blaðið - 22.05.2007, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2007
blaðið
ÁMORGUN VÍÐA UM HEIM
VEÐRIÐ I DAG
Slydduél
Skýjað með köflum og skúrir
eða él, en norðvestan 10-15
og slydda norðvestantil á
landinu. Hiti 1 til 12 stig, hlýjast
suðaustanlands.
Skúrir eða él
Vestlæg átt, fremur hæg. Skúrir
eða él, en bjartviðri suðaustan- og
austanlands. Gengur í norðaustanátt
norðvestantil undir kvöld. Hiti 2 til 10
stig, hlýjast suðaustantil.
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
19
18
23
29
31
15
29
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannaböfn
London
Madrid
Montreal
15
26
20
20
14
23
23
New York
Orlando
Osló
Palma
Paris
Stokkhólmur
Þórshöfn
14
19
16
22
22
Sigurður Kári
„Ég sjálfur, ég er voðalega hrifinn
af sjálfum mér.“
Jón Heiöar Hauksson
„Geir Haarde."
Edda Sólrún Jónsdóttir
„Steingrímur J. Sigfússon."
Hlé gert á fundum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks:
Ný ríkisstjórn gæti
tekið við í vikulok
■ Tekist á um stóra málaflokka ■ Fariö aö ræöa skiptingu ráöuneyta
Eftir Þórð Snæ Júliusson
thordur@bladid.net
,Ég tel góðar líkur á því að við
klárum þetta mál,“ sagði Geir
H. Haarde, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, að loknum rúmlega
fjögurra klukkustunda löngum
stjórnarmyndunarfundi hans 'og
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur,
formanns Samfylkingarinnar, í
gær.
Fundurinn, sem fór fram í Ráð-
herrabústaðnum við Tjarnargötu,
hófst um hádegisbil og stóð yfir til
rúmlega fjögur. Auk formannanna
sátu þau Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins, Andri Óttarsson fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
og Össur Skarphéðinsson, þing-
flokksformaður Samfylkingar,
fundinn.
Geir sagði þau ætla að gera stutt
hlé á viðræðum sínum en að þau
myndu þó líklegast hittast í dag
og halda þeim áfram. Ingibjörg
Sólrún sagði hléið ekki til marks
um að það væru einhverjar deilur
milli samningsaðila heldur væru
einfaldlega ákveðin mál sem þyrfti
að lenda. Engin deilumál sem ekki
hefði mátt sjá fyrir hafi komið
upp í viðræðum flokkanna. Málin
væru í eðlilegum farvegi og samn-
ingsaðilar að vanda sig við úrlausn
þeirra. „Við tökum þann tíma sem
við þurfum í þetta. En það er ekki
mikill timi eftir.“
Eftir ströng fundarhöld á Þing-
völlum um helgina funduðu for-
mennirnir og aðrir þátttakendur
í stjórnarmyndunarviðræðunum
með eigin flokksmönnum fyrri
hluta gærdagsins. Þar var farið yfir
orðalag og framsetningu þess hluta
málefnasamningsins sem þegar
hefur náðst samkomulag um. Geir
sagði að sú vinna stæði enn yfir.
Hvorugt þeirra vildi segja efn-
islega frá því hvaða mál það væru
sem enn væri verið að semja um,
en Skúli Helgason, framkvæmda-
stjóri Samfylkingarinnar, sagði
fyrr um daginn að um væri að
ræða „nokkur stór mál“.
Geir staðfesti þó að þegar væri
farið að ræða skiptingu ráðuneyta.
,Við gerum þetta allt í einum pakka
og skiptum því ekkert upp eftir
einhverjum sérstökum línum
fyrirfram.“
Formennirnir vildu ekki segja til
um hvenær þingflokkar Sjálfstæðis-
floycs og Samfylkingar verða kall-
aðir.jsaman til að fjalla um málefna-
samninginn en heimildir Blaðsins
herma að það verði líklega í dag.
Talið er að málefnasamningur-
inn 'sem nú verður gerður sé nokk-
urskonar rammasamkomulag um
stærstu málin í stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar. Þegar hann
liggur fyrir verða þingflokkarnir
kallaðir saman og samningurinn
kynntur fyrir þeim. Þingmenn
beggja flokka hafa verið beðnir um
að vera tilbúnir með skömmum fyr-
irvara til að mæta á slíkan fund ef
samningar nást. Við það tækifæri
verður væntanlega einnig tilkynnt
um það hverjir munu gegna ráð-
herraembætti í verðandi ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
Mamma framkallaði
100myndirfyrir
adeins Z900
29
kr- stk.
Fraktflug Norðanflugs til Belgíu:
Ferskur fiskur fyrr á markað
Norðanflug, sem Samherji,
Eimskipafélag íslands og SAGA
Capital Fjárfestingarbanki hafa
stofnað, hefur fraktflug frá Akur-
eyri til Oostende í Belgíu þann 3.
júní næstkomandi. Flogið verður
þrisvar í viku til að byrja með. Frá
Oostende er einungis um tveggja
klukkustunda akstur til Boulogne
sur Mer í Frakklandi sem er áfanga-
staður stærsta hluta þeirra fersku
fiskflaka sem fara með flugi frá
íslandi.
„Við náum að senda fiskinn að
norðan á hádegi. Vélin lendir síð-
degis í Belgíu og verður fiskurinn
þá kominn á markað að morgni
næsta dags. Með þessu styttist
flutningstími fyrir ferskan fisk,
sem unninn er á Norðaustur-
Flutningstíminn styttist
Fiskurinn á markaö aö
morgni næsta dags
landi, um heilan dag,“ segir Unn-
dór Jónsson, framkvæmdastjóri
Norðanflugs.
Að sögn Unndórs er verið að gera
samning um leigu á rússneskri
flutningavél, Antonov 12, í gegnum
belgískt fyrirtæki og tekur hún 15
tonn. Samningaviðræður standa
yfir við ýmsa aðila um fraktflutn-
ing frá Belgíu til Islands.