur af.
Endurnýjun
Frjálslyndir hafa í fjögur ár lagt
það til að einstaklingum verði
gert kleift að hefja útgerð með
tveim færarúllum, að ákveðnum
skilyrðum uppfylltum. Það ógnar
sannarlega engum fiskstofnum,
heldur opnar það fyrir endunýjun
inn í greinina á sanngjarnan og
eðlilegan hátt. Þá verður gríðarlega
mikið öryggi í því fólgið fyrir íbú-
ana sem eftir verða, þegar kvóta-
karlarnir í litla kerfinu verða búnir
að selja kvótann í burtu og sjálfir
fluttir á mölina.
Ágæti kjósandi. Ef þú ert einn
þeirra sem aðeins finna til sam-
kenndar með fbúum sjávarbyggð-
anna þegar skipskaðar verða eða
snjóflóð falla, þá skaltu bara halda
áfram að kjósa kvótaflokkana.
Höfundur er fyrrverandi veiðarfærasölumað-
ur og I framboði fyrir Frjálslynda flokkinn I
Kraganum
I dag eru
kvótabrasks-
kerfin orðin tvö
Umrœðan
Atli Hermannsson